Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Afreksíþróttapar gefur út bók saman: „Ég byrjaði sem uppvaskari“

Afreksíþróttapar gefur út bók saman: „Ég byrjaði sem uppvaskari“
Bjarni Mark og Hulda Dags­dóttir gefa út bók saman

Hulda Dags­dóttir og Bjarni Mark eru íþrótta­kærustupar sem búa saman í Noregi og þurfa hugsa vel um mat­ar­ræðið vinnu sinnar vegna. 

Eins og gefur að skilja þá þurfa íþrótta­menn að hugsa vel um mat­ar­ræðið en það getur stundum verið erfitt að búa til holla og nær­inga­ríka rétti. Afrek­s­í­þróttap­arið Hulda Dags­dóttir og Bjarni Mark hefur nú ákveðið að deila sínum upp­á­halds upp­skriftum í nýrri mat­reiðslu­bók sem parið skrif­aði saman. 

„Bókin byrj­aði smá þannig að ég hafði ekki mikið að gera fyrstu mán­uð­ina eftir flutn­ing þar sem að það var erfitt fyrir mig að fá vinnu. Ég byrj­aði að pósta aðeins á Instagram og reyna að koma hug­mynd­unum mínum út. Svo um leið og ég fékk fulla vinnu og byrj­aði í hand­bolt­anum þá ein­hvern veg­inn fór tím­inn. Bókin er þess vegna búin að vera í vinnslu í rúmt ár, þar sem að við erum búin að vinna smá og smá í henni í einu til þess að gera hana ekki af fljót­færni,“ sagði Hulda í sam­tali við Mannlíf en Hulda sem spilar hand­bolta með lið­inu Rand­esund meðan Bjarni, kær­asti hennar, spilar knatt­spyrnu með lið­inu IK Start ásamt því að læra íþrótta­sál­fræði. Þau eru bæði afrek­s­í­þrótta­fólk en Bjarni hefur spilað þrjá leiki fyrir A-lands­lið karla og Hulda spilað marga lands­leiki fyrir yngri lands­lið kvenna í hand­bolta.

„Ég hef alltaf haft gaman af því að elda, og hef klár­lega fengið það frá pabba þar sem hann er besti kokk­ur­inn. En á þeim tíma sem ég bjó í Danmörku vann ég sem kokkur ásamt því að vera í fullu námi og spila hand­bolta. Ég byrj­aði sem upp­vask­ari, því það var eina starfið sem ég gat fengið á þeim tíma, og vann mig fljótt upp í kokka­starfið. Ég verð bara að segja að þetta var ótrú­lega skemmti­leg og fárán­leg til­viljun að hafa getað þetta. Á Mair’s, þar sem ég vann, fékk ég ennþá meiri áhuga á mat og bakstri og var alltaf að leika mér eitt­hvað heima í eld­hús­inu. Svo kynn­ist ég Bjarna og hann hafði þá, og ennþá, mik­inn áhuga á bakstri, sem hann fékk frá mömmu sinni, sem hann lýsir sem ofur­bak­ara,“ sagði Hulda en hún hefur aldrei lært neitt sem teng­ist mat­reiðslu og algjör­lega sjálf­lærð.

En af hverju að skrifa bók sem leggur svona mikla áherslu á nær­ing­ar­fræði?

„Í dag er mikið talað um „macros“ og íþrótta­fólk eða bara venju­legt fólk hefur meiri áhuga á mat­ar­ræði og nær­ing­ar­færði en það gerði. Vinkonur mínar frá PS. Árangri eru einmitt með nær­ing­ar­þjálfun, sem ég hef einmitt verið í, og mæli mikið með, og þar á maður að telja „macros“ yfir dag­inn, ss fit­una, kol­vetnin og prótín og fleira sem maður borðar og þá hefði ég haft full­komið not fyrir svona bók. En við viljum auð­vitað koma á fram­færi að bókin hentar öllum, og fyrst og fremst er mark­miðið að koma með hug­myndir af holl­ari val­kostum þegar kemur að bakstri og elda­mennsku. En fyrir þá sem að hafa áhuga og kannski það sem skilur hana að frá öðrum mat­reiðslu­bókum, er að bókin inni­heldur upp­skriftir sem henta vel fyrir fólk sem telur „macros“ eða vill vita nákvæm­lega hvað það setur ofan í sig. Upp­skrift­irnar inni­halda öll nær­ing­ar­gildi og kalor­íur í hverjum skammti, þannig að fólk getur auð­veld­lega lesið yfir það og séð hvað hentar að hverju sinni.“

En hver er upp­á­halds upp­skrift Hulda í bók­inni?

„Úff, það er erfitt að velja eina upp­skrift. Upp­á­halds mat­rétt­ur­inn hans Bjarna úr bók­inni er „Buffalo kjúklinga tend­ers og franskar“ og bakst­ur­inn er klár­lega „sæt­kart­öflu brownie“. Við eldum þessa rétti mjög mikið og eru þeir orðnir að dag­legu lífi. Ég elska fisk­rétt­inn, hann er kannski ekki sá girni­leg­asti en hann er „my go to“, og líka „creamy kjúklinga pasta­rétt­ur­inn“. Ég verð bara að segja tvo. Bakstur, er það klár­lega Banana kara­mellukakan, Bjarni fær bara að baka hana, hún er sturluð miðað við hvað hún er „holl“.“

„Við byrj­uðum frekar rólega í fyrra að prófa mis­mun­andi upp­skriftir og sjá hvað okkur fannst gott. Við hjálp­uð­umst mjög mikið að í eld­hús­inu en ég sá að mestu leiti um upp­setn­ingu, ljós­myndun og almennt að hlut­irnir litu vel út. Bjarni kom meira að bakstr­inum og ég meira að elda­mennsk­unni, en alltaf vorum við sam­ferða. Í byrjun, vorum við með mjög margar upp­skriftir og þurftum við því að velja og hafna til að sía út þær bestu og full­komna þær. Stundum þurftum við að elda sömu upp­skrift tvisvar til þrisvar til að ná henni eins og við vildum hafa hana. Þess vegna hefur þetta tekið svona langan tíma, settum okkur bara mark­mið að taka eina mál­tíð og einn bakstur í hverri viku þangað til að við kláruðum list­ann. Svo tók við að setja upp bók­ina, sem tók ekk­ert styttri tíma. Erum búin að vera vinna í að setja hana upp í hálft ár, „on og off“, enda nóg annað að gera.“

Hægt er að nálg­ast bók­ina í gegnum instagram-síður Bjarna og Huldu. Þá er Hulda einnig byrjuð að blogga en hægt er að nálg­ast bloggið hennar hér

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Menning

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Hrósar lýsingum Laxness á íslenskri náttúru og árstíðunum
Myndband
Menning

Luthers­son frum­sýnir blóð­uga ást­ar­sögu í eyði­mörk Kali­forníu

Menning

Sendu sím­ann í svefn­poka og fáðu smá frið

Menning

Ást, missir og barn­þrá í upp­seldri skáld­sögu Mar­grétar

Menning

Frá Rocky og Springsteen til aftöku í Sádi-Arabíu