Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Setti Prigozhin dauða sinn á svið? Fimm spurningar um meint andlát stríðsherrans

Setti Prigozhin dauða sinn á svið? Fimm spurningar um meint andlát stríðsherrans
Yevgeny Prigozhin Mynd: Trausti Hafsteinsson

Sögu­sagnir eru á kreiki um meint and­lát Wagner-stjórn­and­ans Yevgeny Prigozhin er einka­flug­vél í hans eigu hrap­aði nærri Moskvu á föstu­dag­inn en allir inn­an­borðs, 10 manns, lét­ust. En var Prigozhin um borð?

Hinn bann­færði stríðs­herra er sagður einn af þeim látnu en margir telja hann hafa verið á svoköll­uðum „dráps­lista“ Vla­dimirs Putins Rúss­lands­for­seta, eftir að Prigozhin gerði mis­heppn­aða valda­ránstil­raun fyrir tveimur mán­uðum síðan. Telegram-rásir tengdar stríðs­herr­anum til­kynntu and­lát hans á föstu­dags­kvöld, stuttu eftir að fréttir bár­ust af flug­hrap­inu.

Hvað olli slysinu?

Vitni heyrðu mik­inn hvell áður en þau sáu flug­vél­ina „falla af himnum ofan“ með miklum eld­glær­ingum. Ljós­myndir sýndu brenn­andi flug­vélaflakið á akri í Tver-umdæm­inu en svartur reyk­ur­inn sást í margra kíló­metra fjar­lægð.

Rúss­neskir sam­fé­lags­miðlar eru fullir af vanga­veltum um að dýrt vín sem var um borð hafi í raun verið dul­búnar sprengjur á meðan aðrir telja að flug­vélin hafi verið skotin niður af rúss­neska hernum. Putin hefur ekki enn gefið út yfir­lýs­ingu um málið.

Prigozhin, 62 ára, rudd­ist í átt að Moskvu ásamt mála­liða­her sínum í júní, til þess eins og hætta valda­dránið þegar aðeins 200 kíló­metrar voru eftir og snúa við, til að „hlífa rúss­nesku blóði“. Eftir þetta fór hann í útlegð í Belarús og hefur látið lítið fyrir sér farað síðan.

Þrátt fyrir að rúss­neskir emb­ætt­is­menn hafi til­kynnt um dauða Prigozhin, eru ýmsum spurn­ingum enn ósvarað. Hér eru fimm þeirra:

Hverjir voru um borð í flugvélinni?

Rúss­neskir emb­ætt­is­menn segja að Prigozhin hafi verið meðal þeirra tíu látnu í flak­inu en Alrík­is­flug­mála­stofnun Rúss­lands birti lista með nöfnum þeirra sem taldir hafa lát­ist í flug­vél­inni.

Hægri hönd Prigoszhin, Dmitry Utkin er einnig sagður meðal hinna látnu en hann er einn af stofn­endum Wagner-hóps­ins. Þá er Valeriy Chekalov, sem hefur áður sætt refsi­að­gerðum af Banda­ríkj­unum vegna tengsla hans við mála­liða­her­inn, verið nefndur sem einn af þremur flug­mönnum vél­ar­innar.

„Einka­flug­vél sem fljúga átti frá Moskvu til Sánkti Pét­urs­borg, hrap­aði til jarðar,“ sagði í rúss­neska rík­is­sjón­varp­inu TV Rossiya24. „Tíu lét­ust. Yevgeny Prigozhin var meðal far­þega.“

Hægt var að greina núm­erið 795 á flaki vél­ar­innar, sem passar við númer flug­vélar í eigu Prigozhin. Hins vegar hafa and­látin ekki feng­ist stað­fest ann­ars­staðar.

Var önnur flugvél á svæðinu?

Vitni segj­ast hafa séð aðra flug­vél sem teng­ist Wagner-hópnum, sikksakka yfir sama hér­aði, 96 kíló­metrum frá höf­uð­borg­inni. Og nú segja heim­ild­ar­menn nánir Prigozhin að þótt að flug­vélin sem hrap­aði á föstu­dag­inn hafi verið í eigu hans, flygi hann oft­ast með hinni flug­vél­inni.

Orðrómur er nú á kreiki um að þarna hafi Prigozhins falsað eigin dauða. Stríðs­herr­ann hafði snar­aukið öryggi sitt og látið lítið fyrir sér fara síðan hann fór í útlegð í Belarús.

Gæti Prigozhin hafa sett andlát sitt á svið?

Keir Giles, með­limur hug­veit­unnar Chatham House, var­aði fólk við hugs­an­legum blekk­ingum: „Það hefur verið gefið út að far­þegi að nafni Yevgeny Prigozhin hafi verið um borð í flug­vél­inni – en það er einnig vitað að fjöldi ein­stak­linga hafa breytt nafni sínu í Yevgeny Prigozhin, í til­raun til að fela slóð sína er hann ferð­ast. Við skulum ekki vera hissa ef hann poppar upp fljót­lega í mynd­skeiði frá Afríku.“

Hvað gerist næst?

Putin hefur ekki enn gefið út opin­bera yfir­lýs­ingu vegna atviks­ins og ekki er vitað hver næstu skref hans verða en í ljósi þess að flestir sem lét­ust í slys­inu eru taldir hafa verið hátt­settir Wagner-liðar, hefur ógnin sem stafar að for­seta­stól hans, minnkað til muna.

Mála­liðar úr röðum Wagner segj­ast nú und­ir­búa hefnd­ar­að­gerðir. Í til­kynn­ing frá Wagner, sem birt­ist í The Sun sagði: „Við segjum það beint út að okkur gruni að yfir­völd í Kreml, með Putin fremstan í flokki, hafi gert til­raun til að drepa hann!“ Bættu þeir við: „Ef dauði Prigozhin verður stað­festur, munum við skipu­leggja aðra göngu til Moskvu!“ Þá hafa vopn­aðir menn, sem segj­ast vera í Wagner-hópnum, deilt mynd­skeiði á net­inu þar sem þeir segja meðal ann­ars: „Næstu skref Wagner eru mikið rædd um þessar mundir. Við getum sagt ykkur eitt. Við erum að byrja, verið til­búin.“

Frétt þessi var unnin upp úr frétt The Mirror.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Heimur

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Heimur

Átta ára drengur skot­inn til bana

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi

Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco

Heimur

Dul­ar­fullt ákall á net­inu vekur ótta við óeirðir á Tenerife