Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Þúsundir á Ljósanótt – Gestir létu ekki veðrið trufla hátíðarskapið

Þúsundir á Ljósanótt – Gestir létu ekki veðrið trufla hátíðarskapið
MC Gauti var eitt stærsta númer kvölds­ins. Mynd: Omar Ricardo Rondon Guerrero.

Íbúar Reykja­nes­bæjar létu ekki aftaka­veður föstu­dags­kvölds aftra sér frá því að mæta til Árganga­göngu upp úr hádegi í gær, laug­ar­dag, og þramma undir lúðra­blæstri að hátíð­ar­svæði þar sem Kjartan Már Kjart­ans­son bæj­ar­stóri bauð gesti Ljósanætur vel­komna.

Glæsileg flug­elda­sýn­ing gær­kvölds­ins.

Dagskrá laug­ar­dags­ins fór að mestu fram sam­kvæmt áætlun en skipu­leggj­endur hátíð­ar­innar héldu þó áfram að hugsa í lausnum og barna­dag­skrá sem fyr­ir­huguð var utandyra var flutt til svo yngsta kyn­slóðin gæti sem best notið hennar. Þannig mættu hin geysi­vin­sælu Lára og Ljónsi hús­fylli barna í Stapa á laug­ar­dags­morgni og hoppukast­alar sem ekki tald­ist öruggt að hafa upp­blásna úti voru vel nýttir inn­an­dyra í Reykja­nes­höll.

Þúsundir voru svo saman komnar á stór­tón­leikum Ljósanætur í gær­kvöldi þar sem veð­urguð­irnir voru búnir að hrista úr sér mestu skap­vonsk­una og sýndu á sér spari­hlið­ina. Stemn­ingin á svæð­inu var gríð­ar­lega góð enda boðið upp á frá­bæra tón­leika sem einnig var útvarpað á Rás 2. Ljósin á Berginu, sem hátíðin dregur nafn sitt af, kvikn­uðu við mikil fagn­að­ar­læti í lok magn­aðrar flug­elda­sýn­ingar, og munu þau lýsa upp myrkasta skamm­degið í vetur og minna á sköp­un­ar­gleð­ina og kraft­inn í sam­fé­lag­inu sem krist­all­ast svo vel á Ljósa­nótt.

Frá tón­leikum gær­kvölds­ins.

Dagskrá Ljósanætur heldur áfram í dag með sýn­ingum, leið­sögnum í lista­safni og byggða­safni og ýmsum tón­leikum. Meðal ann­ars fer fram hátíð í Höfnum, sem er eitt hverfa Reykja­nes­bæjar, og því nóg um að vera fyrir á fjórða og síð­asta degi Ljósanætur sem var um margt óvenju­leg í ár og sýndi í raun hvaða sess hátíðin skipar í hjörtum íbúa sem neit­uðu að láta í minni­pok­ann fyrir nátt­úru­öfl­unum og héldu sína Ljósa­nótt með stæl.

Mikil stemmn­ing var á tón­leik­unum í gær.
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Menning

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Hrósar lýsingum Laxness á íslenskri náttúru og árstíðunum
Myndband
Menning

Luthers­son frum­sýnir blóð­uga ást­ar­sögu í eyði­mörk Kali­forníu

Menning

Sendu sím­ann í svefn­poka og fáðu smá frið

Menning

Ást, missir og barn­þrá í upp­seldri skáld­sögu Mar­grétar

Menning

Frá Rocky og Springsteen til aftöku í Sádi-Arabíu