Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Hannes gefur út yfirlýsingu vegna fordómamálsins: „Þetta var svo sem ekkert stórmál“

Hannes gefur út yfirlýsingu vegna fordómamálsins: „Þetta var svo sem ekkert stórmál“
Hannes Hólm­steinn Giss­ur­ar­son. Mynd: Facebook.

Hannes Hólm­steinn Giss­ur­ar­son gaf út yfir­lýs­ingu um meinta for­dóma hans í garð múslima.

Hannes Hólm­steinn hefur verið harð­lega gagn­rýndur fyrir meinta for­dóma sem hann á að hafa sýnt á Kefla­vík­ur­flug­velli og sett í fram­haldi fram ósmekk­legt grín á Facebook í fram­hald­inu. Þá sak­aði hann starfs­mann flug­vall­ar­ins um brot á trún­aði.

Sjá nánar: Hannes Hólm­steinn sak­aði múslíma um þjófnað í Leifs­stöð: „Þú öskr­aðir á tvær litlar stelpur“

Sjá nánar: Hannes Hólm­steinn varar við net­miðlum: „Gæta sín á að sog­ast ekki inn í ein­hver vit­leys­is­mál“

Hægt er að lesa til­kynn­ingu Hannesar hér fyrir neðan en hún birt­ist á blogg­síðu hans:

Við mig hafði sam­band frétta­maður Vísis og spurði mig nokk­urra spurn­inga. Hér eru þær og svörin með:

Hyggstu beita þér eitt­hvað frekar í mál­inu, hef­urðu til dæmis rætt við lög­reglu vegna máls­ins?

Nei. Þetta var svo sem ekk­ert stór­mál. Mér finnst hins vegar leið­in­legt, hvernig blaða­kona á Vísi gabb­aði óreynda unga stúlku, sem starfar á Leifs­stöð, til að gefa alls konar yfir­lýs­ingar, sem voru alls ekki við hæfi, að starfs­fólk gæfi. En ég óska stúlkunni alls góðs og er viss um, að hún læri fram­vegis að gæta betur orða sinna.

Svo virð­ist vera sem umræðan á Facebook þræði þínum hafi orðið afar hörð, þar bar meðal ann­ars á líf­láts­hót­unum í þinn garð vegna máls­ins. Hefurðu áhyggjur af slíku? Ætlarðu að gera eitt­hvað í því, ræða við lög­regl­una?

Ég vissi ekki um neinar líf­láts­hót­anir. Ég les satt að segja fæst af þessu og hef engar áhyggjur af því. Íslend­ingar voru papp­írs­vík­ingar að fornu og nú eru þeir orðnir netví­k­ingar, skrifa dig­ur­barka­legar færslur. Enginn verður með orðum veg­inn. Mér sýn­ist nú raunar líka, að lög­reglan hafi nóg að gera við að sinna and­stæð­ingum hval­veiða.

Getur verið að þú hafir hlaupið á þig í þessu máli – tel­urðu alveg víst að stelp­urnar hafi ekki tekið tösk­una þína fyrir slysni? Var hún svipuð þeirra tösku?

Nei, ég tel ekki, að svo sé. Hefði taskan mín verið svipuð ein­hverri tösku þeirra, hefði fólkið strax séð, að það var með tvær töskur, en ekki eina. Þetta voru ekki inn­rit­aðar töskur af færi­band­inu, sem menn geta auð­veld­lega villst á, heldur gerð­ist þetta í Frí­höfn­inni. Og þegar ég sagð­ist eiga tösk­una, þrætti fólkið fyrst, en afhenti mér hana síðan.

Nú birt­irðu Facebook færslu í gær­kvöldi með mynd úr mat­ar­boði og skrif­aðir „Engir múslímar hér í kvöld.“ Ein­hverjir gætu talið það vera stað­fest­ingu á því að þú sért hald­inn for­dómum í garð múslíma, hvað finnst þér um það og að mynd af færsl­unni sé í dreif­ingu? Hvers vegna tókstu hana úr birt­ingu?

Þetta átti nú að vera gam­an­semi. En fólkið, sem var með mér, vildi auð­vitað og skilj­an­lega ekki bland­ast inn í þetta mál, sem er komið langt fram úr sjálfu sér. Ég tók mynd­ina úr birt­ingu af til­lits­semi við það. Annars get ég sagt, að ég tel, að dæma eigi menn af verkum þeirra, en ekki af kyn­þætti þeirra, trú­ar­brögðum, stétt, kyni, kyn­hneigð, auði eða völdum. Það er rangt að alhæfa um hópa, og auð­vitað eru jafn­margir góðir menn og miður góðir í röðum þess eins millj­arðs múslima, sem byggja jarð­ar­kringl­una, og í öðrum trú­ar­flokkum. Ég skal hins vegar játa, að ég er mjög and­vígur öfgamúslimum, sem grýta konur til bana og fleygja sam­kyn­hneigðum ein­stak­lingum út um glugga í háhýsum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi