Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Hannes Hólmsteinn sakaði múslíma um þjófnað í Leifsstöð: „Þú öskraðir á tvær litlar stelpur“

Hannes Hólmsteinn Gissurarson.
Hannes Hólm­steinn Giss­ur­ar­son. Mynd: Facebook.

Hannes Hólmsteinn Gissurarson, prófessor á eftir­launum, sakaði konu um tösku­þjófnað í Leifsstöð þegar hann kom heim frá Portugal í nótt.

„Það skyggði dálitið á ánægju­lega heimkomu, að reynt var að ræna töskunni minni í Fríhöfninni. Kona klædd í múslima­búning (með slæðu og í síðum kufli) tók hana, á meðan ég var að versla. Það var talsvert stímabrak að endur­heimta hana,“ skrifar Hannes Hólmsteinn á Facebook. Hann kvartar undan því að enginn hafi viljað aðstoða hann við kalla til lögreglu í þeim tilgangi að fá eign sína aftur.

Frá Leifssöð. Myndin teng­ist ekki upp­nám­inu.

„Allir horfðu á mig eins og ég var eitthvað skrýtinn. Þessi kona hefur síðan eflaust spígsporað inn í landið eins og ekkert væri. Óskaplega hlýtur þetta fólk að hlæja í laumi yfir Íslendingum,“ skrifar Hannes Hólmsteinn í nótt og uppskar velþóknun nokkurra sem merktu við færslu hans.

„Þú ert Íslend­ingum til skammar“

En það voru ekki allir ánægðir með frásögn hans. Rúna Mjöll Helga­dóttir, starfs­maður Gerða­skóla, setti inn harðorða athugasemd við færslu Hannesar. Hún sagðist hafa verið vitni að atburðum sem hafi verið með allt öðrum hætti en prófessorinn lýsti.„Hæ ég var þarna þegar þetta gerðist og þú ert ekki að segja rétt frá sögunni þú öskraðir á tvær litlar stelpur að þær væru að stela töskunni( þær rugluðust á tösku eins og gerist oft uppi fríhöfn) svo kom mamma þeirra og þú öskraðir á hana, þú endaðir svo á því að öskra á greyið stelpurnar að það ætti ekki að hleypa þeim inn í landið,“ skrifar Rúna.„Þær sögðu við þig að þær væru fæddar á Íslandi og með íslenskan ríkis­borgararétt, svo fórstu og öskraðir á alla starfs­menn og tuðaðir í starfs­mönnum að það ætti ekki að hleypa svona fólki inn í landið. Þessar stelpur sem þú öskraðir á voru börn ein í kringum 14 ára og hin í kringum 6 ára svo kom konan sem þú ert að tala um. Það var ekki vesen að fá töskuna til baka þær gáfu þér hana strax. Ástæðan af hverju allir horfðu svona á þig er útaf þú ert Íslendingum til skammar. Ömurlegt að fólk eins og þú skemmir fyrir öðrum,“ skrifar Rúna Mjöll í athugasemd sinni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

„Afleiðing þeirrar stefnu sem er boðuð verður að öðru óbreyttu minni fjárfesting, hægari vöxtur, færri spennandi störf og lakari lífskjarasókn.“

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim