Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Ferðin frá myrkri til laglínu – Upprisa Gunnars Inga

Ferðin frá myrkri til laglínu – Upprisa Gunnars Inga

Töfrar tón­listar end­ur­spegla oft sál­ar­líf lista­manna; flæða yfir hæðir og lægðir sál­ar­innar og fanga tungu­mál hjart­ans sem engin landa­mæri þekkir. Með sanni má segja að Gunnar Ingi, tón­skáld sem kemur fram sem tón­list­ar­mað­ur­inn Major Pink sé á örri upp­leið veiti ein­læga og óslíp­aða inn­sýn í eigin veg­ferð að föð­ur­hlut­verk­inu, bata frá virkri fíkn og loks, þá hjart­næmu sögu sem býr að baki tit­il­lagi nýút­kom­innar plötu sem ber heitið Nothing but Love.

Textinn fædd­ist við yfir­þyrm­andi ást og ótta á sömu stundu

„Ég samdi text­ann að tit­il­lagi plöt­unnar sömu nótt og ég komst að því að ég væri að verða faðir,“ segir Gunnar og lýsir því hvernig lífið breytt­ist í einni andrá við frétt­irnar. „Skyndi­lega sá ég lífið í öðru ljósi. Ég fékk þessa yfir­gnæf­andi til­finn­ingu af ást en á sama tíma fyllt­ist ég af ótta. Hvað ef barnið færi sömu leið og ég? Hvað verður um barnið ef hann eða hún verður eins og ég? Því ég var ekki í lagi á þessum tíma. Árið var 2018 og síðan þá hef ég þurft að leita mér hjálpar á hverju ári, inni á stofnun,“ heldur ungi tón­list­ar­mað­ur­inn ein­lægur áfram. „Ég hef farið tvisvar sinnum inn á Vog og áfram inn á Vík á vegum SÁÁ, ég fór í þriggja mán­aða með­ferð hjá Hlað­gerð­ar­koti Sam­hjálpar og nú síð­ast fór ég í sex mán­aða með­ferð á Krýsuvík, eftir að hafa flúið til Eist­lands í þeirri von að sjúk­dóm­ur­inn myndi ekki elta mig þangað, en fíknin náði mér líka þar.“

Hefur alltaf sungið lagið fyrir son­inn þegar hann svæfir

Textinn sem Gunnar samdi fyrir þá ófæddan son sinn hefur fylgt þeim feðgum frá fyrstu stundu, lag­línan var alltaf til staðar und­ir­spilið og til­finn­ingin í lag­inu var hann í þó nokkurn tíma að fanga, þó ungi tón­list­ar­mað­ur­inn hafi sungið lagið fyrir son sinn í hvert ein­asta sinn sem hann svæfði barnið. „Lagið heitir „Nothing but Love og er tit­il­lag sam­nefndrar plötu, en sonur minn kallar tón­verkið „Villa lagið“. Þó ég hafi alltaf sungið lagið fyrir son minn þegar ég hef verið að svæfa hann, á þeim fimm árum síðan ég samdi text­ann, gat ég ekki komið und­ir­spil­inu saman. Ég reyndi oft að setj­ast niður en ég var í of miklu and­legu ójafn­vægi, hvort sem ég var edrú eða ekki. Þegar ég var edrú þá leið mér of illa og þegar ég var undir áhrifum þá var ég of dof­inn.“

Opinn með­ferð­ar­faðmur Krýsu­víkur tendraði melódískan bata

Tón­verkið Nothing but Love krafð­ist þess að Gunnar skil­greindi eigin sárs­auka, horfð­ist í augu við eigin van­mátt og fyndi innra jafn­vægi. „Ég þurfti fyrst að læra af eigin mis­tökum til að geta skilið mína eigin tón­list almenni­lega. Þannig varð end­ur­tekið lífs­þema Gunnars sem fólgið var í leit að lausn við virkri fíkn. Að lokum var opinn faðmur krýsu­víkur sá neisti sem kveikti melódískan loga batans og fæddi loks af sér nýút­komna tón­list Major Pink.

Fékk leyfi til að breyta her­berg­inu í örsmátt hljóð­ver

Þegar svik­ulli hækju hug­breyt­andi efna loks sleppti í sex mán­aða með­ferð á Krýsuvík, flæddu lag­lín­urnar loks fram. „Ég er svo þakk­látur Krýsuvík, því ég fékk að breyta litla her­berg­inu mínu þar í lítið hljóð­ver. Þarna fékk ég loks að æfa mig í þeirri list að skapa tón­list alls­gáður, án nokk­urra hug­breyt­andi efna og ég fann loks­ins að lagið kom fram – alveg frá hjart­anu, meðan ég var í mínu allra besta jafn­vægi.“

Þakk­látur fyrir allar með­ferð­ar­stöðvar á Íslandi

Gunnar er nú útskrif­aður úr með­ferð og hefur verið edrú í átta mán­uði sam­fleytt. „Þetta er lengsti tími sem ég hef nokkru sinni  náð,“ segir Gunnar og þakk­lætið leynir sér ekki. „Í dag snýst líf mitt um að vera góður faðir og að hjálpa þeim sem hafa ratað ranga leið í líf­inu að snúa við blað­inu. Ég er svo þakk­látur fyrir allar með­ferð­ar­stöðvar lands­ins, ég svo þakk­látur öllu því góða fólki sem þar starfar og ég er svo þakk­látur með­ferð­ar­systk­inum mínum. SÁÁ, Hlað­gerð­ar­koti og Krýsuvík færðu syni mínum pabba sinn aftur og færðu for­eldrum mínum son sinn aftur.“

„Ég elska þig líka, pabbi“

Gunnar segir að þó fyrst og fremst sé hann edrú fyrir eigin lífs­ham­ingju sé ómet­an­legt að geta verið til staðar með öðrum hætti í dag, en áður var, meðan hann glímdi enn við virka neyslu. „Ég get loks veitt syni mínum þá skil­yrð­is­lausu ást sem ég skrif­aði um og samdi á sínum tíma, en skildi ekki sjálfur á þeim tíma sem text­inn fædd­ist og rús­ínan í pylsu­end­anum í lífi mínu eru orðin sem ég heyri þegar ég sé son minn brosa til mín og segja – Ég elska þig líka, pabbi.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Menning

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Hrósar lýsingum Laxness á íslenskri náttúru og árstíðunum
Myndband
Menning

Luthers­son frum­sýnir blóð­uga ást­ar­sögu í eyði­mörk Kali­forníu

Menning

Sendu sím­ann í svefn­poka og fáðu smá frið

Menning

Ást, missir og barn­þrá í upp­seldri skáld­sögu Mar­grétar

Menning

Frá Rocky og Springsteen til aftöku í Sádi-Arabíu