Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Enn ein kenningin um mögulegt gos – Farinn að leita að nafni á væntanlegri eyju

Enn ein kenningin um mögulegt gos – Farinn að leita að nafni á væntanlegri eyju
Eldgosið Mera­dölum Mynd: vefstreymi-skjáskot

Enn ein kenn­ingin er komin fram um mögu­legt eld­gos á Grind­ar­vík­ur­svæð­inu en sitti sýn­ist hverjum.

Nýjasta kenn­ingin kemur frá Haraldi Sig­urðs­syni eld­fjalla­fræð­ingi en hún er sú að ef eld­gos verður á næstu dögum, muni það verða úti í sjó, suð­vestur af Grinda­vík. Aðeins eru liðnir fimm dagar frá því að Magnús Tumi Guð­munds­son, pró­fessor í jarð­eðl­is­fræði sagði að líkur á gosi í sjó hefðu minnkað. Annað virð­ist vera komið upp á ten­ingin, miðað við blogg­færslu Haraldar eld­fjalla­fræð­ings. Segir hann þó að þrýs­ingur kvik­unnar sé ekki nægi­lega mik­ill til þess að hún komi upp á yfir­borðið. Að hans sögn er kvikan það eðl­is­þung að hún mun frekar flæða til hliðar en upp á yfir­borðið.

Eyja rís við Grindavík

Haraldur er kom­inn það langt í kenn­ingu sinni að hann er far­inn að leita að nafni á vænt­an­legu eyj­una.

„Hún [kvik­an] vill bara fara í syll­ur eða ganga og við vit­um að það er gang­ur þarna und­ir. Hann nær niður í 8 km og efri part­ur­inn af hon­um er kannski kom­inn í hálf­an kíló­metra eða einn kíló­metra frá yf­ir­borði. Þessi gang­ur myndi helst vilja fara til hliðar. Hann á leið í gegn­um sprung­urn­ar sem urðu í fyrri gos­um,“ seg­ir hann.

„Ef gang­ur­inn er virk­ur og er að mjaka sér til suð­urs – við sjá­um að það eru skjálft­ar sem ná al­veg und­ir hafið, rétt fyr­ir sunn­an Grinda­vík – væri eðli­leg­ast ef hún myndi renna til hliðar og út í þetta kerfi suð­vest­an við bæ­inn,“ seg­ir hann og bæt­ir við að þannig myndi ný eyja mynd­ast sunn­an Grinda­vík­ur.

Um síð­ustu helgi velti Haraldur upp þess­ari sömu kviku­hreyf­ingum á bloggi sínu og spurði þá hvað eyjan ætti að heita.

Haraldur skoð­aði nýlegar loft­myndir af Grinda­vík í vik­unni og þá þá eftir tveimur sprungum sem liggja sam­síða rétt vestur af Grinda­vík en um 200 metrar eru á milli sprungn­anna. Aukreit­ist skoð­aði eld­fjalla­fræð­ing­ur­inn eldri loft­myndir þar sem sjá má sprung­urnar þar sem íbúa­byggð er nú.

„Við sjá­um það á loft­mynd­um am­er­íska hers­ins frá 1954 og þar er þetta greini­legt. En hrepp­stjór­inn hef­ur ekk­ert verið að velta þessu fyr­ir sér á sín­um tíma. Þetta voru bara gaml­ar sprung­ur og eng­in ástæða fyr­ir þá að vera velta því fyr­ir sér. Það var bara byggt ofan á þetta. Svona var bara hug­ar­farið. En núna er þetta dá­lítið meira vanda­mál,“ seg­ir hann.

Gögn og sagan benda til annars

Mannlíf ræddi við Magnús Tuma Guð­munds­son, pró­fessor við jarð­eðl­is­fræði, um hug­myndir Haraldar. „Þær upp­lýs­ingar sem komið hafa fram á síð­ustu sól­ar­hringum, benda ekki til þess að það sé nein umtals­verð þennsla undan strönd­inni. Og að öllum lík­indum er sá gangur sem mynd­að­ist þar, storkn­aður. Þannig að á grund­velli þeirra gagna sem menn sjá, eru líkur á að gos nái út í sjó, við núver­andi aðstæður, litlar. Það er alls ekki hægt að úti­loka það en þær eru litlar.“

Magnús Tumi segir að auk þess að líta til gagn­anna þegar meta á líkur á gosi í sjónum, þurfi að skoða sög­una. „Það eru aflög­un­ar­gögnin sem við lítum til, það eru jarð­skjálfta­gögnin og líka sagan. Það hafa komið fullt af gosum á síð­ustu 15. þús­und árum en ekk­ert þeirra hefur náð út í sjó á þessu svæði eða svæð­inu þarna austur af. Og það er senni­lega góð ástæða fyrir því, vegna þess að þarna er gliðn­unin. Þarna eru kraftar sem eru að toga í sundur landið og hafa myndað landið sem við búum á. En þarna erum við komin í flek­ann sem er að fara suð-austur, Evr­asíuflek­inn og það er bara ekki spenna til að toga bergið í sundur. Þess vegna nær kvikan ekki upp á yfir­borðið þar. Þannig að sagan og afleið­ing­ar­gögnin sem við höfum núna, mæla gegn því, miðað við núver­andi aðstæður, að það verði gos í sjó.“

Morg­un­blaðið sagði frá blogg­færslu Haraldar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Fjarlægja þurfti smágirni og hluta ristils úr farþega eftir áreksturinn
Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag