Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Ísraelskir hermenn sagðir hafa tekið 11 karlmenn af lífi fyrir framan börn þeirra og konur

Ísraelskir hermenn sagðir hafa tekið 11 karlmenn af lífi fyrir framan börn þeirra og konur
Ísra­elskir her­menn Mynd: Lubbi

Mann­rétt­inda­skrif­stofa Sam­ein­uðu þjóð­anna kallar eftir sjálf­stæðri rann­sókn á ásök­unum um aftöku ísra­el­skra her­manna á að minnsta kosti 11 karl­mönnum á Gaza en hinn meinti verkn­aður kallar mann­rétt­inda­skrif­stofan „mögu­legan stríðs­glæp.“

„Ísraelsk yfir­völd þurfa að setja af stað sjálf­stæða rann­sókn undir eins, ítar­lega og skil­virka rann­sókn á þessum ásök­unum og ef þær eru á rökum reistar verður að draga þá sem bera ábyrgð­ina fyrir rétt og gera ráð­staf­anir til að koma í veg fyrir að slík alvar­leg brot end­ur­taki sig,“ segir í yfir­lýs­ingu frá skrif­stofu mann­rétt­inda­stjóra Sam­ein­uðu þjóð­anna (OHCHR) sem send var út á mið­viku­dag­inn.

Al Jazeera frétta­stofan ræddi við nokkur vitni að árásinni á þriðju­dag­inn, þar sem ísra­elskir her­menn eru sagðir hafa umkringt og ráð­ist inn í íbúð­ar­hús, farið hæð til hæðar til að aðskilja menn­ina frá kon­unum og börnum og síðan skotið 11 mann­anna til bana fyrir framan fjöl­skyldu­með­limi þeirra. Menn­irnir voru á milli tví­tugs og þrí­tugs, að sögn eft­ir­lif­enda.

„Þeir sáu okkur, menn og konur þeirra og börn. Mágur minn reyndi að tala og útskýra að allir í hús­inu væri óbreyttir borg­arar, en þeir skutu hann til bana,“ sagði einn eft­ir­lif­andi við Al Jazeera um árás­ina á fjöl­skyldur sem sótt höfðu skjól í al-Adwa bygg­ing­unni í Remal-hverf­inu í Gaza-borg.

Her­menn­irnir „þröngv­uðu sér inn á hvert heim­ili, drápu menn­ina og hand­tóku kon­urnar og börnin. Við vitum ekki hvar þau eru. Þeir gerðu það sama á hverri hæð. Öllum konum var safnað saman í einu her­bergi. Þegar þeir komu til okkar á sjöttu hæð fóru þeir að skjóta alla karl­menn­ina,“ sagði kona sem var vitni og bætti við að tengda­faðir hennar og sonur hafi verið skotnir og drepnir sam­stundis.

Eft­ir­lif­andi nokkur sagði einnig að ísrelskir her­menn hefðu líka ráð­ist á konur og börn eftir að hafa skipað þeim að fara inn í her­bergi í íbúð­ar­blokk­inni, sem einnig er kölluð Annan bygg­ingin.

„Ísra­elskir her­menn söfn­uðu saman öllum kon­unum í eitt her­bergi, hentu þremu hand­sprengjum á okkur og skutu síðan úr vél­byssum sínum á okkur,“ sagði særð kona í sam­tali við Al Jazeera.

„Ég fékk skot í hönd­ina, dóttir mín fékk skot í höf­uðið, yngri dóttir mín var myrt og sonur minn er blindur. Maðurinn minn var tek­inn af lífi með köldu blóði. Allar aðrar dætur mínar hlutu alvar­lega áverka, bein­brot og opin sár. Við urðum öll fyrir byssu­kúlum eða sprengju­brotum,“ bætti hún við.

Tamer Qarmout, lektor við Doha Institute for Graduate Studies, fagn­aði ákalli Sam­ein­uðu þjóð­anna um rann­sókn á hinum „ólög­mætu morðum“ en sagði Al Jazeera að lyk­il­at­riðið sé hvernig slíkar rann­sóknir verði fram­kvæmdar.

Engum þeirra aðila sem gætu rann­sakað meinta glæpi Ísraela gegn Palest­ínu­mönnum er sem stendur hleypt inn á Gaza-svæðið, sagði Qarmout við Al Jazeera.

Önnur vitni sögðu að menn­irnir hafi verið neyddir til að afklæð­ast áður en þeir voru skotnir og einn maður sagði að „jafn­vel ungum drengjum hafi ekki verið hlíft. Þeir urðu allir fyrir barð­inu á þeim og barðir. Þeir bein­brotn­uðu og eru á sjúkra­húsi.“

Engar athuga­semdir hafa borist frá ísra­elska hernum um árás­ina.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Heimur

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Heimur

Átta ára drengur skot­inn til bana

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi

Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco

Heimur

Dul­ar­fullt ákall á net­inu vekur ótta við óeirðir á Tenerife