Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Frá Nýja-Sjálandi til Íslands: „Ég eldaði fyrir prinsana Harry og William“

Frá Nýja-Sjálandi til Íslands: „Ég eldaði fyrir prinsana Harry og William“
Glenn Moyle er stofn­andi Ambros­ial Kitchen. Mynd/aðsend

Glenn Moyle er ver­ald­ar­vanur kokkur með víð­tæka reynslu úr veit­inga­geir­anum. Hann starfar sem yfir­kokkur og er stofn­andi Ambros­ial Kitchen ehf. „Umfang starf­sem­innar jókst veru­lega og í dag sinnum við dag­lega um 700 manns.“ Í kokka­kynn­ingu Víns og matar kynn­umst við starf­andi veit­inga­mönnum á Íslandi, fáum að skyggn­ast bak við tjöldin hjá þeim.

Hvað starfar þú?

„Ég er yfir­kokkur og stofn­andi Ambros­ial Kitchen ehf.“

Í hverju felst menntun þín?

„Mat­reiðslu, vín­þekk­ingu og ferða­mennsku í Wellington á Nýja-Sjálandi. Síðan lagði ég land undir fót og starf­aði víða um lönd. Ég hef unnið á Englandi, í Skotlandi, Danmörku, Grikk­landi, Noregi, Hondúras, Hollandi, Aust­ur­ríki, Ástralíu, Nýja-Sjálandi og Íslandi.“

Hvar mennt­aðir þú þig?

„Ég hóf menntun mína í Wellington á Nýja-Sjálandi og bætti síðan við hana í veit­inga­brans­anum víða um heim.“

Hve lengi hefur þú starfað í veit­inga­geir­anum?

„Ég hef verið í þessum bransa í 30 ár.“

Hver er bak­grunnur þinn?

„Ég er frá Nýja-Sjálandi og bjó þar til 21 árs ald­urs. Þá fór ég til Hollands þar sem ég spil­aði vatns­póló í hálft ár. Þaðan lá leiðin til London og þá hófst veg­ferð mín í matseld á heims­vísu sem varð síðar að ferða­lagi fram og til baka um heim­inn.
Heim­ur­inn varð leik­svæði mitt og matseldin gerði mér kleift að ferð­ast. Ég hef unnið með allra þjóða kvik­indum, unnið á veit­inga­stöðum þar sem eng­inn tal­aði ensku, unnið á háklassa veit­inga­stöðum, eldað götu­mat, eldað fyrir kónga­fólk, séð um matseld á stórum við­burðum undir beru lofti, á litlum, kósí „a la carte“-veit­inga­húsum. Ég held að ég geti full­yrt með góðri sam­visku að ég hafi hakað í mörg ólík box á þessu ferða­lagi mínu.

Í London, til dæmis, vann ég við við­burða­veit­ingar og var í teymi sem sá um við­burði undir beru lofti þar sem saman komu allt frá 200 manns og upp í 2.500 manns á hverju kvöldi.
Einnig sá ég um veit­ingar á breska grand prix, sá um bröns (dög­urð) fyrir 1.200 dag­lega þá helgi sem keppnin stóð yfir. Ég er ekki að ljúga þegar ég segi að það hafi verið áskorun að gera eggja­hræru fyrir 1.200 manns í pop up-eld­húsi.“

Hvað varð til þess að þú fórst þessa leið?

„Ég vann á vín­ekru á Nýja-Sjálandi þegar ég var 18 ára, og ég vann sem þjónn. Síðan var ég færður inn í eld­húsið og lík­aði það svo vel að ég ákvað að feta þá stigu áfram. Á hverjum stað sem ég vann hitti ég ótal áhuga­verða og skap­andi ein­stak­linga. Mér fannst sem ég ætti heima í eld­hús­inu, í hit­anum og stress­inu og erl­inum sem fylgir vinnu á slíkum stað … orku­skotið sem maður finnur fyrir meðan á lát­unum stendur og til­finn­ingin eftir á, þegar maður veit að allt hefur gengið upp.“

Hverjir hafa verið hápunkt­arnir hjá þér í þess­ari vinnu?

„Ég eld­aði fyrir prinsana Harry og William, Fergie prinsessu og einnig Phillip heit­inn prins. Það átti sér allt stað í London. Harry og William komu á veit­inga­stað í Fulham, þar sem ég var yfir­kokkur … það var stress og ánægju­lega spenna í senn, það var mikið undir, því allt þurfti að stand­ast 100 pró­sent.

Ég tók þátt í opnun tveggja veit­inga­staða sem yfir­kokkur, ann­ars vegar í London og hins vegar í Noregi.
Hvað sem þessu öllu líður tel ég að eitt mesta afrek mitt hafi verið að móta lið úr hópi fólks alls staðar að úr heim­inum, með ólíkan bak­grunn, og að láta allt ganga eins og vel smurða vél. Fyr­ir­tæki mitt í dag end­ur­speglar það, við erum svo sam­hent og fáum veru­lega mikið út úr því að umgang­ast og vinna saman.“

Með hvaða veit­inga­stað mælir þú?

„Ég hef alltaf fengið góðan mat á Sumac Grill+Drinks og Fiski­fé­lag­inu hérna á Íslandi. Það eru upp­á­haldsveit­inga­staðir mínir hér. En það sem í mestu upp­á­haldi hjá mér úti í hinum stóra heimi, er að borða á ekta Churrascaria-veit­inga­stað í Brasilíu, eða ein­hverjum frá­bærum sushi-stað í Tókýó.“

Hvað ertu að bar­dúsa þessa dag­ana?

„Ég kom á lagg­irnar nýrri veit­inga­þjón­ustu, Glenns Kitchen, árið 2021 í Katrín­ar­túni 4. Til að byrja með höfðum við um 50 dag­lega við­skipta­vini, en fjöld­inn jókst fljót­lega í um 200 við­skipta­vini á dag. Við­skipta­vinir okkar voru hvort tveggja úr fyr­ir­tækjum í bygg­ing­unni og einnig nær­liggj­andi bygg­ingum. Síðan hófum við að senda mat í fyr­ir­tæki í nágrenn­inu.

Ég man hve stolt við vorum þegar við náðum 100 við­skipta­vina mark­inu og þá fékk ég tæki­færi til að færa út kví­arnar og opna annan stað, við Dalveg 30 í Kópavogi, þar sem Deloittes er til húsa á meðal ann­arra fyr­ir­tækja.

Þar opn­uðum við í sept­em­ber 2023 og umfang starf­sem­innar jókst veru­lega og núna sinnum við dag­lega um 700 manns, frá þessum tveimur stöðum; Katrín­ar­túni og Dalvegi. Þá breyttum viöð nafni fyr­ir­tæk­is­ins úr Glenns Kitchen í Ambros­ial Kitchen. Ambros­ial merkir fæða og ilmur guð­anna og einnig er í heit­inu skírskotun til íslenska orðs­ins „að brosa“ … þannig að segja má að við bjóðum upp á guð­dóm­legan mat með bros á vör.

Við sinnum um 30 fyr­ir­tækjum og reiknum með ein­hverri fjölgun í febr­úar og mars, en síðan munum við staldra við og ein­beita okkur að þeim við­skipta­vinum sem við höfum í stað þess að fjölga þeim enn frekar.

Vöxt­ur­inn hefur verið svo ör að það er gott að taka stöðu­tékk og hinkra aðeins við í nokkra mán­uði. Þannig getum við full­komnað það sem við bjóðum upp á, áður en við færum okkur upp á næsta stig.

Í upp­hafi var ég einn ásamt aðstoð­ar­manni í hluta­starfi. Núna erum við tólf og komum hvaðanæva að úr heim­inum. Ég er mjög stoltur af því – öll höfum við ólíkan bak­grunn og höfum til að bera ólíka hæfi­leika.“

Heima­smíða í mótun: www.ambrosialkitchen.is
Facebook: www.facebook.com/ambrosialkitchen.is

Uppskrift

Aðspurður hvort hann vilji deila með les­endum eft­ir­læt­is­upp­skrift­inni sinni, segir Glenn:

„Ástæðan fyrir því að þessi kaka er valin er sú að mamma bak­aði hana af og til þegar ég var krakki. Hún er ein af þessum góðu minn­ingum sem maður á og sem situr í manni alla ævi. Ég trúði ekki að eitt­hvað gæti bragð­ast svo vel. Kökuna baka ég af og til í Ambros­ial Kitchen.
Mig minnir að kakan heiti Millj­óna­mær­inga­brauð, vegna þess að þegar þú ert búin með eina sneið þá langar þig í milljón í við­bót.


Upp­skriftir og ljós­myndir af réttum Glenns finnur þú í vef­út­gáfu Víns og matar hér að neðan:

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Mannlífið

Myndir
Mannlífið

Novasvellið rís á Ing­ólfs­torgi

Jólin nálgast óðfluga
Mannlífið

Opn­un­ar­veisla Bryggju­húss­ins að hefj­ast

Mannlífið

Mæður sem taka sjálfur eiga dætur sem vilja frekar fegr­un­ar­að­gerðir

Mannlífið

Hvers vegna eru börn oft að segja þessa setn­ingu?

Mannlífið

Bæj­ar­há­tíðin Í tún­inu heima stendur með miklum blóma í Mos­fellsbæ

Mannlífið

Bangsa­fé­lagið heldur upp á afmæli með stór­há­tíð og nýrri keppni