Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Hrafnhildur skilar þyngdarskömminni: „Þetta er bæði sorglegt og skaðlegt“

Hrafnhildur skilar þyngdarskömminni: „Þetta er bæði sorglegt og skaðlegt“
World Class er vin­sæl lík­ams­rækt­ar­stöð – Myndin teng­ist frétt­inni ekki beint

Í merki­legum pistli skrifar Hrafn­hildur Sig­mars­dóttir um upp­lifun sína á þyngd­ar­skömm sem konur verða fyrir í sam­fé­lag­inu.

Í pistl­inum segir Hrafn­hildur frá því þegar hún var stödd í bún­ings­klefa fyrir stuttu með vin­konu sinni. Þegar Hrafn­hildur stendur þar nakin fyrir framan vin­konu sína segir vin­konan við hana hvað hún líti vel út og hló Hrafn­hildur vand­ræða­lega í fram­hald­inu.

„Ég sá út undan mér að nokkrar konur veittu sam­tali okkar eft­ir­tekt. „Já, takk,“ sagði ég og hélt áfram að klæða mig. „Hvað ertu þung?“ heyrð­ist síðan spurt. Ég fraus með bræk­urnar um mig miðja. Á örskots­stundu fór tauga­kerfið á yfir­snún­ing. Ég varð skyndi­lega eins vör um mig og antílópa innan um tígris­dýr. Hættu­á­stand hafði skap­ast. Ég fann kaldan hroll fara eftir hryggnum og hvernig önd­unin varð grynnri. Mig svim­aði smá og óraun­veru­leika­til­finn­ing tók yfir. Ég fann hvernig augun leit­uðu strax að útgöngu­leið,“ skrif­aði Hrafn­hildur í pistl­inum sem birt­ist á Heim­ild­inni en að hennar sögn varð and­rúms­loftið í klef­anum fullt af kvíða og mátti heyra saum­nál detta.

„Það sem gerð­ist í kjöl­farið var að þrá­lát þörf mín til að skilja umhverfi mitt tók yfir. Ég svar­aði fremur hátt „Ég er 90 kíló.“ Uglurnar tóku and­köf yfir því að ég svar­aði í vitna við­ur­vist. „Ha! Ertu 90 kíló! Þú lítur ekki út fyrir að vera 90 kíló,“ sagði hún í tón sem gaf til kynna að ég ætti að vera þakk­lát fyrir að líta ekki út fyrir að eiga kílóin mín. 

„Nú! Hvernig líta 90 kíló út?“ spurði ég. Hún yppti öxl­unum og varð ögn með­vit­aðri um sjálfa sig í aðstæð­unum. „Hvað ert þú þung?“ spurði ég. Hún svar­aði lágt „Ehhh, svona 68, held ég,“ og horfði í kringum sig til að athuga hvort ugl­urnar hefðu nokkuð heyrt skömm­ina. „Þú lítur ekki út fyrir að vera 68 kíló,“ sagði ég með tón. „Hvað mein­arðu?“ sagði hún hissa. „Nú! Hvernig líta 68 kíló út?“ sagði ég þá, yppti öxlum og hló. Á leið­inni heim úr lík­ams­rækt­ar­stöð­inni fór ég að velta því fyrir mér af hverju sé svona mikil skömm yfir þyngd­ar­tölu kvenna.“

Í fram­hald­inu fór Hrafn­hildur að segja konum í óspurðum fréttum hversu þung hún væri og spyrja þær um þeirra þyngd­ar­tölu. Hún komst fljótt að því að slíkt var ekki lík­legt til vin­sælda hjá konum. Hins vegar deildu karl­kyns vinir hennar ekki þessum áhyggjum og svör­uðu um leið.

Hún ræðir einnig þátt lík­ams­rækt­ar­stöðva sem hafa að hennar mati ýtt undir óör­yggi kvenna í gegnum ára­tug­ina. „Það er mér minn­is­stæð kona sem án efa var með sjúk­dóm­inn „fitu­bjúg“ sem lítið var talað um á þeim tíma. Hún mætti ítrekað á átaks­nám­skeiðin og var sú sem var sterk, stór, í hörku­formi og tók mest á. Hún var ótrú­lega flott. Hún létt­ist ekki neitt og fékk við­mót kenn­ara sam­kvæmt því. „Æi“ sagði ein þess­ara ung­frúa Íslands­meyja með yfir­læt­is­fullum tón og höfuð kon­unnar hall­aði undir í skömm. Henni var ekki hælt fyrir dugnað sinn, hörku eða þol,“ en Hrafn­hildur segir að í dag sé miklu meira vitað um hluti sem spila inn í þyngd­ar­tölu kvenna, meðal ann­ars horm­ónar, streita og erfðir.

„Að kona geti ekki svarað spurn­ingu um eitt­hvað eins hlut­laust og þyngd sína án þess að upp­lifa að það end­ur­spegli virði hennar er til marks um að áherslu­þættir sam­fé­lags okkar eru á skjön við heil­brigða skyn­semi. Þetta er bæði sorg­legt og skað­legt. Hisp­urs­leysi mitt gagn­vart eigin þyngd­ar­tölu hefur hins vegar gert það að verkum að ég hef átt skemmti­legri sam­töl við fólk und­an­farið. Kunn­ingja­kona hall­aði sér upp að mér um dag­inn og sagði sig vera þremur kílóum frá mér. „Reyndu að ná mér,“ sagði ég þá og svo hlógum við djöf­ul­lega. Skammar­leysið var algjört og það var frelsandi,“ skrifar hún að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi