Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Breivik kvartar yfir einangruninni – Sjáðu lúxusaðstöðu hans í fangelsinu í Ringerike

Breivik kvartar yfir einangruninni – Sjáðu lúxusaðstöðu hans í fangelsinu í Ringerike
Breivik með lög­manni sínum.

Norski hægri öfga­mað­ur­inn og fjöldamorð­ing­inn Anders Breivik kvartar yfir lúxus klef­anum sem hann dvelur í þessi árin og segir að klef­inn sé að gera hann „þung­lynd­ann“.

Breikvik, sem drap 77 í sprengju- og byssu­árásum í Noregi árið 2011, afplánar lífs­tíð­ar­fang­elsi (21 ár) í fang­elsi í Rin­gerike en fanga­klef­inn er tveggja hæða sam­stæða en þar er eld­hús og sjón­varps­her­bergi þar sem finna má flat­skjá og þægi­lega sófa. Í fang­els­inu er einnig X-box leikja­tölva sem Breivik hefur ótak­mark­aðan aðgang að.

Maður hefur séð verri sjón­varps­hol.

Í eld­hús­inu er meira að segja upp­þvotta­vél – þæg­indi sem margir fangar í öðrum löndum þurfa að lifa án. Breivik hefur aðgang að bóka­safni, körfu­bolta­velli, borð­stofu og lík­ams­rækt­ar­stöð fullum af lóðum, hlaupa­bretti og róðr­ar­vél. Í frí­tíma sínum nýtur hann þess að elda, spila leiki og læra á bóka­safn­inu, að því að kemur fram í dóms­gögnum.

Það er alveg hægt að rífa í járn þarna.

Og þetta er ekki allt. Breivik á einnig þrjá páfa­gauka sem fá að fljúga frjálst um sam­stæð­una.

Fang­els­is­kerfið í Noregi hefur lengi verið umdeilt, þar sem stofn­anir eins og Rin­gerike, Halden og eyjan Bastoey, gefa föngum mun meira frelsi í flottu umhverfi.

„Við erum með eitt­hvað sem við köllum „eðli­leik­a­regl­una“ í norsku fang­els­is­kerf­inu,“ sagði fang­els­is­stjór­inn Tom Eber­hardt við BBC árið 2016. „Daglegt fang­els­is­líf ætti ekki að vera öðru­vísi en venju­legt líf, að svo miklu leyti sem það er mögu­legt.“

Fínn félags­skapur.

Breivik hóf afplánun á 21 árs fang­els­is­dómi sínum (sem er hámarks­refs­ing í Noregi) árið 2012 en var fluttur til Rin­gerike árið 2022. Honum er haldið í „til­tölu­lega félags­legri ein­angrun“ og hefur hann átt sam­skipti við aðra fanga og gesti nokkrum sinnum. Þrátt fyrir að hann hafi þegar lokið um helm­ingi dóms síns getur hann setið í fang­elsi lengur ef hann er tal­inn vera hættu­legur almenn­ingi.

Maður hefur leigt lélegri her­bergi í Reykja­vík.

Þrátt fyrir „þægi­legt“ umhverfi sitt höfð­aði Breivik nýlega mál gegn norsku rík­is­stjórn­inni þar sem hann hélt því fram að ein­angr­un­ar­vist hans bryti á mann­rétt­indum hans. Máli hans var hafnað eftir fimm daga mál­flutn­ing.

„Það er mikil hætta á ofbeldi og að hann veiti öðrum inn­blástur. Þess vegna þarf hann að afplána tíma sinn undir ströngum örygg­is­ráð­stöf­unum,“ sagði Andreas Hjetland, lög­fræð­ingur rík­is­ins. „Það er ein­fald­lega ekk­ert sem bendir til þess að verið sé að brjóta mann­rétt­indi Breiviks.“

Breivik, sem hefur breytt nafni sínu í Fjotolf Hansen, heldur því fram í sinni annarri máls­höfð gegn norskum stjórn­völdum, að ein­angr­unin sem hann hefur sætt síðan hann hóf fang­els­isaf­plánun árið 2012, jafn­gildi ómann­úð­legri refs­ingu sam­kvæmt Mann­rétt­inda­sátt­mála Evrópu. Hann mistókst í sam­bæri­legu máli á árunum 2016-2017, þegar áfrýjun hans var að lokum hafnað af Evr­ópu­dóm­stólnum.

Þann 22. júlí 2011 drap Breivik átta manns í sprengju­árás í Ósló áður en hann hélt í ung­linga­búðir fyrir syst­ur­flokk Sam­fylk­ing­ar­innar á Utoya eyju, þar sem hann, klæddur sem lög­reglu­maður, skaut 69 manns, aðal­lega ung­linga, til bana. Breivik hefur ekki sýnt iðrun vegna árása sinna, sem hann lýsti sem kross­ferð gegn fjöl­menn­ingu í Noregi.

Yfir­heyrslan fyrr í þessum mán­uði fór fram í íþrótta­hús­inu í Rin­gerike fang­els­inu þar sem hann er vistaður. Lög­fræð­ingur hans, Oystein Storrvik, sagði skjól­stæð­ing sinn hafa orðið fyrir áhrifum vegna skorts á sam­skiptum við umheim­inn. Breivik grét þegar hann gaf vitni og sagð­ist þjást af þung­lyndi og sjálfs­vígs­hugs­unum.

Geð­læknir á vegum fang­els­is­yf­ir­valda, sem hefur hitt Breivik síðan hann var fluttur til Rin­gerike árið 2022, lýsti efa­semdum sínum. „Ég hef aldrei séð hann svona áður – aldrei séð hann gráta eða sýna miklar til­finn­ingar. Þetta voru við­brögð sem ég bjóst ekki við,“ sagði Janne Gudim Herman­sen fyrir dómi, að sögn NTB. „Það gæti hafa verið hans leið til að sýna örvænt­ingu sína en ég er ekki viss um hversu trú­verð­ugt þetta var. Ég held að þetta hafi kannski verið notað til að ná ein­hverju fram.“

Breivik var dæmdur í 21 árs fang­elsi að hámarki en með sér­stöku ákvæði sem sjaldan er notað í norska rétt­ar­kerf­inu, að hægt sé að halda honum ótíma­bundið ef hann er enn tal­inn hættu­legur sam­fé­lag­inu. Hann fór fram á reynslu­lausn árið 2022 en rétt­ur­inn komst að þeirri nið­ur­stöðu að hann hefði ekki sýnt nein merki um end­ur­hæf­ingu.

Fréttin var unnin upp úr frétt Mirror.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Heimur

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Heimur

Átta ára drengur skot­inn til bana

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi

Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco

Heimur

Dul­ar­fullt ákall á net­inu vekur ótta við óeirðir á Tenerife