Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Framsókn slítur meirihlutasamstarfi við Fjarðalistann – Ræðir við Sjálfstæðisflokkinn í dag

Fram­sókn­ar­flokku­irnn í Fjarða­byggð hefur ákveðið að slíta meiri­hluta­sam­starfi hans og Fjarða­list­ans í bæj­ar­stjórn Fjarða­byggðar. Til­kynn­ing þess efnis birt­ist í gær­kvöldi og er ástæðan sögð vera trún­að­ar­brestur. Í dag hefj­ast við­ræður Fram­sókn­ar­flokks­ins við Sjálf­stæð­is­flokk­inn um myndun nýs meiri­hluta.

Til­kynn­ingin birt­ist á Facebook-reikn­ingi Fram­sóknar í Fjarða­byggð í gær­kvöldi en Aust­ur­frétt sagði frá þessu í frétt sinni. Í til­kynn­ing­unni kemur fram að ákvörð­unin hafi verið gerð vegna trún­að­ar­brests á bæj­ar­stjórn­ar­fundi á þriðju­dag­inn.

Á þeim fundi greiddi Hjördís Helga Seljan Þór­odds­dóttir, annar full­trúa Fjarða­list­ans, atkvæði gegn til­lögu um breyt­ingar á skóla­stofn­unum Fjarða­byggðar. Taldi hún sam­ráð hafa skort við gerð til­lög­unnar og að hún væri hrædd um að breyt­ingin yrði ekki til fram­fara. Hvatti hún að lokum aðra full­trúa til að fella til­lög­una.

Tillagan hafði áður verið sam­þykkt í vinnu­hópi en í honum sátu full­trúar allra fram­boða í sveit­ar­fé­lag­inu, þar með tal­inn Stefán Þór Eysteins­son, odd­viti Fjarða­list­ans. Þá var Stefán Þór einnig for­maður bæj­ar­ráðs, sem sam­þykkti breyt­ing­arnar sam­hljóða fáeinum klukku­tímum fyrir bæj­ar­stjórn­ar­fund­inn.

„Góð sam­staða og sam­starf var í störfum hóps­ins milli full­trúa allra flokka en meðal ann­ars sátu odd­vitar bæj­ar­stjórn­ar­flokk­anna í hópnum. Nið­ur­stöður hóps­ins voru kynntar bæj­ar­full­trúum líkt og stjórn­endum skól­anna í Fjarða­byggð áður en stjórn­kerf­is­nefnd afgreiddi til­lögu byggða á áður­nefndum nið­ur­stöðum. Það voru því mikil von­brigði þegar bæj­ar­full­trúi Fjarða­list­ans tók þá ákvörðun að styðja ekki málið á áður­nefndum bæj­ar­stjórn­ar­fundi og um leið lýsa van­trausti á alla vinnu hóps­ins og þá um leið alla þá sem að þeirri vinnu hafa komið frá því að hann hóf störf. Í ljósi þess þá hefur Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn í Fjarða­byggð tekið áður­nefnda ákvörðun og hefur til­kynnt odd­vita Fjarða­list­ans um hana,“ segir í til­kynn­ingu Fram­sókn­ar­flokks­ins.

Í lok til­kynn­ing­ar­innar segir að Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn og Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn muni í dag „taka sam­tal um stöðu mála“ í bæj­ar­stjórn­inni.

Upp­haf­lega var meiri­hluti Fram­sókn­ar­flokks­ins og Fjarða­list­ans mynd­aður eftir kosn­ingar árið 2018 og svo end­ur­nýj­aður fjórum árum síðar. Fyrir þann tíma höfðu Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn og Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn verið í meiri­hluta í átta ár.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Landið

Landið

Límdu yfir hraða­mynda­vél lög­reglu

„Það er svo sannarlega þörf á hraðamælingum“
Landið

Forbes vekur athygli á nýju ferða­manna­gjaldi á Íslandi

Landið

Breskur stór­mið­ill velur fimm stór­kost­leg­ustu fossa Íslands

Landið

Vilja vernda nátt­úruperlu í Skriðdal

Landið

Skortur á leik­skóla­plássum tefur end­ur­komu starfs­fólks HSA

Landið

Björg­un­ar­bún­aður og bætt öryggi til skoð­unar við Stuðla­gil