Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Skýrslan um Laugalandsbörnin fjarlægð: „Augljós tilraun til að sópa öllu aftur undir teppið“

Skýrslan um Laugalandsbörnin fjarlægð: „Augljós tilraun til að sópa öllu aftur undir teppið“

Skýrsla sem unnin var af Gæða- og eft­ir­lits­stofnun vel­ferð­ar­mála sem lýsti hrotta­legri fram­komu for­stöðu­manna í garð barna sem vistuð voru á með­ferð­ar­heim­il­inu Lauga­landi, hefur verið fjar­lægð. Í svari starfs­manns Gæða- og eft­ir­lits­stofn­unar segir að ákveðið hafi verið að fjar­lægja skýrsl­una í des­em­ber á síð­asta ári, eftir úrskurð Per­sónu­verndar, í kjöl­far kvart­ana frá for­stöðu­mönnum heim­il­is­ins. 

Stúlkurnar á Laugalandi

Í jan­úar 2021 tók tugur kvenna, sem dvaldi á með­ferð­ar­heim­il­inu Lauga­landi, höndum saman og fór fram á að farið yrði ofan í saumana á starf­semi heim­il­is­ins. Þær lýstu erf­iðri og sárs­auka­fullri dvöl og töldu að frá­sögnum þeirra hafi verið sópað undir teppi af hálfu barna­vernd­ar­yf­ir­valda.

Ásmundur Daði Ein­ars­son ráð­herra fól Gæða- og eft­ir­lits­stofnun vel­ferð­ar­mála (GEV) „að kanna hvort og þá í hvaða mæli börn, sem vistuð voru á með­ferð­ar­heim­il­inu Varp­holti/Lauga­landi á árunum 1997 til 2007, hafi sætt illri með­ferð, and­legu eða lík­am­legu ofbeldi meðan á dvöl þeirra stóð“. Nefnd, skipuð fjórum sér­fræð­ingum með þekk­ingu á rann­sóknum, barna­vernd og áföllum vann að úttekt­inni og skil­aði skýrslu um með­ferð­ar­starfið að Lauga­landi.

Í kjöl­farið lýstu þær ánægju við upp­lifun­ina að loks hefði verið á þær hlustað.

Úrskurður Persónuverndar

Fram kemur í úrskurð­inum að kvar­tendur, sem voru for­stöðu­menn heim­il­is­ins, byggi á að engin heim­ild hafi staðið til rann­sóknar eða birt­ingar grein­ar­gerðar um með­ferð­ar­heim­lið. Þá vísi kvar­tendur til þess að enda þótt þau hafi ekki verið nafn­greind í grein­ar­gerð­inni sé ein­falt að finna nöfn þeirra sem ráku með­ferð­ar­heim­ilið. Þess auki finn­ist kvar­tendum vinnslan hvorki hafa verið sann­gjörn eða gagnsæ.

 Úrskurður Per­sónu­verndar bendir á að lögum hafi ekki verið fylgt er varða per­sónu­vernd og vinnslu per­sónu­upp­lýs­inga né heldur að birt­ing hennar hafi sam­rýmst lögum. Þess auki er lagt bann á frek­ari notkun og dreif­ingu grein­ar­gerð­ar­innar: 

„Vinnsla Gæða- og eft­ir­lits­stofn­unar félags­þjón­ustu og barna­verndar og Gæða- og eft­ir­lits­stofn­unar vel­ferð­ar­mála á per­sónu­upp­lýs­ingum, í þágu rann­sóknar á með­ferð­ar­heim­il­inu [X], sam­rýmd­ist ekki ákvæðum laga nr. 90/2018, um per­sónu­vernd og vinnslu per­sónu­upp­lýs­inga, sbr. reglu­gerð (ESB) 2016/679.

Birting Gæða- og eft­ir­lits­stofn­unar vel­ferð­ar­mála á grein­ar­gerð um með­ferð­ar­heim­ilið [X] sam­rýmd­ist ekki ákvæðum laga nr. 90/2018, um per­sónu­vernd og vinnslu per­sónu­upp­lýs­inga, sbr. reglu­gerð (ESB) 2016/679.

Lagt er fyrir Gæða- og eft­ir­lits­stofnun vel­ferð­ar­mála að fjar­lægja grein­ar­gerð um með­ferð­ar­heim­ilið [X] af vef­síðu sinni. Stað­fest­ing á því að farið hafi verið að þessum fyr­ir­mælum skal ber­ast Per­sónu­vernd eigi síðar en 15. jan­úar 2024. Jafn­framt leggur Per­sónu­vernd bann við frek­ari notkun og dreif­ingu grein­ar­gerð­ar­innar.“

Úrskurð­inn má lesa í heild hér

Viðbrögð stúlknanna

Í sam­tali við Mannlíf kemur fram að stúlk­urnar eru margar mjög ósáttar við úrskurð­inn. Ein þeirra segir: 

„Þetta er fárán­legt alveg hreint! Fyrst að það er alveg eins hægt að rekja hverjir kvar­tendur eru, því það sagt er að það eru for­stöðu­menn heim­ilis, sem fjöldi kvenna hafi kvartað undan. 

Svo það að mér finnst þetta blátt áfram aug­ljós til­raun til að sópa öllu aftur undir teppið og þagga niður í okkur og rengja bæði okkur og skýrsl­una. 

Þá var ekki haft sam­band við okkur né okkur tjáð að þetta væri í gangi. Ég er brjáluð!“

Aðspurð um við­brögð vegna úrskurðs­ins segir önnur:

Ég er í sjokki!

 „Af hverju eru aðrar skýrslur inni en ekki þessi? Það er eitt­hvað sem „hann“ [innsk.blm. Ingj­aldur] held ég er að fela! Eða í ein­hverri algjörri afneitun með að þetta hafi verið svona. Samt eru þau ekki nafn­greind. En margar af þessum stelpum komu fram nafn­greindar í fjöl­miðla.“ 

Skýrslan kastaði ljósi á ógnarstjórnun og ofbeldi

Ingj­aldur Arn­þórs­son rak með­ferð­ar­heim­ili að Lauga­landi ásamt konu sinni, Áslaugu Brynjars­dóttur. Þau bjuggu þar ásamt tveimur börnum sínum og skjól­stæð­ingum, sem fyrst voru sex en fjölg­aði með yfir árin í átta. Bragi Guð­brands­son var þáver­andi eft­ir­lits­maður heim­il­is­ins á vegum Barna­vernd­ar­stofa Reykja­víkur.

Allir helstu fjöl­miðlar fjöll­uðu um mál stúlkn­anna og skýrsl­una og vakti málið mikla athygli hjá þjóð­inni. Rætt var við 34 ein­stak­linga sem dvöldu í vist á heim­il­inu og náðu lýs­ingar þeirra yfir and­legt og lík­am­legt ofbeldi, svo sem ógn­ar­stjórnun og harð­ræði. Hún var opin­beruð 2022 og þann 14. Sept­em­ber sama ár gaf Stjórn­ar­ráðið út frétta­til­kynn­ingu sem í segir:

„Grein­ar­gerðin fer ítar­lega yfir starf­semi með­ferð­ar­heim­il­is­ins á tíma­bil­inu. Birt­ingin snertir fjölda ein­stak­linga, einkum þau sem dvöldu á heim­il­inu og býðst þeim stuðn­ingur í Bjark­ar­hlíð sem er mið­stöð fyrir þolendur ofbeldis. Hægt er að hafa sam­band við Bjark­ar­hlíð í síma 553-3000. Enn fremur mun Gæða- og eft­ir­lits­stofnun vel­ferð­ar­mála bjóða hlut­að­eig­andi sam­tal um nið­ur­stöð­urnar.“

Í skýrsl­unni kom fram að mik­ill meiri­hluti fyrrum vist­barna seg­ist hafa upp­lifað and­legt ofbeldi, einu sinni eða oftar á með­ferð­ar­tím­anum, eða 30 af 34 ein­stak­lingum. Voru þessar frá­sagnir oft­ast af ótta­stjórnun, harð­ræði eða nið­ur­broti, aðal­lega af hendi for­stöðu­manns en einnig for­stöðu­konu. Margir við­mæl­endur sögðu frá fleiri atvikum en einu. Samtals 27 úr við­mæl­enda­hópnum greindu frá atvikum sem fela í sér ein­hvers konar ótta­stjórnun eða harð­ræði af hendi for­stöðu­að­ila.

Alls 20 vist­börn af 34 töl­uðu um mót­tök­urnar þegar þau komu fyrst á Lauga­land og 12 lýstu nei­kvæðri upp­lifun. Alls 14 vist­börn af 34 sögð­ust hafa verið beitt lík­am­legu ofbeldi. Í frá­sögnum 12 þeirra er for­stöðu­mað­ur­inn til­greindur ger­andi, en tvær stúlkur til­greina for­stöðu­kon­una. Til við­bótar sögð­ust 11 hafa orðið vitni að því að lík­am­legu ofbeldi hafi verið beitt af hálfu for­stöðu­manns.

Alls 10 vist­börn af 34 kvört­uðu yfir að sím­töl hafi verið hleruð, sem hafi gert það að verkum að þau hafi ekki geta talað eins frjáls­lega og þau hefðu viljað. Alls 13 vist­börn af 34 töl­uðu um að hafa upp­lifað reglur um fatnað og eigur á nei­kvæðan hátt og jafn­framt að hafa ekki mátt hlusta á þá tón­list sem þau vildu. Þá hafi verið gerðar athuga­semdir við útlit þeirra og ein stúlka lýsir því að hafa þurft að láta klippa og aflita á sér hárið gegn vilja sínum.

Alls 9 vist­börn af 34 sögð­ust hafa reynt að kvarta á ein­hverjum tíma­punkti við barna­vernd­ar­starfs­mann eða Barna­vernd­ar­stofu og upp­lifðu að það hefði engu breytt.

Tengd frétt: 

Játn­ingar læknis að Lauga­landi: „Hitti grát­andi unga stúlku sem hafði áverka á enni“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi