Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Fullur milljarðamæringur drukknaði eftir að hafa bakkað í tjörn – Hringdi í örvæntingu í vinkonu

Fullur milljarðamæringur drukknaði eftir að hafa bakkað í tjörn – Hringdi í örvæntingu í vinkonu
Búgarð­ur­inn Mynd: Trausti Hafsteinsson

Mágkona Mitch McConnell, var drukkin þegar hún bakk­aði óvart bíl sínum ofan í tjörn í síð­asta mán­uði og drukkn­aði, sam­kvæmt lög­regl­unni.

Angela Chao, millj­arða­mær­ingur og mág­kona þing­flokks­for­manns Repúblikana­flokks­ins í Banda­ríkj­unum, Mitch McConnell lést í síð­asta mán­uði er hún bakk­aði Teslunni sinni fyrir slysni ofan í tjörn á landi búgarðs í Texas. Lög­reglan hefur nú til­kynnt að áfengi fannst í blóði hennar við krufn­ingu. Kemur þetta fram í frétt The New York Post.

Blessuð sé minn­ing hennar.

Samkvæmt til­kynn­ingu frá lög­regl­unni í Blanco-sýslu sem birt­ist í gær, var áfeng­is­magn í blóði Chao, nærri því þrefalt meira en leyfi­legt er í Texas-fylki, þegar hún bakk­aði bíl sínum í tjörn er hún reyndi að snúa bílnum við. Sagði lög­reglan and­látið hafa verið „óheppi­legt slys“.

Harm­leik­ur­inn gerð­ist þann 10. febr­úar þegar Chao, sem var fyrr­ver­andi for­stjóri sjó­flutn­ings­fyr­ir­tæks­is­ins Foremost Group, var að skemmta sér með sjö vin­konum sínum á 4.500 hekt­ara einka­landi í Texas Hill Country.

Eftir að hafa notið kvöld­matar í gest­húsi á eign­inni, ákvað hin fimm­tuga Chao að skreppa á Teslunni sinni stutta vega­lengd klukkan 23:37, að hús­næði hennar á land­inu. Á mynd­bandi sést hún „ganga óstyrk að bif­reið sinni,“ sam­kvæmt lög­reglu­skýrsl­unni. Stuttu síðar hringdi hún í örvænt­ingu sinni í vini sína eftir að hafa bíl sínum ofan í tjörn, aðeins nokkrum metrum frá gest­hús­inu.

Amber Keinan, ein af vin­konum Chao, sagði lög­regl­unni að Chao hefði hringt í hana klukkan 23:42 og sagt henni að bíll­inn væri í tjörn­inni og hún föst í honum. Vin­kon­urnar töl­uðu saman í átta mín­útur á meðan bíll­inn sökk hægt og rólega þar til hann var alveg kom­inn á kaf. „Chao sagði Keinan að vatnið væri farið að rísa og að hún myndi deyja og sagði „Ég elska þig“ við Keinan, áður en bíll­inn sökk,“ segir í lög­reglu­skýrsl­unni. Aðrir vinir hennar gerðu örvænt­inga­fulla til­raun til að synda að bílnum og hjálpa henni á meðan Keinan fór út á vatnið í Kajak, að sögn lög­regl­unnar.

Einhver hringdi í neyð­ar­lín­una um klukkan 23:55 og var tal­aði við lög­regl­una í 11 mín­útu, sam­kvæmt skýrlunni. Lög­reglan mætti á vett­vang og reyndi að koma Chao út úr bílnum, sem var tæpa 23 metra frá bakk­anum. Þeim tókst að brjóta rúð­una bíl­stjóra­meg­inn og lög­reglu­maður teygði sig inn í bíl­inn og greip í hönd Chao. Þegar hún var komin í land aftur, var hún úrskurðuð látin, klukkan 01:40, 11. febr­úar.

Þegar Chao lést var alka­hólmagnið í blóði hennar 0,233 grömm af 100 milli­lítrum, sem er næstum því þrefalt leyfi­legt magn í Texas. Búgarð­ur­inn þar sem Chao lést er í eigu fyr­ir­tækis sem teng­ist eig­in­manni hennar, Jim Breyer sem er áhættu­fjár­festir og með­eig­andi Boston Celtics.

Systir Chao, Elaine Chao er gift McConnell en hún var vinnu­mála­ráð­herra í stjórn George W. Bush Banda­ríkja­for­seta og sam­göngu­ráð­herra í stjórn Donalds Trump.

„Nafn Angelu á kín­versku hljómar eins og stafirnir fyrir frið og vel­megun,“ sagði faðir hennar, James S.C. Chao, í til­kynn­ingu sem fjöl­skyldan sendi frá sér eftir and­látið. „Fjarvera hennar skilur ekki aðeins eftir tóm í hjarta okkar, heldur einnig í asísk-amer­íska sam­fé­lag­inu.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Heimur

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Heimur

Átta ára drengur skot­inn til bana

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi

Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco

Heimur

Dul­ar­fullt ákall á net­inu vekur ótta við óeirðir á Tenerife