Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Soltinni fjölskyldu á Gaza fylgt eftir í þrjá daga: „Þau öskra af hungri“

Soltinni fjölskyldu á Gaza fylgt eftir í þrjá daga: „Þau öskra af hungri“

Al Jazeera fylgdi eftir þremur svelt­andi fjöl­skyldum á Gaza í þrjá daga en 1,1 milljón Gazabúa standa nú frammi fyrir hung­ursneyð.

Ísraelar hafa ítrekað hindrað afhend­ingu hjálp­ar­gagna, þar á meðal mat­væla, þrátt fyrir úrskurð Alþjóða­dóm­stóls­ins í jan­úar sem skip­aði Ísraelum að „tryggja afhend­ingu grunn­þjón­ustu og nauð­syn­legrar mann­úð­ar­að­stoðar til óbreyttra borg­ara á Gaza“.

Samkvæmt skýrslu sem studd var af Sam­ein­uðu þjóð­unum, sem birt var í síð­ustu viku, hefur helm­ingur íbúa Gaza – 1,1 milljón manna – algjör­lega klárað mat­ar­birgðir sínar og við­bragðs­getu og standa frammi fyrir „hörmu­legu hungri“, sem er helsta vís­bend­ingin um hung­ursneyð.

„Fólk á Gaza er að deyja úr hungri núna. Hraðinn sem þessi hungur- og vannær­ing­ar­kreppa af manna­völdum hefur farið yfir Gaza er skelfi­legur,“ sagði Cindy McCain, fram­kvæmda­stjóri Alþjóða­mat­væla­á­ætl­un­ar­innar.

Eitt af hverjum þremur börnum undir tveggja ára í norð­ur­hluta Gaza þjá­ist af bráðri vannær­ingu sam­kvæmt nær­ing­ar­skimunum sem UNICEF og sam­starfs­að­ilar þess hafa gert.

„Hraðinn sem þessi hörmu­lega vannær­ing­ar­kreppa barna á Gaza hefur þró­ast á er átak­an­legur, sér­stak­lega þegar nauð­syn­leg neyð­ar­að­stoð hefur lengi verið til­búin í aðeins nokk­urra kíló­metra fjar­lægð,“ sagði Catherine Russell, fram­kvæmda­stjóri UNICEF.

„Við vitum í raun ekki um hvað er að ger­ast með önnur börn sem við höfum ekki aðgang að – það sem við vitum og það sem við höfum varað við er að aðgangur að mann­úð­ar­að­stoð og afhend­ingu mann­úð­ar­að­stoðar getur í raun dregið úr hlut­falli vannær­ingar meðal barna,“ sagði Adele Khodr, svæð­is­stjóri UNICEF í Mið­aust­ur­löndum og Norður-Afríku.

Í febr­úar vör­uðu Barna­heill við því að Gaza væri vitni að „fjöldamorði á börnum í hæga­gangi (e. slow motion) vegna þess að það er eng­inn matur eftir og eng­inn matur kemst til þeirra“.

Frétta­stofan Al Jazeera fylgdi þremur fjöl­skyldum á Gaza eftir í þrjá daga en hér fyrir neðan má lesa um eina þeirra.

Al-Masry fjölskyldan

Al-Masry fjöl­skyldan er stór. Hún sam­anstendur af Salwa al-Masry og eig­in­manni hennar og átta dætrum þeirra og fimm sonum.

Fimmtán með­limir al-Masry fjöl­skyld­unnar búa undir yfir­fullu plast­dúka­læddu tjaldi í Deir el-Balah.

Það er eng­inn matur í al-Masry tjald­inu.

„Við höfum verið hér í næstum mánuð. Síðan þá höfum við ekki borðað almenni­lega og börnin mín þurfa mat. Þau öskra af hungri og gráta sig í svefn,“ segir hin 45 ára gamla Salwa al-Masry við Al Jazeera, titr­andi.

Salwa, sem einnig gengur hjá Umm Mohammed, þjá­ist af astma og eig­in­maður hennar er með hjarta­sjúk­dóm. Ung börn hennar biðja um mat og hún hefur ekk­ert að gefa þeim.

„Ungur sonur minn segir við mig: „Mamma, ég er svangur, mig langar að borða.“ Ég er þol­in­móð við hann og segi við hann: „Sestu niður, ég skal finna eitt­hvað handa þér.“

Segir hún að það sé yfir­leitt lygi þar sem hún getur ekk­ert gert til að draga úr hungri hans.

Umm Mohammed seg­ist hafa verið á öllum hjálp­ar­mið­stöðvum en búið sé að tæma allar vöru­geymslur svo hún kemur tóm­hent til baka.

Hún hefur misst tölu­verða þyngd síðan hún, eig­in­maður hennar, átta dætur og fimm synir flúðu heim­ili sitt í Beit Hanoon í norð­ur­hluta Gaza til Gazaborgar, síðan til Nuseirat og loks í þetta tjald í Deir el-Balah.

„Ég er hrædd um að ég deyi í stríð­inu. Hjá hverjum ætla börnin mín að vera og hver mun sjá um þau?“ segir hún. Hún fær í hjartað í hvert skipti sem eitt barnið biður um mat og hún hefur ekk­ert að gefa þeim.

Hér er allt sem al-Masry fjöl­skyldan borð­aði á þremur dögum.

Dagur 1

Enginn matur.

Dagur 2

Eftir að hafa ekk­ert borðað í morg­un­mat eða hádeg­is­mat tókst fjöl­skyld­unni að ná í þrjár dósir af fava baunum.

Umm Mohammed leggur til hliðar tvær dósir, vit­andi að þau geti ekki fengið neinn mat á morgun.

„Hvað ætti ég að gera? Ef ég gef þeim í dag, hvernig mun ég gefa þeim á morgun? Ég held áfram að hugsa, hvernig á ég að sjá þeim fyrir mat fyrir næsta dag?“

Baun­irnar, sem þau borða með smá brauði, veita nauð­syn­lega nær­ingu en jafn­vel þó að sér­hver fjöl­skyldu­með­limur næði að borða hálfan bolla myndu þeir skorta alvar­lega kalór­íur.

Alls fékk hver fjöl­skyldu­með­limur 319 kalor­íur á degi tvö.

Dagur 3

Á þriðja deg­inum tókst Umm Mohammed og dóttur hennar að safna hand­fylli af mallow, villtri vetr­arplöntu sem þær fundu.

Umm Mohammed saxaði mallow laufin í mauk þar sem hún bætti við smá af hibiscus-jurt og smátt skornum lauk. Þetta er það næsta sem hún hefur komið því að und­ir­búa mál­tíð.

„Ég hef ekki eldað síðan við höfum verið hér,“ and­varpar hún.

„Þegar við bjuggum heima vorum við vön að borða, við vorum ham­ingju­söm, Guði sé lof. Enginn hefði getað ímyndað sér hvar við myndum enda. Við höfum verið nið­ur­lægð, nið­ur­lægð, nið­ur­lægð, nið­ur­lægð,“ end­ur­tekur hún.

Á þriðja deg­inum borð­aði hver fjöl­skyldu­með­limur fjöl­skyld­unnar 268 kalór­íur.

Hægt er að lesa um hinar tvær fjöl­skyld­urnar og þeirra bar­áttu við að halda sér á lífi á hel­víti á jörðu, hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Heimur

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Heimur

Átta ára drengur skot­inn til bana

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi

Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco

Heimur

Dul­ar­fullt ákall á net­inu vekur ótta við óeirðir á Tenerife