Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Líkamsleifar Émile litla loksins fundnar í Ölpunum: „Þetta er enginn léttir, sorgin er óendanleg“

Líkamsleifar Émile litla loksins fundnar í Ölpunum: „Þetta er enginn léttir, sorgin er óendanleg“
Émile Soleil

Lík­ams­leifar sem til­heyra litlum frönskum dreng sem hvarf spor­laust fyrir átta mán­uðum fund­ust í gær í Ölpunum.

Beinafundurinn

Göngu­fólk upp­götv­aði bein hins tveggja ára gamla Émile Soleil skammt frá ein­angr­uðu heim­ili fjöl­skyldu hans, þaðan sem hann hvarf á síð­asta ári. Heim­ild­ar­maður sagði í sam­tali við MailOn­line að aðeins hluti af lík­inu hafi fund­ist, þar sem nokkur bein og höf­uð­kúpa hafi verið end­ur­heimt.

Beina­fund­inum hræði­lega hefur nú verið lýst sem lyk­il­at­riði í glæpa­rann­sókn sem hefur rann­sókn­ar­lög­reglan hefur átt í erf­ið­leikum frá því hún hóf gríð­ar­mikla leit í hinu fal­lega fjalla­þorpi Le Haut Vernet í Alpes-de-Haute-hér­að­inu þann 8. júlí síð­ast­lið­inn.

Í yfir­lýs­ingu sem rík­is­sak­sókn­ari í Aix-en-hér­aði sendi frá sér í dag segir að „erfða­fræði­leg grein­ing auð­kenni“ beinin sem bein úr Èmile. Þá kom fram að „glæpa­fræði­leg grein­ing“ væri einnig í gangi og að lög­reglan væru að fram­kvæma „við­bót­ar­rann­sóknir“ á svæð­inu þar sem beinin fund­ust.

Þann 27. mars lok­aði lög­reglan þorp­inu fyrir alla nema rann­sak­endur og íbúa en tak­mark­anir eru enn í gildi þar sem lög­reglan aflar frek­ari upp­lýs­inga um lík­ams­leif­arnar sem fund­ust í dag. Dán­ar­or­sök hefur ekki enn verið stað­fest.

Heim­ild­ar­maður sagði eft­ir­far­andi við MailOn­line: „Verið er að greina þær, ásamt beinum hans, til að reyna að kom­ast að dán­ar­or­sök­inni. Allar tennur hins látna hafa einnig fund­ist en sumir partar lík­am­ans vantar. Flygildi og leit­ar­hundar eru að fara yfir allt svæðið í sveit­inni til að reyna að finna fleira. Það er mögu­leiki á á villi­dýr hafi tekið parta af lík­am­anum, en allar kenn­ingar eru skoð­aðar.“

José Morale, borg­ar­stjóri La Bouilladisse, bæj­ar­ins sem er nálægt Marseille þar sem fjöl­skylda Émile býr mestan hluta árs­ins, sagði: „Við munum gera okkar besta til að styðja þau. Fyrir for­eld­rana er þetta mjög flókið. Þetta er eng­inn léttir, sorgin er óend­an­leg, við erum öll miður okkar.“

Afinn

Émile var form­lega í umsjá afa síns, hr. Vedovini dag­inn sem hann hvarf, á meðan for­eldrar hans tóku sér hlé. Vitni sá Vedovini, sem er sjúkra­þjálf­ari og osteópati, höggva við fyrir utan húsið sitt um það leyti sem talið er að Émile hafi villst í burtu.

Fjöl­skylda Émile litla hefur ekki enn tjáð sig um beina­fund­inn en þau voru öll í páska­messu þegar þeim var sagt frá fund­inum.

Vedovini er heit­trú­aður kaþ­ólikki sem gaf upp köllun til að verða munkur svo hann gæti gifst konu sinni, Anne Vedovini. Ólu þau upp 10 börn, þar á meðal móður Émile, sem ber heitið Marie Soleil, eftir að hafa gifst hinum 26 ára Colomban Soleil, föður Émile.

Í síð­ustu viku sögðu fjöldi franskra frétta­miðla, þar á meðal Le Parisien og hið mjög svo virta rann­sókn­ar­blað Le Canard enchaîné [Hlekkj­aða öndin] frá óhugn­an­legum nýjum upp­lýs­ingum um Vedovini. „Það er umfram allt for­tíð hans sem vekur spurn­ingar,“ var skrifað í Le Parisien, þar sem smá­at­riðum um kyn­ferð­is­mis­notk­un­ar­hneyksli í róm­versk-kaþ­ólskum skóla á tíunda ára­tugnum var lýst. Blaðið stað­festi einnig að Vedovini, sem neitar sök og var ekki ákærður fyrir neitt brot í kjöl­far barna­mis­notk­un­ar­rann­sókn­ar­innar, „hafi vakið athygli lög­regl­unnar og er einn af mörgum sem hún skoðar.“

Vedovini var í munka­þjálfun þegar hann vann hjá Riaumont, kaþ­ólsku sam­fé­lagi sem heldur úti heima­vist­ar­skóla fyrir vand­ræðaung­linga í Norður-Frakk­landi. Heima­vista­skól­inn er stað­settur í Liévin, í Pas-de-Calais, og var rek­inn af Bene­dikts­munkum sem fengu margar kvart­anir frá fyrr­ver­andi nem­endum á árunum 2014 til 2017. Þeir sögð­ust hafa orðið fyrir kyn­ferð­is­legu ofbeldi, þar á meðal nauðg­unum, snemma á tíunda ára­tug síð­ustu aldar, auk reglu­legra  bar­smíða. Vedovini, sem var þekktur sem bróðir Philippe þegar hann starf­aði við skól­ann á árunum 1991 til 1994, var bendl­aður við rann­sókn­ina sem „aðstoð­ar­vitni“ (e. assi­sted witness).

Öfga-hægrið

Þá hefur öfga-hægri stjórn­mála­skoð­anir fjöl­skyld­unnar einnig verið skoð­aðar af lög­regl­unni. Faðir Émile var hand­tek­inn árið 2018 fyrir að ráð­ast á útlend­inga. Eftir að hafa lofað að halda frið­inn var honum sleppt án dóms. Á þeim tíma var Soleil aktí­visti tengdur Action Francaise, öfga­hægri þjóð­ernis- og kon­ungs­hyggju­hópnum, auk nýfas­ista­flokknum Bastion Social. Þremur árum síðar, árið 2021, voru Soleil og eig­in­kona hans bæði fram­bjóð­endur til sveit­ar­stjórn­ar­kosn­inga á Marseille-svæð­inu og studdu end­ur­heimtu­flokk Éric Zemmour, dæmds kyn­þátta­hat­ara og íslamó­fóba sem sem bauð sig fram til emb­ættis for­seta Frakk­lands á síð­asta ári. Kosn­inga­slag­orð þeirra á þeim tíma ýjuðu að því þau væru „vinir Éric Zemmour“ sem vildi „hreinsa út kerfið“.

Rémy Avon, aðal­sak­sókn­ar­inn sem stýrir rétt­ar­rann­sókn­inni á hvarfi Émile, sagði að verið væri að skoða mögu­leik­ana á því hvort Émile hefði verið myrtur, rænt eða lent í slysi. Hann stað­festi að heim­ili for­eldra Émile, í bænum La Bouilladisse í suð­ur­hluta Marseille, hafi verið rann­sakað í júlí, en einnig hafi verið farið inn á heim­ili ömmu og afa Émile í nágrenn­inu og í Ölpunum og það rann­sakað.

Málið þykir minna á BBC þátta­röð­ina The Missing, þar sem ungur drengur hverfur á meðan hann er í fríi með fjöl­skyldu sinni í Frakk­landi, en hann átti að hafa lát­ist eftir að keyrt var á hann þegar hann elti ref.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Heimur

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Heimur

Átta ára drengur skot­inn til bana

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi

Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco

Heimur

Dul­ar­fullt ákall á net­inu vekur ótta við óeirðir á Tenerife