Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Bæjarstjóri Reykjanesbæjar segist vera vanhæfur: „Það er nú varla gild ástæða“

Bæjarstjóri Reykjanesbæjar segist vera vanhæfur: „Það er nú varla gild ástæða“
Kjartan Már Kjart­ans­son Mynd: Skjáskot YouTube

Eitt umdeildasta mál Reykja­nes­bæjar á und­an­förnum vikum hafa verið mál­efni Hljóma­hall­ar­innar þar sem Rokksafn Íslands er til húsa ásamt tón­list­ar­skóla. Ein­hverjar hug­myndir hafa verið uppi um að loka safn­inu en þær hug­myndir virð­ast hafa verið slegnar af borð­inu. Það stendur hins vegar til að flytja bóka­safn Reykja­nes­bæjar inn í hús­næðið.

Á fundi bæj­ar­stjórnar þann 21. mars lýsti Kjartan Már Kjart­ans­son, bæj­ar­stjóri Reykja­nes­bæjar, sig van­hæfan í mál­inu á þeim grund­velli að per­sónu­legar skoð­anir hans gætu truflað vinn­una.

„Nú þegar búið er að ákveða að ráða utan­að­kom­andi verk­efna­stjóra til að stýra flutn­ingi bóka­safns­ins í Hljóma­höll lýsir Kjartan Már Kjart­ans­son bæj­ar­stjóri sig van­hæfan til frek­ari vinnu við und­ir­bún­ing verk­efn­is­ins. Kjartan Már var tón­list­ar­kenn­ari og skóla­stjóri Tón­list­ar­skól­ans í Keflavík í 18 ár (1980 1998) og fyrsti for­maður stjórnar Hljóma­hallar og þar með Rokksafns­ins 2012-2014. Kjartan telur sjálfur að per­sónu­legar skoð­anir hans gætu truflað vinn­una og því sé best að hann komi ekki að und­ir­bún­ingi flutn­ings­ins.“

Þetta fannst Margréti Þór­ar­ins­dóttur skrýtið í ljósi þess að Kjartan er ráð­inn emb­ætt­is­maður. Margrét situr í minni­hluta bæj­ar­stjórnar fyrir Umbót og lagði hún fram eft­ir­far­andi bókun:

„Mér finnst nokkuð sér­stakt að bæj­ar­stjóri skuli lýsa sig van­hæfan til frek­ari vinnu við und­ir­bún­ing verk­efn­is­ins. Það blasir við að bæj­ar­stjóri er ósáttur við þær breyt­ingar sem búið er að sam­þykkja að verði gerðar á Rokksafn­inu og flutn­ingi bóka­safns­ins. Ég hefði nú haldið að það teld­ist ekki vera van­hæfi þó menn væru ósam­mála.

Ég spyr því hátt­virtan bæj­ar­stjóra sem er ráð­inn emb­ætt­is­maður, hyggst hann lýsa sig van­hæfan í öðrum málum sem meiri­hlut­inn felur honum að fram­kvæma og hann er ósam­mála hug­mynda­fræði­lega?

Það eitt að vera ósam­mála er ekki grund­völlur fyrir ráð­inn emb­ætt­is­mann að lýsa sig van­hæfan. Stundum þarf að taka erf­iðar ákvarð­anir og þær lúta oftar en ekki að draga úr kostn­aði og skera niður útgjöld. Kannski á bæj­ar­stjóri erfitt með að taka erf­iðar ákvarð­anir og vill kom­ast hjá því að vera bendl­aður við ákvarð­ana­töku sem er erfið, en engu að síður nauð­syn­leg. En þetta er nú bara hluti af því að vera bæj­ar­stjóri.

Í ljósi fram­greinds óskar Umbót eftir því að bæj­ar­stjóri svari eft­ir­far­andi: Hvernig rök­styður bæj­ar­stjóri ákvörðun sína um að hann sé van­hæfur með til­liti til stjórn­sýslu­laga og sveit­ar­stjórn­ar­laga? Nú er langt um liðið síðan bæj­ar­stjóri var skóla­stjóri Tón­list­ar­skól­ans og ekki er hægt að sjá hvernig það starf lítur að þess­ari ákvörðun, þannig það er nú varla gild ástæða.

Bæj­ar­stjóri veit nákvæm­lega hvers vegna það er nauð­syn­legt að færa bóka­safnið. Ný stað­setn­ing í hús­næði Hljóma­hallar er sú besta í stöð­unni, auk þess sem hún er mjög mið­svæðis í bæj­ar­fé­lag­inu. Þetta snýst allt um kostnað. Nýtt bóka­safn kostar marg­falt það sem hér er lagt upp með.“

Vík­ur­fréttir greindu fyrst frá mál­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Landið

Landið

Límdu yfir hraða­mynda­vél lög­reglu

„Það er svo sannarlega þörf á hraðamælingum“
Landið

Forbes vekur athygli á nýju ferða­manna­gjaldi á Íslandi

Landið

Breskur stór­mið­ill velur fimm stór­kost­leg­ustu fossa Íslands

Landið

Vilja vernda nátt­úruperlu í Skriðdal

Landið

Skortur á leik­skóla­plássum tefur end­ur­komu starfs­fólks HSA

Landið

Björg­un­ar­bún­aður og bætt öryggi til skoð­unar við Stuðla­gil