Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Sigríður Dögg sjálfskjörin formaður BÍ: „Fólk þarf að gerast áskrifendur að fjölmiðlum“

Sigríður Dögg sjálfskjörin formaður BÍ: „Fólk þarf að gerast áskrifendur að fjölmiðlum“
Sigríður Dögg Auð­uns­dóttir

Sigríður Dögg Auð­uns­dóttir hefur verið sjálf­kjörin sem for­maður Blaða­manna­fé­lags Íslands en fram­boðs­frestur rann út í gær. Hún hefur verið for­maður félags­ins síðan árið 2021. Blaða­manna­fé­lagið hefur verið mikið umræð­unni und­an­farið en fyrir stuttu kom upp trún­að­ar­brestur milli Hjálmars Jóns­sonar, þáver­andi fram­kvæmda­stjóra Blaða­manna­fé­lags­ins, og stjórnar félags­ins en málið snérist um meint skatt­svik Sigríðar. Hjálmari var í fram­hald­inu sagt upp.

Sigríður Dögg rýfur þögn­ina: „Er ekki sek um það sem ég er sökuð um“

Mannlíf hafði sam­band við Sigríði til að spyrja hana um fram­tíð Blaða­manna­fé­lags­ins.

 „Ég mun berj­ast áfram fyrir því að bæta kjör og rétt­indi félags­manna og efla blaða­mennsku og fjöl­miðlun,“ sagði Sigríður varð­andi hverju hún muni berj­ast fyrir á næstum tveimur árum sem for­maður. „Vit­und­ar­her­ferð Blaða­manna­fé­lags­ins hefur það að mark­miði að efla vit­und almenn­ings um mik­il­vægi blaða­mennsku sem er brýnt verk­efni sem félagið mun leggja áherslu á áfram. Þá er hafin vinna í öllum stjórnum félags­ins við að skýra alla umgjörð um rekstur félags­ins, auka gagn­sæi og setja reglur um starf­sem­ina. Einnig hefur stjórn ákveðið að ráð­ast í stefnu­mót­un­ar­vinnu með félags­mönnum, sem verður áhuga­vert og spenn­andi verk­efni sem ég vona að sem flest taki þátt í. Loks von­ast ég til þess að félag­inu tak­ist að koma á fót sér­staks sam­fé­lags­sjóðs til efl­ingar sam­fé­lags­lega mik­il­vægrar blaða­mennsku. Sjóð­ur­inn nefn­ist Glætan og er til­gangur hans að styrkja sjálf­stætt starf­andi blaða­menn sem vinna að sam­fé­lags­lega mik­il­vægum verk­efnum og efla blaða­mennsku. Enn­fremur mun ég beita mér fyrir því að fjöl­miðlar taki höndum saman“

Fjölmiðlastefna stjórnvalda lofar góðu

En hvað finnst Sigríði um stöðu fjöl­miðla á Íslandi í dag?

„Ég vil líta svo á að framundan sé end­ur­reisn íslenskra fjöl­miðla, sem und­an­farin ár hafa glímt við óeðli­lega sam­keppni við erlenda tæknirisa um aug­lýs­inga­tekjur og horft upp á mark­aðs­hrun. Við erum ekki eina þjóðin sem þarf að horfast í augu við gjör­breyttar for­sendur fyrir rekstri frétta­miðla, fækkun blaða­manna og gjald­þrot fjöl­miðla­fyr­ir­tækja. Við erum hins vegar ein sú minnsta, og með tungu­mál sem afar fáir tala, og því eru áhrifin hér enn meiri en víða ann­ars staðar, og afleið­ing­arnar eftir því. Sem betur fer virð­ast vest­ræn ríki í auknum mæli gera sér grein fyrir því að á meðan þessu  umbreyt­inga­skeiði stendur þurfa frétta­miðlar stuðn­ing og sem betur fer virð­ist sem íslensk stjórn­völd séu að átta sig á því og von­andi almenn­ingur líka. Drög að nýrri fjöl­miðla­stefnu stjórn­valda lofar góðu og er skref í rétta átt, þó svo að styrkir þurfi að vera mun hærri en þar er gert ráð fyrir, svo við séum ekki eft­ir­bátur hinna Norð­ur­land­anna. Þessu til við­bótar þurfa fjöl­miðlar meiri stuðn­ing frá almenn­ingi og fyr­ir­tækjum. Fólk þarf að ger­ast áskrif­endur að fjöl­miðlum til að stuðla að því að þeir hald­ist í rekstri og fyr­ir­tæki þurfa að sýna sam­fé­lags­lega ábyrgð í verki og kaupa aug­lýs­ingar í íslenskum fjöl­miðlum.“

RÚV af aug­lýs­inga­mark­aði

„Blaða­manna­fé­lagið hefur talað fyrir því að RÚV verði tekið af aug­lýs­inga­mark­aði, líkt og einka­reknu miðl­arnir hafa kallað eftir, en jafn­framt lagt áherslu á að tekju­tapið verði bætt upp, svo tryggt verði að Rík­is­út­varpið verði enn sem áður sú öfl­uga stofnun og mik­il­vægi fjöl­mið­ill sem hann er í dag,“ sagði for­mað­ur­inn um fram­tíð RÚV á aug­lýs­inga­mark­aði. „Til sam­an­burðar skal nefna að fram­lög rík­is­ins á hvern íbúa til almanna­þjón­ustu­miðl­anna á hinum Norð­ur­lönd­unum er álíka og hér í Danmörku og Svíþjóð en nokkuð hærri í Finn­landi og enn hærri í Noregi. Vegna fámennis hér ættu fram­lög á hvern íbúa að vera hæst hér á landi, til að tryggja að stofn­unin geti sinnt hinu mik­il­væga hlut­verki sínu í sam­fé­lag­inu – og því rétt­læt­an­legt út frá þeim sam­an­burði að bæta RÚV upp tapið sem það verður fyrir verði aug­lýs­inga­sala RÚV gerð óheimil.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi