Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Lögreglumaður fann unnustu sína meðal hinna látnu eftir hnífaárásina í Sydney

Lögreglumaður fann unnustu sína meðal hinna látnu eftir hnífaárásina í Sydney
Dawn og Ashley Mynd: Trausti Hafsteinsson

Lög­reglu­maður sem mætti á vett­vang eftir ban­vænu hnífa­árás­ina í Westfield-versl­un­ar­mið­stöð­inn í Sidney, Ástralíu, upp­götv­aði sér til skelf­ingar að unnusta hans var meðal sex fórn­ar­lambanna sem létu lífið í árásinni.

Ashley Wildey komst að því að æsku­ástin hans, hin 25 ára Dawn Singleton, hafi orðið fyrir hnífa­árás Joel Cauchi, sem gekk ber­sersks­gang á laug­ar­dag­inn í Westfield-versl­un­ar­mið­stöð­inni, þegar hann mætti á vett­vang eftir að lög­reglan hafði verið kölluð til. Singleton lést af sárum sínum.

„Ashley var kom­inn til Westfield þegar yfir­menn átt­uðu sig á því að unnusta hans var meðal fórn­ar­lambanna,“ sagði heim­ild­ar­maður Mirror í gær­kvöldi. Dawn, dóttir ríks aug­lýs­inga­mó­gúls, var lýst sem „ótrú­lega frá­bærri“.

Vinnu­veit­andi hennar, Fashion House White Fox Boutique, sagði: „Hún var ljúf, góð­hjörtuð mann­eskja sem átti allt sitt líf framundan. Hún var ótrú­lega frá­bær. Við erum öll gjör­sam­lega miður okkar. Við sendum sam­úð­ar­kveðjur til unnusta hennar, Singleton fjöl­skyld­unnar og vina hennar.“

Dawn hafði þegar keypt brúð­ar­kjól­inn sinn og hafði sent frá sér brúð­kaups­boðskort. Hún var ein af þremur dætrum og átta börnum þekkts ástr­alsks frum­kvöð­uls að nafni John Singleton, 82 ára.

Ashley var nýbú­inn að klára vakt sína þegar honum var sendur með sam­starfs­mönnum sínum í Westfield-versl­un­ar­mið­stöð­ina í Bondi Junction í Sydney klukkan 15:30 að stað­ar­tíma. Cauchi, fer­tugur, hafði þá farið í æðiskasti um versl­un­ar­mið­stöð­ina með hníf og myrt fimm konur og karl­kyns örygg­is­vörð. Fjöl­miðlar í Ástralíu hafa sagt frá því að Cauchi hafi beint árásum sínum sér­stak­lega að kven­mönnum.

Árásina hóf hann með því að stinga þriggja mán­aða stúlku og hélt áfram árásum sínum þar til lög­reglu­konan Amy Scott skaut hann til bana er hann hljóp í átt að henni.

Móðir barns­ins, Osteópat­inn Dr. Ashlee Good, henti dóttur sinni, Harriet, til veg­far­enda til að bjarga henni, rétt áður en hún var síðan stungin. Lækn­ir­inn lést á sjúkra­húsi klukku­stundum síðar. Harriet er sögð vera að jafna sig á sjúkra­húsi.

Fjöl­skylda Dr. Good sagði í yfir­lýs­ingu: „Í dag þjá­umst við vegna hins hræði­lega missis á Ashlee, fal­legrar móður, dóttur, systur, félaga, vin­konu, alls­herjar fram­úr­skar­andi mann­eskju og svo margt fleira. Við kunnum að meta kveðjur ástr­alsks almenn­ings sem hefur lýst yfir ást til Ashlee og litlu stúlkunnar okkar. Við getum greint frá því að eftir klukku­tíma skurð­að­gerð í gær gengur barn­inu okkar vel. Við erum svo þakk­lát fyrir umönnun sér­fræð­inga og læknateym­is­ins á Sydney Children’s Hospital. Fyrir menn­ina tvo sem héldu á og önn­uð­ust barnið okkar þegar Ashlee gat það ekki – geta orð ekki tjáð þakk­læti okkar.“

Hin fimm sem Cauchi myrti, lét­ust á vett­vangi. Þau voru hin 55 ára lista­kona Pikria Darchia, upp­haf­lega frá Tbilisi í Georgíu, hinn 47 ára arki­tekt frá Sydney, Jade Young, örygg­is­vörð­ur­inn Faraz Tahir, fæddur í Pakistan en hafði flutt til Ástralíu fyrir ári síðan og var á fyrstu vakt sinni í Westfield-versl­un­ar­mið­stöð­inni og hin 27 ára Yixuan Chen frá Kína. Hún er sögð hafa komið til Ástralíu til að læra hag­fræði við háskól­ann í Sydney. Auk hinna látnu slös­uð­ust einnig átta konur og tveir karl­menn en þau voru flutt á sjúkra­hús. Sum þeirra eru sögð vera í lífs­hættu.

Örygg­is­vörð­ur­inn Faraz Tahir

Örygg­is­vörð­ur­inn Faraz Tahir hefur verið hylltur sem hetja eftir að hafa verið stung­inn til bana í árásinni. Samkvæmt áströlskum fjöl­miðlum var hann á fer­tugs­aldri. Samfélag Pakistana í Ástralíu sendu frá sér yfir­lýstgu þar sem stóð: „Við skulum sýna sam­stöðu og bjóða þeim stuðn­ing og bænir sem syrgja eftir þennan hræði­lega missi.“

Fréttin er unnin upp úr frétt Mirror.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Heimur

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Heimur

Átta ára drengur skot­inn til bana

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi

Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco

Heimur

Dul­ar­fullt ákall á net­inu vekur ótta við óeirðir á Tenerife