Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Um 200 lík fundust í fjöldagröf á Gaza: „Þar er að finna eldri konur, börn og unga menn“

Um 200 lík fundust í fjöldagröf á Gaza: „Þar er að finna eldri konur, börn og unga menn“
Að minnsta kosti 180 lík fund­ust í gröf­inni Mynd: Trausti Hafsteinsson

Palest­ínu­menn hafa upp­götvað fjölda­gröf við Nasser-spít­al­ans í Khan Younis-borg á Gaza, þar sem 180 lík hafa fund­ist hingað til, að því er Al Jazeera hefur kom­ist að.

Upp­götv­unin var gerð á laug­ar­dag­inn og hélt áfram í gær, varð eftir að Ísra­els­her dró her­menn sína frá borg­inni 7. apríl. Meiri­hluti Khan Younis-borgar er eyði­lagður eftir gegnd­ar­lausar spreng­ingar og harða bar­daga und­an­farna mán­uði.

„Í spít­ala­garð­inum hafa almanna­varn­ar­liðar og sjúkra­liðar fundið 180 lík sem ísra­elski her­inn gróf í þess­ari fjölda­gröf. Þar er að finna eldri konur, börn og unga menn,“ sagði Hani Mahmoud, frétta­maður Al Jazeera, frá Khan Younis í gær.

Í yfir­lýs­ingu sem birt­ist seint á laug­ar­dag sagði palest­ínska neyð­ar­þjón­ustan: „Teymin okkar halda áfram leit sinni að písl­ar­vottum sem eftir eru á næstu dögum þar sem enn er umtals­verður fjöldi þeirra að finna.

Fyrr í vik­unni fannst fjölda­gröf á al-Shifa sjúkra­hús­inu, eftir tveggja vikna umsátur. Þetta var ein af mörgum fjölda­gröfum sem fannst við al-Shifa, sem er stærsta lækn­inga­stöðin í strand­hér­að­inu.

Stríð Ísraels á Gaza hefur drepið meira en 34.000 Palest­ínu­menn, sam­kvæmt stað­bundnum heil­brigð­is­yf­ir­völdum, lagt tvær stærstu borgir Gaza í rúst og skiluið eftir sig eyði­legg­ingu þvert yfir yfir­ráða­svæðið. Að minnsta kosti tveir þriðju hinna látnu eru börn og konur. Heil­brigð­is­yf­ir­völd segir einnig að raun­veru­legur fjöldi lát­inna sé lík­lega hærri þar sem mörg lík eru föst undir rústum eftir loft­árásir eða eru á svæðum sem læknar geta ekki náð til.

Ísrael hóf árásir sínar á Gaza eftir að bar­daga­menn Hamas og ann­arra palest­ínskra hópa gerðu árás innan Ísraels 7. októ­ber þar sem um 1.139 manns létu lífið og meira en 200 manns voru teknir til fanga.

Fjöldi barna drepin í árásum á Rafah

Á sama tíma eru árásir Ísraela í strand­hér­að­inu í gangi, þar á meðal á Rafah í suð­ur­hluta Gaza, þar sem árásir að nóttu til kost­uðu 22 manns lífið, þar af 18 börn, að sögn heil­brigð­is­yf­ir­valda í gær.

Fyrsta árásin snemma á sunnu­dags­morgun drap mann, eig­in­konu hans og þriggja ára barn þeirra, að sögn nær­liggj­andi starfs­manna Kuwaiti-sjúkra­hússin, sem tók á móti lík­unum. Konan var ólétt og læknum tókst að bjarga barn­inu, sam­kvæmt upp­lýs­ingum frá sjúkra­hús­inu.

Ísraelar hafa gert nær dag­legar loft­árásir á Rafah, þar sem meira en helm­ingur íbúa Gaza, sem eru 2,3 millj­ónir, hefur leitað skjóls frá bar­dögum ann­ars staðar.

Í næstu árás lét­ust 17 börn og tvær konur, öll úr sömu fjöl­skyldu, sam­kvæmt sjúkra­hús­gögnum. Í loft­árás í Rafah kvöldið áður lét­ust níu manns, þar af sex börn.

Hani Mahmoud, frétta­maður Al Jazeera frá Rafah, sagði að hót­anir um yfir­vof­andi inn­rás á jörðu niðri í Rafah væru að „vaxa“. „Heilu fjöl­skyld­urnar eru gerðar að skot­mörkum í þeim bygg­ingum sem þær hafa leitað skjóls í,“ sagði frétta­mað­ur­inn og hélt áfram: „Það er brotin örygg­is­til­finn­ing fyrir fólk sem þegar hefur orðið fyrir áföllum eftir að hafa flúið frá einum stað til ann­ars.“

Ísrael hefur einnig heitið því að auka sókn sína á jörðu niðri til borg­ar­innar á landa­mærum Egypta­lands þrátt fyrir alþjóð­legar kröfur um aðhald, þar á meðal frá Banda­ríkj­unum. Hins vegar halda Banda­ríkin áfram að útvega Ísraelum vopna­pakka á meðan þeir þrýsta á um að binda enda á árásis í stríð­inu. Á laug­ar­dag sam­þykkti full­trúa­deild Banda­ríkja­þings með víð­tækan stuðn­ing tveggja flokka, 95 millj­arða dala laga­pakka sem veitir Úkraínu, Ísrael og Taívan örygg­is­að­stoð.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Heimur

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Heimur

Átta ára drengur skot­inn til bana

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi

Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco

Heimur

Dul­ar­fullt ákall á net­inu vekur ótta við óeirðir á Tenerife