Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Morðin á White House-býlinu: Sex ára tvíburar á meðal fórnarlambanna

Morðin á White House-býlinu: Sex ára tvíburar á meðal fórnarlambanna

Þegar lög­reglan hafði brot­ist inn í húsið í morg­unsárið mætti henni ófögur sjón. Lík Nevills lá í eld­hús­inu. Hann var í nátt­föt­unum og lá yfir stól nálægt eld­stæð­inu. Þar bar allt þess merki að átök hefðu átt sér stað. Hann hafði verið skot­inn átta sinnum, sex skot höfðu hafnað í höfði hans og and­liti og ljóst að færið hafði verið stutt. Tvö skot höfðu hafnað í skrokknum og verið skotið úr aðeins meiri fjar­lægð.

Nevill var eitt fimm fórn­ar­lamba í einu versta fjöldamorði sem framið hefur verið í Bret­landi. Morðin eru kennd við White House-býlið í Sussex og á meðal fórn­ar­lambanna voru sex ára tví­burar.

Þorpið Tolles­hunt D’Arcy í Essex á Englandi varð vett­vangur einna hrylli­leg­ustu fjöldamorða sem framin hafa verið í Bret­landi. Voða­at­burð­irnir sem um ræðir áttu sér stað síðla kvölds 6. ágúst og að morgni 7. ágúst árið 1985 á White House-býli Bamber-hjón­anna.

Fimm með­limir Bamber-fjöl­skyld­unnar lágu í valnum þegar upp var staðið, þar á meðal tvö ung börn.

Syrgjandi sonur

Það sem gerði málið jafn­vel enn óhugn­an­legra var að sonur hjón­anna, Nevill og June Bamber, sem myrt voru, Jeremy Bamber, sem síðar var sak­felldur fyrir morðin, virt­ist nið­ur­brot­inn og var við­staddur jarð­ar­för allra fórn­ar­lambanna og tókst vel upp í hlut­verki hins syrgj­andi ætt­ingja.

Jeremy, sem var ætt­leiddur sonur Nevill og June Bamber, neitað sök, og gerir víst enn, og sagð­ist enga hlut­deild hafa átt í morð­unum á for­eldrum sínum, 28 ára stjúp­systur, Sheilu Caffell, og syni hennar, tví­burunum Daníel og Nicholas, sem þá voru sex ára.

Strax í kjöl­far morð­anna skellti Jeremy Bamber skuld­inni á Sheilu sem hafði verið greind með geð­klofa og var á ein­hverjum lyfjum. Reyndar var það svo að þegar Jeremy kom með lög­regl­unni á vett­vang morð­anna lagði hann sig fram um að full­vissa lög­regl­una um að Sheila væri „klikkuð“ og að auki kunni hún að hand­leika riffil föður þeirra.

Áður en ósköpin dundu yfir, að sögn Jeremys, hafði ríkt mikil spenna innan fjöl­skyld­unnar og mörg und­an­farin ár ein­kennst af deilum. Í þeim deilum höfðu trú­ar­leg við­horf June haft mikil áhrif og með árunum höfðu Sheila og Jeremy fjar­lægst for­eldra sína.

Þennan örlaga­ríka morgun sagð­ist Jeremy svo frá að hann hefði vaknað á heim­ili sínu við sím­hring­ingu klukkan hálf fjögur um nótt­ina. Þegar hann svar­aði heyrði hann föður sinn segja: „Sheila er með byss­una, hún er orðin óð, komdu fljótt.“ Að sögn Jeremys rofn­aði sam­bandið áður en fleira var sagt og alltaf á tali þegar hann reyndi að hringja til baka. Jeremy hringdi ekki í neyð­ar­lín­una af ótta við að hann gerði þannig úlf­alda úr mýflugu, því Sheila átti að hans sögn til að fá æðisköst. Þess í stað hringdi hann á næstu lög­reglu­stöð og bað lög­regl­una að hitta sig við býlið.

Undarlegar útskýringar

Síðar fannst lög­reglu ýmis­legt athuga­vert við það. Eitt af því sem vafð­ist fyrir lög­regl­unni var ástæða þess að Jeremy hringdi á næstu lög­reglu­stöð í stað þess að hringja í Neyð­ar­lín­una. Jeremy útskýrði það með þeim orðum að hann hafi ekki talið skipta máli hvenær lög­regl­una bæri að garði. Hann hefði varið ein­hverjum tíma í að finna núm­erið á lög­reglu­stöð­inni og hefði, þrátt fyrir að faðir hans hefði beðið hann að koma sem fyrst, hringt í Julie, kær­ustu sína, sem bjó í London. Síðan hefði hann ekið í hægðum sínum að býl­inu. Þrír lög­reglu­þjónar frá lög­reglu­stöð­inni í Witham stað­festu þetta með hæga­gang­inn á Jeremy. Þeir sögðu að hann hlyti að hafa ekið miklu hægar en þeir því þeir hefðu ekið fram úr honum og komið að býl­inu heilum tveimur mín­útum á undan honum.

Jeremy Bamber Lögregla fékk að lokum auga­stað á Jeremy.

Jeremy við­ur­kenndi að hann hefði að sjálf­sögðu getað hringt í vinnu­menn á býl­inu, en honum hefði ein­fald­lega ekki komið það í hug.

Áður hafði Jeremy reyndar sagt að hann hefði hringt í lög­regl­una strax að loknu sam­tali hans við föður sinn, og síðan hringt í Julie … hann útskýrði það mis­ræmi með því að segj­ast hafa verið ringlaður á þeim tíma.

Á vett­vangi spurði lög­reglan Jeremy hvort lík­legt væri að Sheila hefði „gengið ber­serks­gang með skot­vopn“, svar­aði hann: „Ég veit það bara ekki. Hún er klikkuð. Hún er búin að vera í með­ferð.“

Þegar lög­reglan hafði brot­ist inn í húsið í morg­unsárið mætti henni ófögur sjón. Lík föður Jeremys, lá í eld­hús­inu. Hann var í nátt­föt­unum og lá yfir stól nálægt eld­stæð­inu. Þar bar allt þess merki að átök hefðu átt sér stað. Hann hafði verið skot­inn átta sinnum, sex skot höfðu hafnað í höfði hans og and­liti og ljóst að færið hafði verið stutt. Tvö skot höfðu hafnað í skrokknum og verið skotið úr aðeins meiri fjar­lægð.

June, móðir Jeremys, var látin í svefn­her­bergi hjón­anna og ljóst að hún hafði verið skotin nokkrum sinnum þegar hún hafði reynt að kom­ast úr her­berg­inu. Líkami hennar og nátt­sloppur var þak­inn blóði. Lög­reglan taldi að hún hefði verið í sitj­andi stell­ingu þegar hún var skotin, en lík hennar lá við svefn­her­berg­is­dyrnar. Hún hafði verið skotin sex sinnum; einu sinni á milli augn­anna af stuttu færi, senni­lega um 30 sentí­metra.

Tví­burarnir höfðu verið skotnir nokkrum sinnum þar sem þeir lágu í rúmi sínu. Daníel hafði fengið fimm skot í hnakk­ann og Nikolas þrisvar sinnum. Öllum skotum hafði verið skotið af stuttu færi.

Sheila hafði verið skotin tvisvar sinnum. Lík hennar var á gólfi svefn­her­bergis for­eldra hennar, ekki langt frá líki móður hennar. Eitt skot­anna hafði hafnað í hálsi hennar og hitt undir hök­unni. Hálf­sjálf­virkur riff­ill lá í höndum hennar.

Geðheilsa Sheilu

Þegar Jeremy heyrði smá­at­riðin fékk hann áfall og virt­ist með engu skilja hvað hefði gerst og í vitna við­ur­vist kastaði hann upp á hlað­inu fyrir fram býlið.

Áður en lengra er haldið er vert að huga aðeins að Sheilu og þá sér­stak­lega geð­heilsu hennar. Hún átti að baki óham­ingju­ríkt hjóna­band, en þegar því lauk sótti á hana þung­lyndi sem síðar þró­að­ist í geð­klofa með ein­kenni væn­i­sýki. Í tvígang hafði hún verið lögð inn á sjúkra­hús og hafði reyndar verið útskrifuð af sjúkra­húsi aðeins örfáum dögum fyrir morðin. Í lækna­skýrslum var til þess tekið að sjúk­dómur hennar ein­kennd­ist af und­ar­legum við­horfum gagn­vart tví­bura­sonum hennar sem hún tal­aði um sem „börn djöf­uls­ins“

Einnig kom fram að Sheila hafði talað um að svipta sig lífi. Dagana fyrir morðin hafði Sheila ekki tekið lyf sem henni voru nauð­syn­leg til að hafa hemil á geð­sveiflum sínum. Að sögn Jeremys hafði kvöldið áður en morðin voru framin verið rætt hvort koma ætti tví­burunum í fóstur tíma­bundið vegna veik­inda Sheilu og ekki loku fyrir það skotið að sú umræða hefði valdið æðiskasti hjá Sheilu. Vit­neskjan um geð­heilsu Sheilu og aðkoman á vett­vangi morð­anna varð til þess að lög­reglan dró þá ályktun að Sheila hefði myrt börnin, for­eldra sína og síðan svipt sig lífi.

Talið var að Sheila hefði fengið kast og tryllst svo svaka­lega að hún hefði banað ráð­ríkum for­eldrum sínum og tví­bura­sonum áður en hún beindi riffl­inum að sjálfri sér og svipti sig lífi.

Í fjöl­miðlum sem fjöll­uðu um málið var máluð upp sú mynd af Jeremy að hann væri nið­ur­brot­inn og bug­aður af sorg sem skellti sök­inni á Sheilu, eða öllu heldur á sjúk­dóm hennar í þessu máli öllu.

White House-býlið Vett­vangur grimmi­legra morða.

Rúmlega mán­uði eftir morðin sner­ist lög­regl­unni hugur. Eftir að hafa túlkað vís­bend­ingar á annan hátt komst hún að þeirri nið­ur­stöðu að Jeremy Bamber hefði framið morðin og svið­sett vett­vang­inn. Reyndar var „Taff“ Jones, sem fór fyrir rann­sókn­inni, þeirrar skoð­unar að Sheila hefði framið morðin, en Jones var tek­inn úr rann­sókn­inni og lést af slys­förum áður en rétt­ar­höld vegna morð­anna hófust.

Nýtt sjónarhorn lögreglu

Það sem olli sinna­skiptum lög­regl­unnar var ekki síst vitn­is­burður Julie Mugford, kær­ustu Jeremys, en vitn­is­burð­ur­inn bendl­aði Jeremy við morðin, svo ekki varð um villst að mati lög­regl­unnar.

Fór þá lög­reglan að líta öðrum augum á ýmsar vís­bend­ingar af vett­vangi og var þar ýmis­legt sem renndi stoðum undir þann grun að Jeremy, sem var orð­inn eini eft­ir­lif­andi erf­ingi auð­æfa Bamber-hjón­anna, væri sá eini seki.

Á meðal þess sem stakk í augun var sú stað­reynd að Sheila hafði verið skotin tvisvar sem var í hróp­legri mót­sögn við þá full­yrð­ingu að hún hefði framið sjálfs­víg.

Einnig fund­ust fingraför Jeremys á riffl­inum sem hafði verið not­aður við morðin og hljóð­deyfir fannst í húsi fjöl­skyld­unnar, fjarri hinum eig­in­lega vett­vangi. Ekki bætti úr skák að Julie sagði að Jeremy hefði iðu­lega viðrað löngun til að drepa for­eldra sína. Lög­reglan taldi einnig ólík­legt að brot­hætt ung kona, sem auk þess var á sterkum lyfjum, hefði haft krafta til að slást við föður sinn, sem var þokka­lega stór, og særa hann skoti áður en hún barði han síðan til bana í eld­hús­inu, þar sem hann hafði greini­lega verið að teygja sig í sím­ann, jafn­vel til að ná sam­bandi við neyð­ar­lín­una.

Eftir að Jeremy var hand­tek­inn mistókst honum að vinna almenn­ing á sitt band og slíkt hið sama átti við eftir að rétt­ar­höld hófust yfir honum. Ein­hverra hluta vegna hafði gott útlit Jeremys slæm áhrif á fólk sem fannst sem hann væri hroka­fullur og stæði nokkurn veg­inn á sama um allt og alla.

Sak­sókn­ar­inn full­yrti að Jeremy hefði myrt fjöl­skyldu sína til að koma höndum yfir arf upp á tæp 500.000 sterl­ingspund og tíu kvið­dóm­arar af tólf voru sama sinnis og sak­sókn­ar­inn. Auk umrædds arfs átti Bamber-fjöl­skyldan viða­miklar eignir; fimm býli, pökk­un­ar­verk­smiðju að hluta til, og hjól­hýsa­stæði sem velti 1.000.000 sterl­ingspundum á ári. Sak­sókn­ari hélt því fram að Jeremy hefði ekki stað­ist þá freist­ingu að myrða fjöl­skyldu sína til að kom­ast yfir þessar verð­mætu eignir.

Veigamikill vitnisburður

Sem fyrr segir grund­vall­að­ist sak­fell­ing Jeremys að hluta til á vitn­is­burði Julie Mugford, kær­ustu hans, en þess má geta að kvöldið fyrir morðin sagði vin­kona hennar, Liz Rimm­ington, að hún sjálf hefði átt í kyn­ferð­is­legu sam­bandi við Jeremy, og ekki úti­lokað að henni hafi verið hefnd í huga þegar hún setti sig í sam­band við lög­regl­una næsta morgun.

Lög­reglan komst að því að Mugford hafði framið glæpi; hún hafði framið inn­brot á Osea-hjól­hýsa­stæð­inu, sem var í eigu Bamber-hjón­anna, verslað með kanna­bis og kom­ist yfir fé með fölsuðum ávís­unum. Lög­reglan bauð Julie Mugford frið­helgi gegn því að hún bæri vitni við rétt­ar­höldin yfir Jeremy Bamber. Að sögn áður­nefnds Scotts Lomax greiddi dag­blaðið News of the World Julie 25.000 sterl­ingspund fyrir að segja sögu sína. Að mati verj­enda Jeremys hafði Julie veru­legan hagnað af því að bera vitni gegn Jeremy; hún náði fram hefnd, komst í álnir og var áfram frjáls kona, þökk sé samn­ingnum við lög­regl­una.

Drake, dóm­ar­inn við rétt­ar­höldin, sagði við Jeremy að Jeremy væri „brenglaður og illur“ og mælt­ist til þess að hann ekki yrði íhugað að veita honum frelsi fyrr en hann hefði að minnsta kosti verið tutt­ugu og fimm ár á bak við lás og slá, þannig að hann yrði í fang­elsi til 2010. Reyndin er sú að Jeremy er enn á bak við lás og slá. Nú þegar hefur þremur áfrýj­un­ar­beiðnum Jeremys verið hafnað. Nefnd sem fer yfir gömul saka­mál þar sem grunur leikur á að menn hafi verið rang­lega dæmdir fór yfir sönn­un­ar­gögn í mál­inu.

Jeremy Bamber tók lyga­mælis­próf, sem er þáttur með­ferðar nefnd­ar­innar, og stóðst prófið. Jeremy hefur ávallt haldið fram sak­leysi sínu og hefur gefið í skyn að um sam­særi sé að ræða af hálfu ann­arra fjöl­skyldu­með­lima.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Heimur

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Heimur

Átta ára drengur skot­inn til bana

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi

Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco

Heimur

Dul­ar­fullt ákall á net­inu vekur ótta við óeirðir á Tenerife