Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fyrrum tengdapabba Diddy býður við myndbandinu: „Ég myndi ekki koma svona fram við óvin minn“

Fyrrum tengdapabba Diddy býður við myndbandinu: „Ég myndi ekki koma svona fram við óvin minn“

Faðir Kim Porter, Jake Porter, lýsir and­styggð sinni yfir nýlega birtu mynd­bandi af Sean „Diddy“ Combs, sem réðst á söng­kon­una Cassie Ventura árið 2016. Diddy er fyrr­ver­andi tengda­sonur Jake.

Jake ræddi við Rolling Stone tíma­ritið á föstu­dag­inn en dóttir hans, Kim heitin, var í sam­bandi með Diddy í fjöldi ára og átti með honum þrjú börn. Í við­tal­inu gagn­rýndi Jake tengda­son­inn fyrr­ver­andi harð­lega, vegna mynd­bands sem lak nýlega á vef­inn.

„Þú mátt segja að mér bjóði við mynd­band­inu,“ sagði Jake í við­tal­inu. „Ég myndi ekki koma svona fram við óvin minn. Þetta var fyr­ir­lit­legt.“

CNN birti mynd­band í maí sem sýnir lík­ams­árás Diddy á þáver­andi kær­ustu sinni, Cassie Ventura árið 2016 á gang­inum á InterContinental hót­el­inu í Century City, Los Angeles. Í mynd­band­inu sést Cassie fara út úr hót­el­her­bergi og ganga að lyftu. Diddy, með hand­klæði um mittið á sér, hleypur á eftir söng­kon­unni og grípur hana í hnakk­ann og kastar henni í gólfið. Hann snýr sér svo til að sparka í hana þar sem hún liggur á jörð­inni. Því næst tekur Diddy upp veski hennar sem dottið hafði á gólfið, áður en hann snýr sér svo við til að sparka aftur í Cassie. Tekur hann svo í hett­una á peys­unni hennar og dregur hana eftir gang­inum en sleppir henni svo og gengur í átt að her­bergi sínu. Cassie hljóp þá aftur að lyft­unum og kom sér út.

Hér má sjá mynd­bandið en les­endur eru varaðir við myndefn­inu:

„Ég trúði því ekki,“ sagði Jake um ofbeldið sem sést í mynd­band­inu. „Ég var í Víetnam og ég myndi ekki gera þetta við óvin minn.“ Bætti hann við að þó að hann hafi aldrei séð ógn­andi hegðun Diddy gagn­vart dóttur hans, eða ofbeldi á meðan þau áttu í ást­ar­sam­bandi, þá velti hann nú fyrir sér, eftir að hafa séð mynd­bandið, hvort slíkt gæti hafa gerst.

„Ég vissi ekki að hann gæti lagst svo lágt,“ sagði Jake. „Ég ímynda mér að þetta hafi komið mörgum á óvart. Ég myndi ekki einu sinni gera svona við hund. Hugur minn er hjá Cassie.“

Jake deildi líka hugs­unum sínum um ást­ar­sam­band Diddy við dóttur sína en þau hættu saman og byrj­uðu aftur saman ítrekað frá 1994 til 2007, og sagði í við­tal­inu að honum hafi þótt Diddy vera „mjög afbrýði­samri mann­eskju“ og það hafði áhrif á sam­band þeirra.

„Þau elsk­uðu hvort annað. Ást Kim var sönn. Ást Puffy (eitt af fjöl­mörgum lista­manna­nöfnum Diddy), ég veit ekki hvað hann kallar ást, þú veist hvað ég meina? Ég held í raun­inni að hann hafi ekki hug­mynd um hvað ást er,“ sagði Jake.

Á þessum 13 árum eign­uð­ust Kim og Diddy þrjú börn, tví­bura­dæt­urnar Jessie James og D´Lila, (17), og son­inn Christian (26). Kim átti svo son­inn Quincy úr fyrra sam­bandi.

Kim, Diddy og börnin

Kim lést úr lungna­bólgu 15. nóv­em­ber, 2018, 47 ár að aldri.

Hið sjokker­andi mynd­band rennur stoðir undir ásak­anir Cassie á hendur Diddy en í fyrra kærði hún hann fyrir gróf brot gegn sér, þar á meðal nauðgun árið 2018.

Cassie og Diddy opin­ber­uðu sam­band sitt árið 2012, en höfðu allt frá 2007 verið sögð hafa átt í ein­hvers konar sam­bandi. Árið 2008 söng Cassie með Diddy í lagi hans Swagga Like Puff og árið 2009 söng hann með Cassie í lagi hennar Must Be Love. Þau hættu saman í októ­ber 2018.

Cassie heldur því fram að rapp­ar­inn hafi byrj­aði að stjórna henni og mis­nota aðeins nokkrum árum eftir að útgáfu­fyr­ir­tæki hans, Bad Boy Records, gerði við hana samn­ing. Segir hún að Diddy hafi meðal ann­ars kynnt henni fyrir „lífstíl sem inni­hélt mikla áfeng­is­drykkju og fíkni­efna­neyslu og að hann hafi neytt hana til að útvega sér ólög­lega lyf­seðla, til að full­nægja fíkn hans.“

Söng­konan segir að Diddy hafi oft kýlt, lamið, sparkað og stappað á henni, sem olli henni mar­blettum, sprungna vör, glóð­ar­auga og blæð­ingum.

Degi eftir að hún lagði fram kæruna, sömdu þau um sátt­ar­greiðslu.

Stuttu eftir að mynd­bandið birt­ist í síð­asta mán­uði, birti Diddy mynd­band þar sem hann baðst afsök­unar á hegðun sinni.

„Hegðun mín á mynd­band­inu er óaf­sak­an­leg. Ég tek fulla ábyrgð á gjörðum mínum í því mynd­bandi,“ sagði Diddy í mynd­band­inu. „Mér ofbauð þá, þegar ég gerði þetta. Mér ofbýður núna. Ég fór og leit­aði til fag­að­ila. Ég fór í með­ferð, fór í end­ur­hæf­ingu.“

Lög­mann­steymi Cassie brást við afsök­un­ar­beiðn­inni í gær með yfir­lýs­ingu á ET:

„Nýjasta yfir­lýs­ing Combs snýst meira um hann sjálfan en marga sem hann hefur sært,“ sagði Meredith Firetog, félagi hjá Wigdor LLP lög­manns­stof­unni. „Þegar Cassie og margar aðrar konur komu fram, neit­aði hann öllu og gaf í skyn að fórn­ar­lömb sín væru eftir pen­ingum. Að hann hafi aðeins verið neyddur til að „biðj­ast afsök­unar“ þegar ítrek­aðar neit­anir hans reynd­ust rangar sýnir aumk­un­ar­verða örvænt­ingu hans, og eng­inn mun trúa hans óein­lægu orðum.“

Fréttin er unnin upp úr frétt ET.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Heimur

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Heimur

Átta ára drengur skot­inn til bana

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi

Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco

Heimur

Dul­ar­fullt ákall á net­inu vekur ótta við óeirðir á Tenerife