Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Náðu mögulega ljósmynd af Jay Slater tíu tímum eftir hvarfið: „Hverjir eru þessir tveir menn?“

Náðu mögulega ljósmynd af Jay Slater tíu tímum eftir hvarfið: „Hverjir eru þessir tveir menn?“
AirBnB íbúðin Mynd: Trausti Hafsteinsson

Fjöl­skylda hins týnda ung­lings, Jay Slater, hafa deilt mynd úr örygg­is­mynda­vél sem gæti sýnt dreng­inn klukku­stundum eftir að hann sást síð­ast á Tenerife.

Myndin, sem er óskýr, er talin vera frá örygg­is­mynda­vél í bænum Santiago del Teide um það bil 18:00 á mánu­dags­kvöld, tíu klukku­stundum eftir að hann er sagður hafa sést síð­ast, í fjalla­þorp­inu Masca.

Er þetta Jay vinstra meg­inn?

Myndin birt­ist stuttu eftir að Debbie Duncan (55), móðir hins 19 ára Jay, hafði sagt að vitni hefði til­kynnt lög­reglu að það hefði séð Jay í þorp­inu Santiago með tveimur mönnum á mánu­dags­kvöld.

Pabbi Jay, Warren (58), sem hengdi upp vegg­spjöld í Santago á sunnu­dag­inn sagði: „Maður hugsar sér hvort hann sé í haldi ein­hvers. Af því að sama hversu drukk­inn þú ert eða hvað eina, þá ferðu ekki af veg­inum þarna uppi. Og það er fólk þarna uppi … og þú ferð ekki eftir þessum vegi í meira en 20 mín­útur þar til ein­hver stoppar þig eða mætir þér.“

Zac, bróðir Jay og pabb­inn Warren

Og hann hélt áfram: „Ég vissi um leið og ég fór þangað upp að hann hefði ekki farið af þessum vegi. Hann er ekki heimskur. Þegar ég sá lög­regl­una spurði ég hana: „Í alvör­unni, hefðuð þið farið af þessum vegi?“ og ég held að það hafi vakið þá aðeins upp.“

Warren hélt enn áfram: „Þetta byrj­aði sem leit að gaur sem hafi farið í göngu og týnst eða að hann hafi mögu­lega dottið. En það meikar engan sens. Enginn myndi ganga af þessum vegi. Af hverju ætti hann að hafa farið upp á við? Það er hættu­legt, þetta er risa­stórt fjall. Þetta ekki bara brekka. Það var ekki fyrr en ég fór þangað sjálfur að ég tók eftir þessu. Fólk sem fer út að skemmta sér fer ekki þangað upp.“

Jay, sem kemur frá Oswaldtwistle í Lanca-skíri, dvaldi í Airbnb-hús­næði tveggja manna í Masca, sem er þorp í norð-vest­ur­hluta eyj­ar­innar en mikið fjal­lendi umkringir þorpið. Þangað fór hann með mönn­unum eftir að hafa sótt NRG tón­list­ar­há­tíð­ina ásamt tveimur vinum sínum. Eigandi Airbnb-hús­næð­is­ins er sá sem síð­ast sá Jay, sem sá hann ganga í burtu eftir að hafa spurt hvenær næsta rúta færi þaðan til suð­ur­hluta Tenerife, þar sem hann hafði dvalið með vinum sínum.

Nú eru liðnir átta dagar frá því að leit að honum hófst í hinum hrjóstruga Rural de Teno-garði. Í leit­inni hafa fjalla­björg­un­ar­sveitir tekið þátt, stað­bundin lög­regla, Civil Guard lög­reglan og slökkvi­lið­is­menn en allt án árang­urs.

Eins og fram kom áður er nú verið að skoða hvort hin óskýra mynd úr örygg­is­mynda­vél í bænum Santiago del Teide, sé af Jay en hún náð­ist klukkan 18:00 á mánu­dags­kvöldið.

Móðir Jay, Debbie, sagði um hugs­an­lega mynd af drengnum í Santiago del Teide: „Einhver hefur stigið fram til að seg­ist hafi séð ein­hvern sem hann heldur að gæti verið Jay á gangi. Hann var með tveimur mönnum sem litu frekar illa út og þeir voru við kirkju, þessi mann­eskja hefur komið fram og sagt lög­regl­unni frá þessu og hún er að skoða málið. Við vitum ekki fyrir víst hvort þetta sé Jay, en þetta er byrjun. Þeir sögðu að myndin hafi verið tekin um sex­leytið sem er tíu klukku­stundum eftir að konan sá hann í þorp­inu. En ef það var hann, hvað var hann að gera þarna og hverjir eru þessir tveir menn?“.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Heimur

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Heimur

Átta ára drengur skot­inn til bana

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi

Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco

Heimur

Dul­ar­fullt ákall á net­inu vekur ótta við óeirðir á Tenerife