Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Gengið eftir endilöngum Okvegi – Fegurð auðnar og fjalla MYNDIR

Gengið eftir endilöngum Okvegi – Fegurð auðnar og fjalla MYNDIR
Á Okvegi. Mynd: rt

Við lögðum upp í göng­una frá bænum Giljum í Hálsa­sveit. Þarna hafði ég oft komið á æsku­árum í útreið­ar­túrum frá Búrfelli. En þá hafði ég ekki hug­mynd um þann gullna veg sem liggur með­fram Oki og alla leið á Uxa­hryggi. Við upp­haf göng­unnar skammt frá bæj­ar­hlað­inu í Giljum er skilti sem vísar á Okveg og fyrsta rauða­mál­aða stikan af fjöl­mörgum blasir við okkur. Þar lögðum við bif­reiðum okkar með leyfi land­eig­anda og gangan hófst í byrjun júlí­mán­aðar árið 2024.

Hug­myndin að göngu­ferð­inni um Okveg varð í fram­haldi þess að Guð­laugur Ósk­ars­son fyrr­ver­andi skóla­stjóri á Klepp­járns­reykjum, lauk því þrek­virki að stika alla 30 kíló­metrana frá Giljum að Brunn­vatni við Uxa­hryggi. Ferða­fé­lag Íslands stóð fyrir göng­unni sem var ekki síst farin til að kynn­ast svæð­inu og útfæra ferðir um svæðið norðan Oks.

Okveg­ur­inn hinn forni var lengi vel hluti af helstu þjóð­leið­inni á milli Norð­ur­lands og Suð­ur­lands. Norð­an­menn, sem komu um Arn­ar­vatns­heiði gátu valið um að fara Kaldadal, sunnan Oks, Okveg eða Uxa­hryggja­leið. Víst er að fyrr á öldum var leiðin fjöl­farin og þá sér­stak­lega þegar Alþingi kom saman á Þing­völlum. En eftir að bíla­öld gekk í garð og sæmi­legur vegur var lagður um Kaldadal lagð­ist Okvegur af. Gatan var smám saman að týn­ast og gleym­ast þegar Guð­laugur skóla­stjóri tók sig til og kort­lagði leið­ina og stik­aði.

Snillingurinn Páll

Dagurinn byrj­aði í Húsa­felli þar sem snill­ing­ur­inn Páll Guð­munds­son sýndi okkur mál­verk sín, hljóð­færi og högg­myndir. Allt gert úr hrá­feni íslenskrar nátt­úru. Hann töfraði fram seið­andi lög spiluð á flautu sem var að hluta úr rabbabara. Eftir gæða­stund þar sem Páll sagði okkur sögur og sýndi okkur verkin sín var haldið að Giljum og lagt af stað í ferð­ina góðu.

Við vorum fjögur og hund­ur­inn Tindur sá fimmti. Við gengum upp með Valagili. Ferðin sótt­ist fremur hægt, enda var fólk að venj­ast því að vera með 15-20 kíló á bak­inu. Fyrsti áfangi leið­ar­innar var að Smjör­tjörn. Nafnið lof­aði góðu og við sögðum í gríni að hugs­an­lega drypi þar smjör af hverju strái. Veðrið var fínt og dálít­ill gustur í bakið. En það var þoka á hálend­inu og Okið á kafi. Upp­lifunin var dul­mögnuð. Ósjálfrátt varð manni hugsað til for­feðra vorra sem fóru þennan veg í alls­konar veðrum. Við sil­uð­umst áfram upp fjalls­hlíð­ina með Gilja­hnúka á hægri hönd. Fyrr en varði vorum við komin inn í sudd­ann og útsýnið minnk­aði. Við ræddum með til­hlökkun okkar í milli að það stytt­ist í Smjör­tjörn þar sem við myndum nátta. Við rákum upp stór augu þegar tjörnin birt­ist handan við hæð­ar­drag.

Hráslagi við Smjörtjörn

Þetta reynd­ist vera þónokkuð stórt vatn en þar var ekki sting­andi strá að sjá. Við nán­ari skoðun þá glitti í grænan blett, tals­vert utan vegar. Vindur var vax­andi. Við náðum að koma tjöld­unum niður eftir nokkurn barn­ing. Hrá­slag­inn gerði það að verkum að ekki var annað til ráða en að skríða inn í tjöldin. Svo kom nóttin með and­vöku. Ekkert síma­sam­band. Vind­ur­inn hélt vöku fyrir fólki og hundi framan af nóttu en svo dúraði og tjald­búar festu svefn í kyrrð­inni. Fugla­söngur í fjarska og hugs­an­lega gagg í tófu flétt­að­ist inn í draumana. Við vorum börn óbyggð­anna.

Klukkan var átta að morgni laug­ar­dags þegar fólk reis af beðum sínu. Sólin hafði hrakið sudd­ann á brott og yfir okkur gnæfði Okið með sinni tign­ar­leg öxl í allri sinn feg­urð. Prímusar voru ræstir og hafra­grautur eld­aður. Eftir stað­góðan morg­un­verð var gert klárt fyrir brott­för. Við höfðum lagt að baki átta kíló­metra og stefnt var að 12 kíló­metrum þennan dag­inn.

Handan við Okið

Áfram lá leiðin um gróna göt­una. Rauð­mál­aðar stik­urnar vís­uðu okkur veg­inn. Eftir stutta göngu komum við í Rauðs­gils­drög. Hugurinn reikar til Jóns Helga­sonar pró­fess­ors sem ólst upp á Rauðs­gili og orti betur en flestir um íslenska nátt­úru. Handan við Okið er hafið grátt, segir í ljóð­inu Á Rauðs­gili. Norðan við okkur er Fella­fló­inn þar sem finna má gam­alt spor eftir lít­inn fót. Þar eru líka und­urfagrir fossar Rauðs­gils sem við munum ekki heim­sækja að þessu sinni.

Við höldum áfram göng­unni. Slétta­fell kúrir í lands­lag­inu norðan við okkur. Það minnir mig á ungan dreng í smala­mennsku meða afa sínum og móð­ur­bróður. Sú var tíðin að mikil dulúð var yfir hálend­inu ofan Búrfells þar sem amma og afi bjuggu í fjöru­tíu ár. Heimur barns­ins mark­að­ist af Okinu og Hálsinum í Hálsa­sveit. Seinna bætt­ist Flateyri við með allri sinni norð­aust­an­átt. Þegar komið er upp á bæj­ar­fjallið, Búrfell, mátti sjá Slétta­fell og Fann­t­ó­fell. Svo var það auð­vitað sjálft Okið, ris­inn í land­inu. Þangað áttu hjónin á Búrfelli land.

Fann­t­ó­fell blasir við göngu­fólk­inu á vinstri hönd. Þangað upp kom ég fyrir 10 árum. Sú ganga var ógleym­an­leg. Efst í skrið­unni gekk maður tvo skref og rann eitt skref til baka. En það hafð­ist og upp­skeran var stór­kost­legt ústýni yfir Borg­ar­fjörð af 900 metra háu fjall­inu. Austur af Fann­t­ó­felli er Lykla­fell, rúm­lega 800 metra hátt. Suður af fjall­inu er fyr­ir­bæri sem nefn­ist Dauðs­manns­hóll. Það má ímynda sér að þar hafi átt sér stað harm­leikur.

Skáldið Kristmann

Það var tals­vert liðið á dag­inn þegar 12 kíló­metr­arnir voru að baki og tíma­bært að leita að tjald­stað. Blámi var kom­inn á Oköxlina. Við fundum okkur fljót­lega fal­legan reit, þvert af Fann­t­ó­felli. Neðan Okvegar mátti sjá Skot­manns­fell sem að vísu var mun lægra eða um 430 metrar. Skot­mann­stjarnir kúra í skjóli þess. Klukkan var ekki nema rétt rúm­lega sex þegar búið var að tjalda og fólk hafði nært sig. Veðrið var frá­bært. Þetta var eins og við værum römmuð inn í ævin­týri. Fjalla­hring­ur­inn var dásam­legur undir heið­skýrum himni. Í fjarska mátti sjá Akra­fjall og Skarðs­heiði. Botns­súlur, Hlöðu­fell og Skjald­breiður voru öll á sínum stað. Þverfell, sem lokar Lunda­reykja­dal að ofan­verðu, var skammt undan. Það rifj­að­ist upp að frá bænum Þver­felli  kemur skáldið Krist­mann Guð­munds­son sem á sínum tíma var einn vin­sæl­asti rit­höf­undur lands­ins og víðar um heim­inn. Hann var einnig umtal­aður fyrir einka­líf sitt og þau sjö hjóna­bönd sem hann átti að baki.

Okvegur. Skjald­breiður og Súlurnar í fjarska.

Fólk var fljótt að festa svefn í skjóli Fann­t­ó­fells. Að þessu sinni var vind­ur­inn til friðs og nóttin kyrr­lát. Rakkinn Tindur ákvað að tjald hent­aði honum ekki og hann eyddi nótt­inni á lyng­beði utandyra. Við vökn­uðum á sunnu­degi í glaða­sól­skini. Framundan var sein­asti hluti Okvegar að Brunn­vatni við Uxa­hryggi. Eftir hefð­bund­inn morg­un­mat sem sam­an­stóð af hafra­graut, flat­brauði og súkkulað­irús­ínum var pakkað saman og haldið af stað. Landið var að mestu gróið og mel­arnir sem voru ráð­andi við Smjör­tjörn voru að baki. Við þræddum mold­ar­götur. Þarna var Illa­kelda sem ber nafn sitt af því að þar áttu hestar til að sökkva í eðju og fest­ast með til­heyr­andi vand­ræðum. Á þessum slóðum liggur veg­ur­inn í hlykkjum til að sneiða hjá for­ar­vilp­unum.

Það er ekki annað hægt en að elska þetta land

Á göng­unni var margt til að næra sál­ina. Heiðblár him­inn yfir okkur og fjalla­hring­ur­inn tók stöð­ugum breyt­ingum. Okið tók smám saman á sig bláan lit fjar­lægð­ar­innar. Skallinn á Þór­isjökli varð greini­legur. Spói vellir í fjarska og stöku lóa flýgur yfir höfðum okkar. Á leið okkar brosa blómin við okkur. Geld­inga­hnappur, holta­sóley og lamba­gras eru í blóma. Stöku ljós­berar færa okkur yl í sál­ina með feg­urð sinni og þokka. Lífs­gæðin sem fel­ast í para­dís hálend­is­ins umvefja okkur. Það er ekki annað hægt en að elska þetta land.

Það stytt­ist í loka­tak­markið við Brunna­vatn, rétt norður af Sælu­húsa­hæðum. Við sjáum veg­inn um Kaldadal þar sem við nálg­umst Langás. Fyrr en varði vorum við komin að lít­illi á við Brunn­vatn. Við stikluðum yfir hana og síð­asta stikan hans Guðlaugs blasti við okkur. Fyrr en varði voru við aftir komin inn í nútím­ann og upp í fjór­hjóla­drif­inn jeppa. Rás 2 tók yfir fugla­söng­inn.

Við ókum um Kaldadal til baka. Þetta var eins og að hraðspóla í gegnum þriggja daga göngu­ferð. Að þessu sinni fórum við handan við Okið. Það er slá­andi dæmi um fjöl­breyti­leika fjalla að frá Kaldadal aust­an­verðum er Okið lítt aðlað­andi. Urð­ar­brekkur ein­kenna þetta sjón­ar­horn á meðan Þór­is­jök­ull með sinn kúpta og hvíta koll er glæsi­leik­inn upp­mál­aður. Séð frá Borg­ar­firði og Okvegi er Okið aftur á móti tign­ar­legt fjall með sína hábungu og öxl. Þaðan sést ekki Þór­is­jök­ull. Á öku­ferð­inni um Kaldadal rifj­ast upp sagan af Beina­kerl­ingu. Þeir sem áttu leið um áttu það til að henda fram stöku setja á blað sem stungið var inn í vörð­una. Næstu menn glödd­ust svo við að lesa og svör­uðu hugs­an­lega með nýju vísu­korni. Þetta er auð­vitað liðin tíð og nútíma­fólk lætur sér nægja að henda ein­hverju á Facebook, Instragram eða TikTok. Þessir erlendu risar eru beina­kerl­ingar nútím­ans.

Við njótum akst­urs­ins þar sem við rennum fram­hjá Presta­hnúki, Geitlandsjökli, Langjökli og Hádeg­is­fell­unum tveimur. Við okkur blasa Eiríks­jök­ull, Hafra­fell og Strútur. Fyrr en varir er Húsafell að baki og við lokum hringnum í Giljum. Sann­kallað ævin­týri í óbyggðum er að baki. Það er ekki laust við að sökn­uður geri strax vart við sig þegar horft er upp eftir hlíð­inni þar sem fót­spor okkar um fyrsta hluta Okvegar liggja. „Ég kem aftur,“ er sú hugsun sem nær yfir­hönd­inni.

Grein­ar­höf­undur, Reynir Trausta­son, á Okvegi.
Rakkinn Tindur og far­ar­stjór­inn Guðrún í góðu yfir­læti í tjald­inu undir Fann­t­ó­felli.
Tjaldað í skjóli Oksins við Smjör­tjörn.
Ein á gangi í óbyggðum. Þór­is­jök­ull, Hrúð­ur­karlar og Björns­fell í bak­sýn.
Rakkinn Tindur leit­aði skjóls undan sól­inni í skugga.
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Landið

Landið

Límdu yfir hraða­mynda­vél lög­reglu

„Það er svo sannarlega þörf á hraðamælingum“
Landið

Forbes vekur athygli á nýju ferða­manna­gjaldi á Íslandi

Landið

Breskur stór­mið­ill velur fimm stór­kost­leg­ustu fossa Íslands

Landið

Vilja vernda nátt­úruperlu í Skriðdal

Landið

Skortur á leik­skóla­plássum tefur end­ur­komu starfs­fólks HSA

Landið

Björg­un­ar­bún­aður og bætt öryggi til skoð­unar við Stuðla­gil