Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Vitni lýsa fjöldamorðinu í al-Tabin skólanum sem martröð: „Hver mun kalla mig „mömmu Sumaya núna?“

Vitni lýsa fjöldamorðinu í al-Tabin skólanum sem martröð: „Hver mun kalla mig „mömmu Sumaya núna?“

Vitni að fjöldamorði Ísra­els­hers í al-Tabin skól­anum á Gaza þann 10. ágúst síð­stlið­inn, sem „dóms­dag“. Um það bil hund­rað lét­ust í árásinni, flest konur og börn.

Frétta­stofan Al Jazeera birti í dag við­töl við vitni af því blóð­baði sem Ísra­els­her stóð fyrir morg­un­inn 10. ágúst síð­ast­lið­inn þegar um 100 konur, börn og gam­al­menni voru drepin með banda­rískum vopnum í al-Tabin skól­anum á Gaza, þar sem fjöl­margir Palest­ínu­búar á flótta höfðu leitað skjóls í. Árásin var gerð eldsnemma að morgni, þegar karl­menn­irnir voru að neðri hæð húss­ins við bænir en sprengju­árásin var gerð á efri hæð­ina, þar sem kon­urnar, börnin og gam­al­mennin voru.

Sumaya Abu Ajwa missti stjúp­dætur sínar tvær, sem hún hefur alið upp sem sínar eigin dætur. „Ryk og eldur umlék allt. Þetta var eins og dóms­dagur. Ég byrj­aði að leita að stelp­unum, ég fann þá yngri. Ég tók hana í fangið og blóðið úr henni renn­bleytti fötin mín,“ sagði hún grát­andi við frétta­mann Al Jazeera. Og hélt áfram: „Ég fór svo aftur inn í eld­inn að leita að hinni dóttur minni. Þegar ég fann hana svo sá ég að lík­ami hennar var rif­inn í tvennt.“ Sumaya sagði að stelp­urnar hefðu verið dæt­urnar sem hún gat aldrei eign­ast. „Hver mun kalla mig „mömmu Sumaya núna?“ Ég þrái að heyra þessi orð meira en nokkuð annað.“

Suzan Al-Basyouni varð einnig vitni að hryll­ingnum: „Vett­vangur fjöldamorðs­ins er greyptur inn í heil­ann á mér. Eins og ég hafi verið í hryll­ings­mynd. Ég var að leita að eig­in­manni mínum innan um lík­ams­leifar og rústir. Á meðan ég leit­aði hans steig ég á sund­ur­limaða lík­ama en sumir þeirra voru, án þess að ég átt­aði mig á því, vinir mínir.“ Suzan mundi að eig­in­mað­ur­inn hefði verið klæddur í bláa skyrtu en sagð­ist ekki hafa geta greint liti í sundur vegna reyks, rústa og blóðs. „Að lokum fundum við mann­inn minn drep­inn. Hann hafði misst báðar lapp­irnar og kvið­ur­inn hafði rifnað upp.“

Hassan Al-Daaya, starfs­maður lík­húss á Gaza sagði fjöldamorðið 10. ágúst öðru­vísi en oft áður. „Þetta fjöldamorð var öðru­vísi, vegna fjölda lát­inna og gríð­ar­legs fjölda brenndra líka og sund­ur­limaðra. Við gátum ekki grein einn útlim frá öðrum. Hver átti þessa hönd? Hver átti þennan fót?“

Blaða­mað­ur­inn Mo´Tasem Abu Asr lýsti vett­vangi glæps­ins sem Ragnarökum. „Ég sá atriði beint frá Ragnarökum. Enn þann dag í dag get ég ekki gleymt lykt­inni sem ég fann þar.“

Blaða­maður Al Jazeera, Anas Al-Sharif tók í sama streng: „Það er erfitt að kom­ast yfir þær sýnir sem blasti þar við. Ég sé þær bæði í vöku og draumi. Þegar ég kom á vett­vang varð ég fyrir svo miklu áfalli að ég gat ekki komið upp orði í dágóðan tíma. Ég vissi ekki hvað ég gæti sagt. Ég sá stúlku kveðja föður sinn sem hafði brunnið lif­andi.“

Mo´Men Salmi, starfs­maður almanna­varna á Gaza hafði svip­aða sögu að segja. „Eldurinn gleypti fórn­ar­lömbin. Þau náðu ekki að slökkva í sér, vegna þess að mörg þeirra höfðu misst útlimi sína. Engin mann­eskja á að verða vitni að slíkri sjón.“

Annar starfs­maður almanna­varna, Noah Al-Sharnoubi lýsti þessu sem martröð. „Mér leið eins og ég væri í martröð þar sem líkin stöfl­uð­ust upp alls staðar. Ég byrj­aði að missa stjórn á mér og gat ekki lyft lík­unum eða hjálpað þeim særðu. Ég gat ekki sofið í þrjá daga eftir blóð­baðið. Sýnirnar halda áfram að birt­ast í huga mér. Þetta var ekki bara fjöldamorð, þetta var þjóð­ar­morð gegn fólki á ver­gangi, sem leit­aði skjóls í skóla. Fórn­ar­lömbin voru öll eldri borg­arar, börn og konur.“

Hér má sjá mynd­skeið Al Jazeera en fólk með sál er varað við myndefn­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Svipuð atvik hafa komið upp við heimili Ragnars frá árinu 2023
Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Heimur

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Heimur

Átta ára drengur skot­inn til bana

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi

Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco

Heimur

Dul­ar­fullt ákall á net­inu vekur ótta við óeirðir á Tenerife