Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Morðingi Ólympíuhlauparans látinn: „Reyndi að slökkva eldinn með vatni, en það var ekki hægt“

Morðingi Ólympíuhlauparans látinn: „Reyndi að slökkva eldinn með vatni, en það var ekki hægt“

Fyrr­ver­andi kær­asti ólympíska hlauparans Rebeccu Cheptegei er lát­inn, eftir að hafa kveikt í Rebeccu og sjálfum sér á dög­unum.

Dickson Ndiema hefur verið nefndur sem árás­armaður úganska Ólympíu-hlauparans Rebeccu Cheptegei, í stað­bundnum fjöl­miðlum. Hann hlaut bruna­sár á stórum hluta lík­ama síns í meintu laun­sátri og lést á sjúkra­húsi í gær­kvöldi, að því er Nation Africa greinir frá. Cheptegei, sem var tveggja barna móðir, lést á mið­viku­dags­kvöld í síð­ustu viku.

Sjá einnig: Ólymp­íu­hlaup­ari lát­inn eftir að fyrrum kær­asti kveikti í honum: „Megi sál hennar hvíla í friði“

Því er haldið fram að parið fyrr­ver­andi hefði verið að ríf­ast um land­ar­eign sem hús Cheptegei er byggt á. Hin 33 ára gamla hlaupa­kona keypti landið sem stað­sett er í Kenía, nálægt landa­mærum Úganda og byggði heim­ili sitt þar.

Ndiema er sagður hafa hleypt sér inn á heim­ili Cheptegei á meðan hún var í kirkju með tveimur börnum sínum, 9 og 11 ára. Lög­reglan sagði að hann hafi kveikt í henni í miðjum rifr­ildum og skilið hana eftir með bruna­sár á meira en 75 pró­sent af lík­ama sínum en hún var flutt með hraði á sjúkra­hús.

Lög­reglu­stjór­inn Jeremiah ole Kosiom sagði: „Parið heyrð­ist ríf­ast fyrir utan húsið þeirra. Á meðan á átök­unum stóð sást kærast­inn hella vökva yfir kon­una áður en hann brenndi hana. Hinn grun­aði varð einnig fyrir eld­inum og hlaut alvar­leg bruna­sár.“

Önnur af dætrum Cheptegei var fljót að finna móður sína í logum en Ndiema er sagður hafa sparkað í hana þegar hún reyndi að koma móður sinni til hjálpar. Hún kall­aði á hjálp til að reyna að slökkva eld­inn en án árang­urs.

Hún sagði við keníska blaðið The Standard: „Hann spark­aði í mig á meðan ég reyndi að koma móður minni til bjargar.“ Hún bætti einnig við: „Ég hróp­aði strax á hjálp og lað­aði að mér nágranna sem reyndi að slökkva eld­inn með vatni, en það var ekki hægt.“

Frjáls­í­þrótta­sam­bandið í Úganda sagði í til­kynn­ingu: „Okkur þykir það mjög sorg­legt að til­kynna and­lát íþrótta­kon­unnar okkar, Rebeccu Cheptegei snemma í morgun, sem varð fórn­ar­lamb heim­il­is­of­beldis á hörmu­legan hátt. Sem sam­band for­dæmum við slíkt verk og köllum eftir rétt­læti. Megi sál hennar hvíla í friði.“

Lord Coe, for­seti World Athletics, sagði í sinni til­kynn­ingu: „Íþróttin okkar hefur misst hæfi­leik­a­ríkan íþrótta­mann við hinar hörmu­leg­ustu og mest óhugs­andi aðstæður. Rebecca var ótrú­lega fjöl­hæfur hlaup­ari sem átti enn mikið eftir að gefa á vegum, fjöllum og göngu­leiðum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Heimur

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Heimur

Átta ára drengur skot­inn til bana

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi

Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco

Heimur

Dul­ar­fullt ákall á net­inu vekur ótta við óeirðir á Tenerife