Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Anna er orðin kisupía: „Það þykir öllum ofurvænt um Knúsu“

Anna er orðin kisupía: „Það þykir öllum ofurvænt um Knúsu“
Anna Krist­jáns­dóttir. Mynd: Facebook

Anna Krist­jáns­dóttir fræðir vini og aðdá­endur sína allt um upp­á­halds dýrið sitt, kött­inn Knúsu, sem lent hefur í ýmsu á sinni löngu ævi.

Í nýjust dag­bók­ar­færslu sinni birtir Anna Krist­jáns­dóttir ljós­myndir af kett­inum Knúsu og segir frá raunum hennar. Tilefnið er það að Anna er nú orðin kisu­pía.

„Þá er komið að því. Inga er farin til Íslands í stutta heim­sókn og mér hefur veist sá heiður að gæta vel­farn­aðar Knúsu á meðan. Fyrir ykkur sem ekki vitið, þá er Knúsa af kisu­ættum senni­lega um 13 ára gömul og hefur marga fjör­una sopið á sinni löngu ævi. Eftir ýmsar hremm­ingar sem hún lenti í á yngri árum á Íslandi, þá varð hún fyrir árás stórs hunds sum­arið 2021 sem nán­ast sleit hana í sundur. Ég skutl­aði Ingu með kis­una nær dauða en lífi á dýra­spít­al­ann þar sem hún var svæfð og röntgen­mynduð í bak og fyrir og það merki­lega kom í ljós að það voru engin bein brotin og engin innri líf­færi sjá­an­lega skemmd, en húðin var mjög illa farin og skurður yfir hana þvera, kannski um 30 cm langur sem er býsna mikið á litlu kisu­greyi.“ Þannig hefst færsla Önnu sem síðan segir frá eft­ir­mál­unum:

„Hún var í heilan dag í með­ferð á dýra­spít­al­anum Centro Vet­er­in­ario el Madroñal í Adeje, en þegar ljóst var að hún ætl­aði ekki að deyja í höndum dýra­lækn­anna fékk hún að fara heim. Næstu tvo mán­uð­ina á eftir fór ég um 23 ferðir á dýra­spít­al­ann með hana, en auk þess fór hún nokkrar ferðir á spít­al­ann með Einari og Dísu ef ég var ekki nálæg. Aðgerð­irnar urðu fjórar, en í hin skiptin fór hún til að taka úr sauma og til eft­ir­lits.

Það þarf víst varla að taka fram að starfs­fólki dýra­spít­al­ans var farið að þykja jafn­vænt um Knúsu og okkur hinum.“

Eftir að Knúsa var útskrifuð tók ekki betra við að sögn Önnu:

„Hún var loks útskrifuð um haustið, en þá tók ekki betra við, því Knúsa fann sér nýjan stað til að skemmta sér á, hót­el­bar­inn á Arona Gran þar sem hún sat öll kvöld og mjálm­aði frægð­ar­sögur af sjálfri sér, en borg­aði enga reikn­inga og var brátt komin í stór­skuld við hót­el­bar­inn.“

Fór svo að lokum að katt­ar­greyið var sett í bann á Arona Gran-barnum og eig­and­inn neydd­ist til að gera Knúsu að inni­ketti, sem hafði sínar afleið­ingar:

„Að end­ingu var hún sett í bann á Arona Gran og Ingu til­kynnt að ef Knúsa kæmi þangað aftur, yrði hún sótt af lög­reglu og kastað í þá dýpstu dýflissu sem fannst á Tenerife ef ekki eitt­hvað enn verra. Eftir það neydd­ist Inga til að gera Knúsu að innikisu, en ef hún fór út á svalir, varð að hafa hana í beisli svo hún hlypi ekki í burtu og á bar­inn.Það er erfitt að gera atorku­sama kisu að innikisu og því hljóp Knúsa í spik næsta árið á eftir og var brátt að verða 8 kg, en mér skilst að með núver­andi megr­un­ar­fæði sé hún eitt­hvað að grenn­ast.“Bætir Anna við að lokum: „Það þarf engan að undra að öllum sem kynnst hafa Knúsu þykir ofur­vænt um hana.“

Hér má svo sjá ljós­mynd af Knúsu:

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Menning

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Hrósar lýsingum Laxness á íslenskri náttúru og árstíðunum
Myndband
Menning

Luthers­son frum­sýnir blóð­uga ást­ar­sögu í eyði­mörk Kali­forníu

Menning

Sendu sím­ann í svefn­poka og fáðu smá frið

Menning

Ást, missir og barn­þrá í upp­seldri skáld­sögu Mar­grétar

Menning

Frá Rocky og Springsteen til aftöku í Sádi-Arabíu