Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Bin Laden snýr aftur og ógnar Vesturveldunum – Sonurinn talinn hafa lifað af loftárás Trump

Bin Laden snýr aftur og ógnar Vesturveldunum – Sonurinn talinn hafa lifað af loftárás Trump
Hamza bin Laden Mynd: Trausti Hafsteinsson

Talið er að sonur al-Qaeda-for­ingj­ans Osama bin Laden stjórni nú hryðju­verka­sam­tök­unum og hafi byggt upp her­skátt veldi, sam­kvæmt sér­fræð­ingum. Hann hafði áður verið tal­inn af.

Greining ónafn­greindrar leyni­þjón­ustu bendir til þess að Hamza bin Laden,  þekktur sem krón­prins hryðju­verk­anna – hafi lifað af til­raunir CIA til að drepa hann árið 2019. Full­yrð­ing­arnar um að hann sé leyni­lega að stýra al-Qaeda hafa komið fram eftir að leyni­þjón­ustu­skýrslur bentu til þess en þar kom einnig fram að  bróðir hans Abdullah sé einnig rót­gró­inn í hryðju­verka­net­inu. Það þýðir að faðir þeirra, hinn látni hryðju­verka­maður sem sagður er hafa staðið að hryðju­verkum í Banda­ríkj­unum 11. sept­em­ber 2001, hafi náð að skapa hryðju­verka­net og ætt­ar­veldi, handan við gröf­ina, sem er stað­ráðið í að valda dauða um allan heim­inn.

Eru þeir taldir hafa byggt upp tíu helstu al-Qaeda þjálf­un­ar­búð­irnar yrir hryðju­verk í Afganistan og hafa myndað alþjóð­leg tengsl við aðra hópa sem hata Vest­ur­lönd, að því er full­yrt er í grein­ingu leyni­þjón­ust­unnar. Bendir hún til þess að hinn 34 ára Hamza eyði mestum tíma sínum í Jalala­bad, hryðju­verka­svæði 161 kíló­metra austur af höf­uð­borg­inni Kabúl.

Í skýrslu sem Mirror hefur séð segir: „Hamza bin Laden er ekki aðeins á lífi heldur tekur hann virkan þátt í end­ur­reisn al-Qaeda, stað­reynd sem er vel þekkt meðal hátt­settra tali­bana­leið­toga. Þessir leið­togar … eru í sam­skiptum við hann, halda reglu­lega fundi og tryggja hann og fjöl­skyldu hans. Í skýrsl­unni er ljósi bent á djúp tengsl milli al-Qaeda og tali­bana, sem er mik­il­vægt fyrir vest­ræn stjórn­völd að skilja. Hamza hefur náð for­ystu al-Qaeda og stýrt sam­tök­unum í átt að öfl­ug­ustu end­ur­reisn sinni síðan í Íraks­stríð­inu.“

Þar segir einnig: „Undir stjórn hans er al-Qaeda að safna saman mönnum og und­ir­búa sig fyrir fram­tíð­ar­árásir á vest­ræn skot­mörk. Hamza er knú­inn áfram af kraft­mik­illi ákveðni um að halda áfram arf­leifð föður síns, sem bætir tákn­rænu og stefnu­mót­andi vægi við gjörðir hans. Þar að auki gegnir bróðir Hamza, Abdullah bin Laden, mik­il­vægu hlut­verki í þess­ari end­ur­vakn­ingu.“

Önnur skýrsla segir að búð­irnar þjálfi bar­daga­menn og sjálfs­morðs­sprengju­menn og kenni þeim hvernig eigi að smygla sér út úr Afganistan til að ógna vest­rænum skot­mörkum. Talið er að allt að 21 hryðju­verka­kerfi séu starf­rækt í Afganistan, sem gerir landið að stærsta hryðju­verkareit heims. Nýjustu úttekt­irnar segja að al-Qaeda vinni með Íslamska rík­inu, sem hafi vakið vax­andi ótta um aðra 11. sept­em­ber árás á Vest­ur­lönd.

Í annarri leyni­þjón­ustu­skýrslu sem Mirror hefur séð er eft­ir­far­andi við­vörun: „Sam­stæður núver­andi ástands og aðdrag­anda árásanna 11. sept­em­ber eru skelfi­legar. Skortur á lög­mætri rík­is­stjórn og hug­mynda­fræði­legt sam­ræmi milli ríkj­andi talí­bana­stjórnar og þess­ara hópa hafa gert Afganistan að griða­stað öfga­hyggju. Hryðju­verka­menn utan frá flykkj­ast til lands­ins til þjálf­unar.“

Það er líka talið að al-Qaeda og ISK, svæð­is­bund­inn hópur frá Íslamska rík­inu, séu ekki bara starf­andi á sama svæði, heldur einnig í virku sam­starfi, með inn­byrðis hjóna­böndum meðal með­lima. Þetta er að skapa sam­einað og ógn­vekj­andi hryðju­verka­net. Þetta end­ur­speglar banda­lög sem stofnuð voru af helstu hryðju­verka­leið­togum í for­tíð­inni og und­ir­strikar vax­andi hættu.“

Talið er að Hamza og fjórar eig­in­konur hans hafi fengið skjól í Íran í nokkur ár til að fela sig fyrir CIA. Árið 2019 sagði þáver­andi Banda­ríkja­for­seti Donald Trump að hann hefði fyr­ir­skipað árang­urs­ríkt högg á Hamza í loft­árás sem talið er að hafi verið í Ghazni-hér­aði í suð­aust­ur­hluta Afganistan. Engin DNA sönn­unar var aflað af CIA.

Árið 2022 var Ayman al-Zawahiri, Egypti sem stýrði al-Qaeda eftir dauða Bin Laden eldri,  drep­inn með flug­skeyti CIA í Kabúl.

Talið er að Hamza og Saif al-Adel, opin­ber leið­togi al-Qaeda, noti öryggsi­hús (e. safe houses) í Afganistan. Leyni­göng í Kandahar, Ghazni, Laghman, Parwan, Herat og Helmand gera liðs­mönnum al-Qaeda kleift að ferð­ast til og frá Íran, sam­kvæmt grein­ing­unni sem Mirror hefur séð.

Skýrslan bætir við: „End­ur­vakn­ingin og sterk­ari tengsl milli Talíbana og AQ og stofnun þjálf­un­ar­búða þeirra í Afganistan eru djúp­stæð ógn við Vest­ur­lönd. Þar segir að búð­irnar kenni að písl­ar­vætti sé hið æðsta afrek sem hvetji „marga nýliða til að bjóða sig fram í sjálfs­vígs­að­gerðir“.

Talið er að einu búð­irnar séu í Helmand-hér­aði, þar sem breskir her­menn höfðu aðsetur þegar þeir börð­ust við tali­bana. Hinar níu al-Qaeda þjálf­urn­ar­búð­irnar eru í Ghazni, Laghman, Parwan, Uruzgan, Zabul, Nang­arhar, Nuristan, Badghis og Kunar. Heim­ildir segja að vöxtur þess­ara búða sé sér­stakri ógn við þjóðir eins og Banda­ríkin og Bretland vegna þátt­töku þeirra í stríð­inu þar. Tali­banar end­ur­heimtu Afganistan eftir fall Kabúl árið 2021.

Aðal grein­ingin, sem Mirror fjallar um, er gerð af vest­rænum leyni­þjón­ustu­sér­fræð­ingum en þar segir enn­fremur: „Tali­banar, þrátt fyrir full­vissu sína til Vest­ur­landa, hafa við­haldið og ræktað nán­ari tengsl við AQ og aðra hryðju­verka­hópa, og veitt hryðju­verka­mönnum til­tölu­lega öruggt skjól til að safn­ast saman og byggja sig upp að nýju. Þó að upp­haf­lega hafi verið talið að Hamza bin Laden hafi verið drep­inn … hafa nýlegar upp­lýs­ingar komið fram sem benda til þess að hann hafi lifað árás­ina af.“

Talið er að Hamza hafi haldið sig í felum með aðstoð hryðju­verka­for­ingj­ans Sira­juddin Haqqani, sem rekur glæpa­fjöl­skyldu sem kall­ast Haqqani-netið, en hann er kall­aður Sopranos Afghanistan. Talið er að fjórða eig­in­kona Hamza sé ein af dætrum Haqqani-fjöl­skyld­unnar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Heimur

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Heimur

Átta ára drengur skot­inn til bana

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi

Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco

Heimur

Dul­ar­fullt ákall á net­inu vekur ótta við óeirðir á Tenerife