Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Afhentu bæjarstjóra Akureyrar undirskriftarsöfnun: „Sniðganga á Rapyd sendir sterk skilaboð“

Afhentu bæjarstjóra Akureyrar undirskriftarsöfnun: „Sniðganga á Rapyd sendir sterk skilaboð“
Guðjón og bæj­ar­stjór­inn Mynd: Aðsend

Sam­stöðu­hópur afhenti bæj­ar­stjóra Akur­eyrar und­ir­skrift­ar­söfnun þar sem skorað er á bæj­ar­stjórn að hætta við­skiptum við fjár­mála­tækni­fyr­ir­tækið Rapyd.

Þriðju­dags­morg­un­inn 24. sept­em­ber fór hópur ein­stak­linga sem til­heyra óform­lega sam­stöðu­hópnum „Samstaða með Palest­ínu  – Akureyri“ á fund við bæj­ar­stjóra Akur­eyrar, Ásthildi Sturlu­dóttur. Tilefnið var að afhenda henni und­ir­skrifta­lista sem einn úr hópnum, Guðjón Magn­ús­son, hafði staðið fyrir í sumar inn á Ísland.is. Und­ir­skrift­ar­list­inn er ákall til Akur­eyr­ar­bæjar að hætta með fjár­mála­tækni­fyr­ir­tækið Rapyd sem færslu­hirði bæj­ar­ins. Undir það skrif­uðu alls 1.039 ein­stak­lingar. Fjöldi ástæðna er fyrir því að eiga ekki í við­skiptum við Rapyd og má lesa um þær hér:

https://snidganga.is/vorumerkin/#rapyd

Í til­efni af afhend­ing­unni á und­ir­skrif­alist­anum sagði Guðjón nokkur orð.

„Frú bæj­ar­stjóri.

Þakka þér fyrir að gefa mér (og okkur í hópnum) þetta tæki­færi til að opna umræð­una um mál­efni sem ég hef trú á að skipti æ meira máli í sam­fé­lag­inu okkar sem og í alþjóða­sam­fé­lag­inu öllu. 

Í dag vil ég vekja athygli á og hefja sam­tal um snið­göngu á Rapyd, fjár­mála­tækni­fyr­ir­tæki sem, þrátt fyrir alþjóða­lega starf­semi, hefur sætt gagn­rýni og spurn­ingum varð­andi sið­ferði­leg álita­mál í við­skipta­háttum sínum og starf­semi. Ítök Rapyd á stað­bund­inn efna­hag, meðal ann­ars okkar hér á Akureyri, hefur vakið upp spurn­ingar varð­andi gegn­sæi, ábyrgð fyr­ir­tækja og sann­girni í fjár­mála­við­skiptum. Þótt að fjár­mála­tækni­fyr­ir­tæki eins og Rapyd spili stórt hlut­verk í að ein­falda færslur og veiti þæg­indi, þá verðum við að skoða það hvort starf­semi þeirra sam­ræm­ist þeim gildum sem við viljum halda í heiðri. 

Í leit okkar að sjálf­bærni, sann­girni og fjár­hags­legu rétt­læti þá eigum við að íhuga það að snið­ganga fyr­ir­tæki sem fara ekki eftir þessum gildum. Frá­sagnir hafa komið upp á yfir­borðið sem að tengja Rapyd við vafa­sama við­skipta­hætti, þeirra á meðal hafa vaknað uppi spurn­ingar um frið­helgi not­enda, skort á gagn­sæi í gjald­töku og vafasöm við­skipta­tengsl, sér í lagi við Ísra­els­her og yfir­stand­andi árásir þeirra og þjóð­ar­morðs á íbúum Palest­ínu. En þess ber að geta að nú er til umræðu á Alþingi þingá­lykt­un­ar­til­laga þess efnis að Alþingi feli rík­is­stjórn Íslands að beita sér fyrir alþjóð­legum við­skipta­þving­unum gagn­vart Ísrael vegna þjóð­ar­morðs­ins í Palest­ínu. Í álykt­un­inni segir einnig að ríkjum heims beri að setja við­skipta­þving­anir gegn fyr­ir­tækjum og ein­stak­lingum sem hagn­ast á her­nám­inu og þeim sem taka þátt í því.

Í veg­ferð okkar að því að Akureyri verði áfram sam­fé­lag sem leggur áherslu á sið­ferð­is­lega við­skipta­hætti, þá er nauð­syn­legt að við styðjum við fyr­ir­tæki sem end­ur­spegla gildi okkar um sjálf­bærni, sann­girni og fjár­hags­legt rétt­læti. Snið­ganga á Rapyd sendir sterk skila­boð að við sem bæj­ar­fé­lag leggjum meiri áherslu á heil­indi en þæg­indi. Það hvetur fyr­ir­tæki til að starfa á þann veg sem styður við rétt­indi og hag neyt­anda og stendur með þeim gildum sem við sem sam­fé­lag leggjum áherslu á. 

Ég hvet þig, frú bæj­ar­stjóri, og bæj­ar­stjórn­ina, til að hefja umræður um þetta mál. Stöndum saman í að styðja við sann­gjarnan og gagn­sæan stað­bund­inn efna­hag þar sem við getum með stolti sagt að við styðjum við fyr­ir­tæki sem fjár­festa í vel­sæld sam­fé­lags okkar. Við þökkum fyrir áheyrn­ina og umhugs­un­ina.“

Frú bæj­ar­stjóri tók við list­anum og sagð­ist myndi leggja hann fyrir bæj­ar­stjórn. Það er ósk hóps­ins og vonar hann að það muni ger­ast sem fyrst.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Landið

Landið

Límdu yfir hraða­mynda­vél lög­reglu

„Það er svo sannarlega þörf á hraðamælingum“
Landið

Forbes vekur athygli á nýju ferða­manna­gjaldi á Íslandi

Landið

Breskur stór­mið­ill velur fimm stór­kost­leg­ustu fossa Íslands

Landið

Vilja vernda nátt­úruperlu í Skriðdal

Landið

Skortur á leik­skóla­plássum tefur end­ur­komu starfs­fólks HSA

Landið

Björg­un­ar­bún­aður og bætt öryggi til skoð­unar við Stuðla­gil