Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Öxi og átta fórnarlömb – Vettvangurinn var blóði drifinn

Öxi og átta fórnarlömb – Vettvangurinn var blóði drifinn
Villisca-morðin

Aðfara­nótt mánu­dags­ins 10. júní, árið 1912, voru allir í fasta­svefni á heim­ili Josiah B. Moore og fjöl­skyldu hans í bænum Willisca í Iowa-fylki í Banda­ríkj­unum. Auk hjón­anna, Josiahs, sem var 43 ára, og Söruh, 39 ára, og fjög­urra barna þeirra; Hermans Montgomerys,11 ára, Mary Katherine, 10 ára, Arthurs Boyds, 7 ára, og Pauls Vernons, 5 ára, voru tvær stúlkur gest­kom­andi, Still­in­ger-syst­urnar Ina May, 8 ára, og Lena Gertrude, 12 ára.

Moore-fjöl­skyldan ágæt­lega efnuð, vel þekkt og vel liðin í sam­fé­lag­inu og kvöldið áður hafði verið haldin athöfn fyrir börn í kirkju í grennd við heim­ili Moore-fjöl­skyld­unnar. Eig­in­kona Josiah hafði skipu­lagt athöfn­ina og hafði öll fjöl­skyldan og Still­in­ger-syst­urnar verið við­stödd hana, en síðan gengið heim á leið að henni lok­inni klukkan 21.30.

Dauðaþögn í morgunsárið

Fer engum frá­sögnum af svefn­förum heim­il­is­fólks og gesta þess, en klukkan sjö, morg­un­inn eftir var barið á úti­dyra­hurð heim­ilis Moore-fjöl­skyld­unnar. Var þar kom­inn nágranni, Mary Peckham, sem tekið hafði eftir að eng­inn virt­ist kom­inn ofan á heim­il­inu.

Mary fékk engin við­brögð við banki sínu og reyndi að opna en dyrnar voru harð­læstar. Nú, Mary hleypti hænsnum Moore-fjöl­skyld­unnar út, en var með böggum hildar og sótti bróður Josiahs, Ross Moore, en hið sama var upp á ten­ingnum þegar hann knúði dyra; ekk­ert svar. Ross bjó svo vel að hafa í fórum sínum auka­lykil að úti­dyr­unum og sá þann kost vænstan að nýta hann.

Blóði drifinn vettvangur

Mary beið úti á ver­önd­inni en Ross gekk inn í for­stof­una og opn­aði dyrnar að gesta­her­berg­inu. Þar mætti honum ófögur sjón; lík Still­in­ger-systr­anna alblóðug á rúm­inu. Ross beið ekki boð­anna og sagði Mary að haska sér og sækja vörð laga og réttar á þeim slóðum, Henry „Hank“ Horton, sem kom skömmu síðar á vett­vang.

Könn­un­ar­leið­angur Henrys um húsið leiddi í ljós nöt­ur­legan sann­leika – í því var eng­inn á lífi. Öll höfðu verið höggvin eða barin til bana og fannst morð­vopnið, öxi löðr­andi í blóði, í gesta­her­berg­inu við lík Still­in­ger-systr­anna. Talið var að morðin hefðu verið framin ein­hvern tím­ann á milli mið­nættis og klukkan fimm um morg­un­inn.

Tveir vindlingastubbar

Virtist sem ódæð­is­mað­ur­inn, eða -menn­irnir, hefði haf­ist handa á efri hæð húss­ins, í hjóna­her­berg­inu. Það sem studdi þá ályktun voru tveir vind­linga­stubbar sem fund­ust á háa­lofti húss­ins – að morð­ing­inn hefði beðið þar í róleg­heitum eftir að heim­il­is­fólk sneri heim frá kirkju og tæki á sig náðir.

Josiah fékk sýnu verri útreið en önnur fórn­ar­lömb. Ekki aðeins hafði hann verið bar­inn oftar í höf­uðið, heldur hafði axar­blað­inu verið beitt á hann en sú var ekki raunin í til­felli eig­in­konu hans eða barn­anna sex. Augu Josiah höfðu hrokkið úr tóft­unum við bar­smíð­arnar og var hvergi að finna í blóð­ugri káss­unni, sem and­lit hans var.

Frétt um hin óhugn­an­legu morð sem framin voru á heim­ili Moore-hjón­anna.

Varnarsár á handlegg Lenu

Síðan hafði morð­ing­inn snúið sér að börnum hjón­anna og hlutu þau sömu útreið og for­eldr­arnir. Að því loknu fór morð­ing­inn aftur inn til hjón­anna og bætti ein­hverra hluta um betur. Var atgang­ur­inn svo mik­ill að einn skór hafði fyllst af blóði og síðan oltið á hlið­ina.

Þá lá leið morð­ingj­ans niður á neðri hæð húss­ins og inn í gesta­her­bergið til Inu og Lenu.

Af verksum­merkjum þar að dæma var ályktað að Lena hefði verið vak­andi þegar þar var komið sögu. Á hand­leggjum hennar fund­ust áverkar sem benti til þess að hún hefði varist ódæð­is­mann­inum og einnig lá hún þversum í rúm­inu, nátt­slopp­ur­inn hafði verið dreg­inn upp að mitti og hún nær­klæða­laus.

Margir lágu undir grun

Ekkert var fast í hendi hvað mögu­legan morð­ingja áhrærði og voru þó nokkuð margir karlar nefndir til sög­unnar í því til­liti. Þeirra á meðal var prestur að nafni George Kelly. Hann þótti svo álit­legur að hann var kærður og réttað yfir honum í tvígang. Í fyrra skiptið komst kvið­dómur ekki að nið­ur­stöðu og í hið síð­ara féll sýknu­dómur.

Annar var Henry Lee Moore, sem þrátt fyrir ætt­ar­nafnið var ekki skyldur Josiah B. Moore.

Henry Lee var síðan úti­lok­aður sem mögu­legur morð­ingi í mál­inu. Hvort það var skyn­sam­leg ákvörðun eða ekki skal látið liggja á milli hluta, en þetta sama ár framdi hann tvö morð sem þóttu í mörgu líkj­ast morð­unum á heim­ili Moore-fjöl­skyld­unnar. Þau morð framdi hann í des­em­ber árið 1912 er hann gekk af móður sinni og ömmu dauðum og not­aði til þess öxi.

En það er önnur saga

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Heimur

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Heimur

Átta ára drengur skot­inn til bana

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi

Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco

Heimur

Dul­ar­fullt ákall á net­inu vekur ótta við óeirðir á Tenerife