Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Tónleikar til stuðnings eftirlifandi fjölskyldu Ahmeds: „Elsku vinur okkar er þjakaður af sorg“

Tónleikar til stuðnings eftirlifandi fjölskyldu Ahmeds: „Elsku vinur okkar er þjakaður af sorg“
Ahmad Al-Mamlouk

Styrkt­ar­tón­leikar verða haldnir í Iðnó mið­viku­dag­inn 2. októ­ber, til að hjálpa eft­ir­lif­andi fjöl­skyldu Palest­ínu­manns­ins Ahmed Al-Mamlouk.

„Við bjóðum ykkur vel­komin á styrkt­ar­tón­leika í Iðnó mið­viku­dag­inn 2 októ­ber. Ahmed vinur okkar missti konu sína og fjögur börn í sprengju­árás ísra­els­hers í des­em­ber síð­ast­liðnum.

Nú erum við að gera það sem við getum til að hjálpa eft­ir­lif­andi fjöl­skyldu hans, en á Ahmed for­eldra og fimm systur sem nú búa við væg­ast sagt erf­iðar aðstæður ásamt börnum sínum á Gaza.“ Þannig hljóðar við­burð­ar­lýs­ing vegna styrkt­ar­tón­leik­anna á Facebook. Tón­list­ar­fólkið sem kemur fram á tón­leik­unum eru Amor Vincit Omnia, Apex Anima, Cyber, Kira Kira og Super­sport! Miðaverð er 3.500.

Sjá einnig: Ahmed missti öll börn sín í sprengju­árás: „Pabbi, hvenær getum við spilað fót­bolta á Íslandi?“

Í við­burð­ar­lýs­ing­unni er saga Ahmeds sögð en hér fyrir neðan má lesa hana:

„Ahmed ákvað að leggja ein­sam­all í hættu för til þess að reyna að koma fjöl­skyldu sinni í öryggi burt frá heima­högum þeirra vegna Ísraela sem hlífa engum. Þessa erf­iðu ákvörðun tók hann eftir að Ísraelar sprengdu upp heim­ilið þeirra árið 2014, í þeirri sprengju­árás komst fjöl­skyldan með naum­indum undan og ákváðu þá Ahmed og konan hans að hann skyldi fara í þennan erf­iða leið­angur þegar hann væri búinn að byggja þeim nýtt heim­ili. Um leið og það var til­búið fór hann frá Gaza í leit að betra lífi fyrir fjöl­skyld­una. Þetta er hættu­leg för full af ófyr­ir­sjá­an­legum aðstæðum, for­dómum og fyr­ir­litn­ingu. Það er ástæðan fyrir því að svo margir feður leggja í hana einir á meðan konur og börn bíða heima í oft­ast ögn fyr­ir­sjá­an­legri aðstæðum en ferða­lagið bíður upp á. Eftir margra ára erfitt ferða­lag með öryggi fjöl­skyld­unnar að leið­ar­ljósi end­aði Ahmed hér á Íslandi. En það var svo í des­em­ber síð­ast­liðnum sem hann fékk frétt­irnar sem engin mann­vera vill nokkurn tíman fá, að fjöl­skyldan hans, eig­in­konan og börnin fjögur hafi öll farist í sprengju­árás Ísra­els­hers. Þess má geta að palest­ínska ljóð­skáldið Refat Alareer var mágur Ahmeds, hann hafði leitað skjóls með fjöl­skyld­una sína hjá systur sinni og voru þau öll myrt í sömu árásinni. Refat, sem var mjög virtur í alþjóða sam­fé­lag­inu og tal­aði góða ensku hafði verið opin­ber­lega gagn­rýn­inn á Ísraela, þjóð­ar­morðið og á hann var hlustað. Því má ætla að þau hefðu verið myrt að yfir­lögðu ráði.

Þennan dag missti Ahmed allt, eða næstum því.

Því þrátt fyrir þjóð­ar­morðið og hung­ursneyð­ina sem nú ríkir á Gaza erum við þakk­lát fyrir að for­eldrar Ahmeds, systur hans fimm og börn þeirra séu enn á lífi, en þau eru í mik­illi hættu. Yngsta systirin Eslam fæddi nýlega sitt fyrsta barn. Vegna aðstæðna fædd­ist litli dreng­ur­inn fyrir tím­ann og þarf á mjólk og lækn­is­að­stoð að halda. Matur, drykkj­ar­vatn, lyf og aðrar nauð­synjar eru af skornum skammti og sér­stak­lega dýrar. Ástandið á Gaza eins og flest vita er sér­lega slæmt og þarfn­ast fjöl­skyldan því hjálpar okkar.

Al-Mamlouk fjöl­skyldan er stolt og það er ekki auð­velt fyrir þau að biðja um hjálp. Ahmed finnur til mik­ils van­máttar yfir að geta ekki hjálpað systur sinni og fjöl­skyldu sjálfur, en þar sem hann er með stöðu flótta­manns hér á íslandi er hann ekki með kenni­tölu og hefur þar með ekki með leyfi til að vinna. Elsku vinur okkar er þjak­aður þungri eft­ir­sjá og sorg í hjarta og við viljum ekk­ert heitar en að þessum hörm­ungun linni svo hægt sé að vinna að upp­bygg­ingu þjóðar og lands en þangað til viljum við hjálpa honum á allan þann hátt sem okkur býðst. Ein aðferð er að halda tón­leika til styrktar fjöl­skyld­unni. Okkar von er sú að vinir og vel­unn­arar geti komið saman og stutt við fjöl­skyldu Ahmeds á sama tíma og við komum saman, reynum að gleðj­ast en ávalt stutt við hvort annað á þessum hrika­legu tímum. Vonandi getum við líka sent smá gleði, hlýju og frið út í kosmósið.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi