Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Móðirin Victoria Taylor hefur verið týnd í fimm daga: „Við vorum nýkomin úr yndislegu fríi“

Móðirin Victoria Taylor hefur verið týnd í fimm daga: „Við vorum nýkomin úr yndislegu fríi“
Victoria og Matthew Mynd: Trausti Hafsteinsson

Nið­ur­brot­inn unnusti týndu móð­ur­innar og hjúkr­un­ar­fræð­ings­ins Viktoriu Taylor rauf þögn sína í dag til að grát­biðja hana um að snúa aftur til dótt­ur­innar sem hún elskaði.

Hin verð­andi brúður, Victoria (34), sást síð­ast á mánu­dag­inn á heim­ili sínu, sem hún deilir með unnusta sínum Matthew Grant Williams og tveggja ára dóttur þeirra, í Malton, Norður-Jór­vík­ur­skíri.

Eigur hennar fund­ust síðar á bökkum árinnar Derwent, sem varð til þess að lög­reglan hóf gríð­ar­lega leit, þar sem kaf­arar rann­sök­uðu svæðið alla vik­una. Þegar leitin hófst á fimmta degi, bað Matthew hana að koma heim.

Hann hélt á dóttur þeirra og brast í grát þegar hann sagði: „Ég vona að hún komi heim heil á húfi.“ Hann starði ást­úð­lega á barnið og hélt áfram: „Auðvitað vantar þessa mömmu sína. Við erum öll að vona að hún komi aftur. Hún var traus í starfi sínu, traust okkur og við vorum nýkomin úr ynd­is­legu fríi. Þetta er bara sorg­legt.“

Hann hélt áfram: „Um leið og við til­kynntum hvarf hennar, þar sem við þekktum hana mjög vel, fórum við að skoða svæðið þar sem lög­reglan hafði verið.“

Matthew stað­festi að hann og Victoria ætl­uðu að gifta sig, en höfðu ekki ákveðið dag­setn­ingu, nýkomin úr fyrsta fjöl­skyldu­fríi sínu á Mallorca.

„Ég er bara miður mín vegna þess­arar [dótt­ur­innar. Innskot blaða­manns]. Ég veit að Vikki vildi að [dóttir okkar] fengi bestu tæki­færin í líf­inu, þau tæki­færi sem hún hafði aldrei. Þetta brýtur hjarta mitt.“

Hann knús­aði dóttur sína og grét: „Við lifum í von­inni, er það ekki stelpa?. Hún var svo góð móðir þessum krakka og ég vona að hún geti orðið góð móðir aftur.“

Fór út af heimili tengdaforeldranna

Victoria sást á heim­ili sínu í bænum klukkan níu á mánu­dags­morgun ásamt unnusta sínum Matthew og tveggja ára dóttur þeirra. Hún var í mynd­sím­tali með systk­inum sínum.

Matthew og Victoria fóru síðan með dóttur sína til að heim­sækja for­eldra hans. Victoria yfir­gaf síðan heim­ili for­eldra hans og kom ekki aftur, sagði systir hennar Heidi Baker.

Talið er að hún hafi verið á leið í átt að sam­fé­lags­bóka­safni í bænum.

Victoria náð­ist á örygg­is­mynda­vél klukkan 11:35 þegar hún keypti flösku af Dr Pepper og flösku af vatni í Mark and Spencer-verslun í nágrenn­inu í BP bens­ín­stöð á Welham Road.

Mynd­bandið sýnir hjúkr­un­ar­fræð­ing­inn inni í versl­un­inni með húfu og í bláum Adidas-frakka.

Kona í bænum sá hana fara yfir járn­braut­ar­teina nálægt Lidl verslun á Welham Road um klukkan 11.30 til 12 á hádegi, á leið í átt að ánni Derwent. Heima­menn sáu hana síðan fara fram­hjá barna­leik­garði á staðnum, Riverside Playground, og ganga eftir þykk­grónum stíg með­fram á ánni á milli klukkan 11:30 og hádegis.

Vinir Victoriu hafa haldið því fram að Instagram reikn­ingur hennar hafi enn verið „virkur“ dag­inn eftir að hún hvarf. Þeir sögðu að fjöl­skylda Taylor gæti hafa verið að nota Instagram prófíl­inn hennar, sem leiddi til þess að reikn­ing­ur­inn sýnd­ist sem „virkur“, sagði Sun. Hins vegar hafa ást­vinir týndu brúð­ar­innar ekki lýst því yfir að svo hafi verið.

Drónar hafa verið not­aðir við leit­ina á meðan lög­reglu­menn á kajak hafa sést á ánni Derwent. Kaf­arateymi hefur einnig tekið þátt á meðan aðrir hafa skoðað myndefni úr örygg­is­mynda­vélum í kringum Malton þar sem Victoria sást síð­ast.

Martin Dennison frá lög­regl­unni í Norður-Jór­vík­ur­skíri sagði: „Við höfum miklar áhyggjur af því hvar Victoria er nið­ur­komin og viljum, eins og fjöl­skylda hennar og vinir, bara sjá hana heila á höldnu. Ég vil hvetja almenn­ing til að fara var­lega ef leitað er að Viktoríu nálægt ánni.“

Facebook hópur sem heitir „Leitin að Victoriu Taylor (e. The search for Victoria Taylor)“ hefur verið settur á lagg­irnar og hefur nú yfir 3.000 með­limir. Þá hafa vinir og íbúar á staðnum sagt að þeir muni ekki gef­ast upp á að leita að Victoriu, sem er upp­runa­lega frá Hudd­ers­fi­eld, í Vestur-Jór­vík­ur­skíri.

O

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Heimur

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Heimur

Átta ára drengur skot­inn til bana

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi

Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco

Heimur

Dul­ar­fullt ákall á net­inu vekur ótta við óeirðir á Tenerife