Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Guðrún biskup berst fyrir hagsmunum transfólks: „Svolítið flókið að strákurinn minn væri nú stelpa“

Guðrún biskup berst fyrir hagsmunum transfólks: „Svolítið flókið að strákurinn minn væri nú stelpa“
Guðrún Karls Helgu­dóttir.

„Þetta var svo­lítið flókið til að byrja með; að strák­ur­inn minn væri nú stelpa og það tók svo­lít­inn tíma að venj­ast því. En fyrst og fremst fann ég fyrir svo sterkri þörf fyrir að vernda hana og hjálpa henni á þess­ari veg­ferð,“ segir Guðrún Karls Helgu­dóttir, biskup Íslands, í við­tali við Heim­ild­ina um þá lífs­reynslu sína að sonur hennar kom út úr skápnum sem trans. Þegar sonur hennar, sem nú heitir Frigg, sagði móður sinni frá þess­ari stöðu fyrir nokkrum árum leit­aði hún ráð­gjafar tveggja presta
„Ég gat rætt við þau um þetta allan tím­ann. Það var ákaf­lega dýr­mætt að geta speglað þetta frá öllum hliðum við þessa góðu vini mína sem eru vel gerðar, skyn­samar, heil­steyptar og trú­aðar mann­eskjur. Það skipti miklu máli,“ sagði Guðrún við Heim­ild­ina.
Biskup Íslands hefur öðl­ast mik­inn skiln­ing á aðstæðum trans fólks. Hún segir að dóttir hennar muni þurfa að kljást við for­dóma og ýmis vanda­mál vegna stöðu sinnar.

Guðrún Karls Helgu­dóttir, biskup Íslands, berst fyrir hags­munum trans­fólks.

„Framtíð hennar verður aldrei auð­veld. Hún verður aldrei hrein og bein og slétt og felld sem þýðir, myndi ég halda, að hlut­verk okkar sem for­eldra sé enn mik­il­væg­ara þar sem
trans barn þarf að ganga í gegnum svo miklar breyt­ingar. Hún mun vænt­an­lega alltaf þurfa stuðn­ing okkar eins og auð­vitað öll börn en aðeins með öðrum hætti vegna þess að hún mun vænt­an­lega verða fyrir ein­hverjum for­dómum.“
Hún hefur velt því fyrir sér hvað það geri með sjálfs­mynd­ina að vera for­eldri trans­barns.
„Það eru þó nokkrir prestar sem eiga trans börn eins og fólk í öllum stéttum
og úti um allt. Ég vil lifa lífi sem er ein­falt og koma til dyr­anna eins og ég
er klædd. Ég er stolt móðir trans barns,“ segir Guðrún og segir það krefj­ast hug­rekkis að koma út sem trans mann­eskja.

Ítarlegt og ein­lægt við­tal Svövu Jóns­dóttur blaða­manns er við Guðrúnu í nýjasta tölu­blaði Heim­ild­ar­innar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Slúður