Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Anna Kristjáns og kakkalakkarnir: „Sauðmeinlausir, en ógeðslegir“

Anna Kristjáns og kakkalakkarnir: „Sauðmeinlausir, en ógeðslegir“
Anna Krist­jáns­dóttir. Mynd: Facebook

„Ég sé að DV skrifar um kakka­lakka­plágu á Tenerife. Ég við­ur­kenni alveg að ég er lítt hrifin af þessum kvik­indum, en geri mér um leið grein fyrir því að kakka­lakkar eru sauð­mein­lausir, bara ógeðs­legir.“ Þannig hefst nýjasta dag­bók­ar­færsla Önnu Krist­jáns, þar sem kakka­lakkar eru henni hug­leiknir.

Vél­stjór­inn fyndni, Anna Krist­jáns­dóttir rifjar upp í færsl­unni þegar hún kynnt­ist kakka­lakka­plágum til sjós:

„Ég hefi vissu­lega kynnst alvöru kakka­lakka­plágum til sjós þar sem allt var mor­andi í kakkalökkum, meira að segja svo slæmri á einu skip­inu að ég þurfti að halda mér fast í koj­una svo þeir hentu mér ekki úr koj­unni til að auka rýmið fyrir sjálfa sig (smá­ýkjur), en það voru engar ýkjur að ves­al­ings báts­mað­ur­inn vakn­aði eitt sinn við að einn kakka­lakk­inn var á sæng­ur­kant­inum og ull­aði á hann. Hræðslu­ópið í honum heyrð­ist um allt skip. Hann hætti eftir túr­inn. Best að taka fram að ég hefi aldrei verið báts­maður til sjós svo ekki var það ég sem hljóð­aði, en skepnan ég hló að hræðsl­unni í ves­al­ings báts­mann­inum.“

Þá seg­ist Anna fyrst hafa kynnst fljúg­andi kakkalökkum þegar hún flutti til Para­dísar:

„Ég hafði aldrei kynnst fljúg­andi kakkalökkum fyrr en ég flutti til Tenerife. Það er kannski rangt að tala um að þeir fljúgi, frekar að þeir svífi, en ef þeir eru svo óheppnir að lenda á bak­inu er þeim bráður bani búinn, því fæstum dettur til hugar að snúa þeim við og bjarga lífi þeirra. Þeir láta sig ber­ast með vind­inum og geta því alveg eins kom­ist upp á efstu hæðir húsa, en þeim líður samt best í kjall­ar­anum og láta ekki mikið fara fyrir sér í dags­birtu. Ég þekki þó einn Vest­manna­ey­ing sem tekur þá gæti­lega upp, réttir þá við og sleppir þeim utandyra ef þeir kom­ast inn til þeirra hjóna hér á eyj­unni. En hann er líka dæmi­gerður Eyja­maður sem ber virð­ingu fyrir líf­rík­inu og nátt­úr­unni.“

Seinna í færsl­unni gefur hún ráð gegn hel­vítis kakkalökk­unum:

„Fyrsta árið mitt á Tenerife fékk ég oft kakka­lakka inn til mín þótt ég byggi á fimmtu hæð, en þeir voru samt hátíð sam­an­borið við Herra Grinch sem bjó á hæð­inni fyrir neðan mig. Innan við ári eftir að ég flutti hingað, skipti ég um íbúð og flutti hingað sem ég er í dag. Þótt ég sé nú á annarri hæð, eru skiptin sem ég hefi séð kakka­lakka inni hjá mér lítt fleiri en telja má á fingrum ann­arrar handar. Ein er samt reglan. Eftir að myrkrið skellur á loka ég út á svalir ef ég er ein heima. Það er bursti undir úti­dyra­hurð­inni hjá mér til að hindra að smá­kvik­indi kom­ist undir úti­dyrnar og ég er með net fyrir glugg­anum á bað­her­berg­inu. Að auki er ég ávallt með inni­skó við hlið­ina á rúm­inu mínu, en hefi samt aldrei stigið á neitt lif­andi hafi ég þurft að tæma blöðr­una að nóttu til. Svo er gott að skúra gólfið með sítrónu­vatni því kakkalökkum er illa við sítrónuilm­inn.Sagan af kakka­lakka­ræktun minni verður ekki sögð hér, enda sorg­ar­saga.Ekki orð um það meir.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Menning

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Hrósar lýsingum Laxness á íslenskri náttúru og árstíðunum
Myndband
Menning

Luthers­son frum­sýnir blóð­uga ást­ar­sögu í eyði­mörk Kali­forníu

Menning

Sendu sím­ann í svefn­poka og fáðu smá frið

Menning

Ást, missir og barn­þrá í upp­seldri skáld­sögu Mar­grétar

Menning

Frá Rocky og Springsteen til aftöku í Sádi-Arabíu