Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Sigurður á langveika dóttur: „Flogaköstin hættu eftir að hún fór að nota CBD“

Sigurður á langveika dóttur: „Flogaköstin hættu eftir að hún fór að nota CBD“
Sigurður Jóhann­es­son Mynd: Aðsend

Sigurður Hólmar Jóhann­es­son segir líf dóttur sinnar hafa tekið stakka­skiptum eftir að hún fór að nota CBD olíu. Sigurður, sem er nýjasti gest­ur­inn í podcasti Sölva Tryggva­sonar, seg­ist seg­ist lært að lifa í meira æðru­leysi eft­ir að Sunna dótt­ir hans greind­ist með afar sjald­gæf­an tauga­sjúk­dóm:

„Þegar maður á börn, þá gerir maður ein­fald­lega allt fyrir börnin sín. Síðan hún greind­ist með þennan sjúk­dóm fyrir 18 árum er ég búinn að vera að reyna að finna ein­hverja með­ferð sem virkar. Ég hef legið yfir rann­sóknum, skoðað lyf, fæðu­bót­ar­efni, jurtir og margt fleira. Þegar hún var sjö ára fór hún að fá floga­köst sem hún hafði ekki fengið áður. Ég mundi eft­ir að hafa heyrt um CBD og að það gæti hjálpað, en var samt rag­ur við að prófa af því að fyr­ir mér var kanna­bis bara eit­ur­lyf. En svo fer ég að sjá greinar í vís­inda­tíma­ritum um þetta efni og þá fór áhug­inn að aukast,“ segir Sigurður, sem ákvað að fræða sig meira og end­aði svo á að fara til Banda­ríkj­anna:

„En eft­ir að hafa ferð­ast til Banda­ríkj­anna og kynnst fyr­ir­tæki sem var að fram­leiða ol­í­una tók ég með mér flösk­ur heim og við próf­um að gefa Sunnu. Það varð strax mik­il breyt­ing og á aðeins nokkr­um vik­um fækk­aði köst­un­um mikið og á end­an­um hurfu þau al­veg. Á sama tíma byrj­aði ég að taka þetta sjálfur líka, af því að ég hafði þróað með mér tauga­sjúk­dóm sjálfur út af álagi. Tauga­kerfið mitt var komið í rúst og ég var með mik­inn svima og sjón­trufl­anir,“ segir Sigurður, sem þurfti að hætta vinnu sinni sem flug­um­ferð­ar­stjóri, sem hann hafði unnið við í 27 ár. En ör­lög­in gripu í taum­ana og álagið við að ann­ast lang­veikt barn tók mik­inn toll. Hann klessti á vegg og neydd­ist til að skilja við fer­il­inn sem flug­um­ferðar­stjóri og leita á önn­ur mið: 

„Ég hafði lík­lega verið í „fig­ht or flig­ht“ stöðu nán­ast stans­laust í fleiri fleiri ár og á end­an­um gaf kerfið sig bara. Ég hef alltaf verið rosa­lega virk­ur og vil hafa það þannig og þetta var mjög erfitt tíma­bil. Að geta ekki gert það sem maður er van­ur. En þá þarf maður að finna leiðir og ég gerði allt til þess að ná mér til baka og það tókst á end­an­um. Eitt af því sem hjálp­aði mér mikið var CBD-olí­an. Þegar ég hafði bæði séð og fundið áhrifin á sjálfum mér og dóttur minni var ekk­ert annað í stöð­unni en að fara að flytja inn CBD olíu og selja hana. Fyrst þegar ég var að skrifa um þessa plöntu, hamp­inn og olí­una fékk ég ekki eitt læk á póstana mína og fólk hélt lík­lega að ég væri orð­inn ruglu­dallur. En nú hefur orðið mikil vakn­ing í þessu og CBD er núna notuð af fólki á öllum aldri, sem er jafn­mis­jafnt og það er margt. Sum­ir nota olí­una til að hjálpa til við svefn, aðrir til að slá á skjálfta vegna Park­in­sons eða verki. En ég hef ekki tölu á fólk­inu sem hef­ur komið til mín og fundið mik­inn bata af alls kyns kvill­um og náð að stór­bæta lífs­gæði sín. En samt eru regl­urnar í kringum þetta ennþá mjög skrýtnar og það má bara selja þetta sem húð­vöru, þó að allir viti að þetta sé tekið inn í gegnum munn­inn líka.“

Sig­urður, hefur und­an­farin ár barist fyirr því að fá lög­leið­ingu á CBD, hampi og kanna­bis í lækn­inga­til­gangi. Hann er einn þeirra sem stendur fyrir ráð­stefn­unni ,,Hampur fyrir fram­tíð­ina” sem fram fer næstu helgi í Salnum í Kópavogi:

„Þegar maður upp­lifir á barn­inu sínu það sem ég upp­lifði hugsar maður bara af hverju það var eng­inn búinn að segja manni frá þessu áður. Öll eigum við ein­hverja ætt­ingja eða vini sem eru að kljást við ein­hver veik­indi. Viljum við ekki hjálpa þeim og að þau eigi mögu­leika á að nota nátt­úru­lega lausn ef hún er í boði? Í stað­inn fyrir að láta þau fá Oxycontin og dópa þau upp. Að fólk geti byrjað að verða aftur fún­ker­andi þegnar í sam­fé­lag­inu. Það er bein­línis rangt að halda þessu frá fólki ef þetta getur orðið lausn á veik­indum eða öðru sem hamlar öllum lífs­gæðum. Best væri að lög­leiða þetta allt saman eins og gert hefur verið í Möltu, Þýska­landi og fleiri löndum. En þar er ákveðið reglu­verk sem kemur í veg fyrir að hver sem er geti opnað sjoppu með kanna­bis. En fólk hefur þá val­kost að kljást við sína kvilla með þessum hætti í stað þess að poppa pillur sem hafa yfir­leitt miklar auka­verk­anir. Það hefur miklu verið tjaldað til í ráð­stefn­una núna um helg­ina og þarna kemur margt af færasta fólki heims til þess að fræða okkur um þessa mögn­uðu plöntu. Ég hvet alla til að mæta og ekki síst fólk úr stjórn­málum og heil­brigð­is­geir­anum.“

Hægt er að nálg­ast við­talið við Sigurð og öll við­töl og pod­köst Sölva Tryggva­sonar inni á sol­vi­tryggva.is

Hér má svo horfa á það á YouTube:

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Menning

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Hrósar lýsingum Laxness á íslenskri náttúru og árstíðunum
Myndband
Menning

Luthers­son frum­sýnir blóð­uga ást­ar­sögu í eyði­mörk Kali­forníu

Menning

Sendu sím­ann í svefn­poka og fáðu smá frið

Menning

Ást, missir og barn­þrá í upp­seldri skáld­sögu Mar­grétar

Menning

Frá Rocky og Springsteen til aftöku í Sádi-Arabíu