Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Yfir 60 látnir eftir hamfaraflóðið á Spáni: „Mikill harmleikur“

Yfir 60 látnir eftir hamfaraflóðið á Spáni: „Mikill harmleikur“
Björg­un­ar­sveita­fólk gerir hvað það getur til að hjálpa nauð­stöddum. Mynd: Facebook

Tugir hafa fund­ist látnir eftir að úhellis­rign­ing olli skyndi­flóðum í suð­aust­ur­hlusta Spánar. Í Facebook-hóp­inum Íslend­ingar í Costa Blanca er staðan sögð grafal­var­leg.

„Grafal­var­leg staða í Valencia og ná­grenni. Mörg þorp eru á bólakafi, hús að hrynja, AP7 Valencia-Madrid og flug­völl­ur­inn á floti. Þúsund­ir manna fast­ir í bíl­um og sum­ir ekki svo heppn­ir að hafa kom­ist und­an. Hryll­ing­ur!!!,“ seg­ir í færslu Íslend­inga í Costa Blanca á Face­book. Við færsl­una birt­ust fjöl­margar ljós­myndir sem sýna hið skelfi­lega ástand sem nú er í suð­aust­ur­hluta Spánar.

Ástandið er skelfi­legt.

Í athuga­semd við færsl­una er skrifað: „Mikill harm­leikur. Það eru engin orð til að lýsa upp­lýs­ingum sem eru að ber­ast frá nágranna­hér­að­inu Valencia þar sem að minnsta kosti 51 dauðs­föll og tugir sakn­aðs eru þegar skráðir.“ Síðan færslan var skrifuð hefur talað hækkað upp í að minnsta kosti 60.

Hryll­ingur.

Samkvæmt Reuters segir Carlos Mazon, svæð­is­stjóri Valencia, að sumir séu enn ein­angr­aðir á óað­gengi­legum stöðum.

„Ef neyð­ar­þjón­usta hefur ekki komið, þá er það ekki vegna skorti á vilja, heldur vegna aðgangs­vanda­mála,“ sagði Mazon á blaða­manna­fundi og bætti við að það væri „alger­lega ómögu­legt að ná til ákveð­inna svæða“.

Fólk hefur þurft að fara upp á bíla sína og bíða eftir björgun.

Tugir mynd­banda sem deilt var á sam­fé­lags­miðlum í nótt virt­ust sýna fólk fast í flóð­inu, þar sem sumir klifra upp í tré til að forð­ast að hríf­ast í burtu með straum­inum.

Þá sáust slökkvi­liðs­menn frelsa öku­menn sem voru fastir í flóð­inu í bænum Alzira, að því er mynd­bönd á net­inu sýndu.

Allt á floti í Valencia.

Neyð­ar­þjón­usta á svæð­inu hvatti borg­ara til að forð­ast allar öku­ferðir og að fylgj­ast með frek­ari upp­færslum frá opin­berum aðilum. Þá var her­deild sem sér­hæfir sig í björg­un­ar­að­gerðum send á vett­vangi á sumum stöðum til að aðstoða neyð­ar­starfs­menn á staðnum.

Eyði­legg­ingin er gríð­ar­leg.

Spán­ar­veð­ur­stofan AEMET lýsti á þriðju­dag yfir rauðri við­vörun í Valencia, stóru sítrusrækt­ar­svæði, þar sem á sumum svæðum eins og Turis og Utiel mæld­ust 200 mm úrkoma. Hún hefur síðan lækkað við­vör­un­ina niður í gult þar sem rign­ingin var að mestu hætt.

Mann­fallið virt­ist vera það versta í Evrópu af völdum flóða síðan 2021 þegar að minnsta kosti 185 lét­ust í Þýska­landi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Geðlæknirinn Haraldur lætur allt flakka
Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Heimur

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi

Heimur

Skoska lög­reglan rann­sakar tengsl Andrews við Epstein

Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco

Heimur

Dul­ar­fullt ákall á net­inu vekur ótta við óeirðir á Tenerife

Heimur

Átta ára drengur skot­inn til bana

Heimur

Beit lög­reglu­hund í háls­inn eftir þriggja tíma flótta