Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Inga Dóra segir stöðu Grænlands grafalvarlega: „Óbreytt ástand er ekki valkostur“

Inga Dóra segir stöðu Grænlands grafalvarlega: „Óbreytt ástand er ekki valkostur“
Inga Dóra

Inga Dóra Guð­munds­dóttir Markus­sen, fyrr­ver­andi for­maður Siumut-flokks­ins í Nuuk, segir marga Græn­lend­inga ugg­andi yfir hug­myndum Donald Trumps. Að hennar sögn var heim­sókn Trump yngri til Græn­lands hálf­part­inn sett á svið.

Frétta­mynd­skeið birt­ust víða er Donald Trump yngri heim­sótti Grænland í gær þar sem hópur Græn­lend­inga sáust taka á móti syni Banda­ríkja­for­seta, sumir hverjir með rauða Trump der­húfu á höfði.

Leikrit

Að sögn Ingu Dóru Guð­munds­dóttur Markus­sen, fyrrum for­mann Siumut-flokks­ins í Nuuk, sem ræddi við Mannlíf, breytt­ist stemmn­ingin í fjöl­miðlum fyrir heim­sókn­inni eftir því sem leið á gær­dag­inn. „Auðvitað fór gær­kvöldið í það að fylgj­ast með fjöl­miðlum, sér­stak­lega dönskum frétta­þáttum og frétta­út­skýr­inga­þáttum.“ Segir Inga Dóra að tónn­inn í fréttum í dönskum fjöl­miðlum hafi breyst snarpt eftir því sem leið á dag­inn en í byrjun hafi verið sýnt frá spenn­andi lend­ingu flug­vél­ar­innar og frá því að Trump yngri steig úr vél­inni en tals­verður fjöldi tók á móti honum. Samkvæmt frétta­manni DR sem kom til Nuuk, taldi hann seinna um kvöldið hafi svo komið í ljós að um ímynd­ar­brellu (e. PR-stunt) hafi verið að ræða. „Það kom lítil þota hingað á mánu­deg­inum sem var með fólk frá Banda­ríkj­unum og þau fengu nokkra til að koma með út á flug­völl og taka á móti honum,“ segir Inga Dóra. Samkvæmt DR höfðu Banda­ríkja­menn­irnir farið í versl­un­ar­mið­stöð­ina í Nuuk og spurt fólk hvaða álit þau hefðu á Banda­ríkj­unum og þau sem höfðu gott álit á land­inu var síðan smalað á flug­völl­inn og þeim réttar rauðar Trump der­húfur. Þannig hafi þessu ferli verið nokkurn veg­inn stjórnað. „Svo kemur þessi ímynd að Græn­lend­ingar séu mjög ánægðir með heim­sókn Donald Trump jr. En það er bara ekki allur sann­leik­ur­inn,“ segir Inga Dóra í sam­tali við Mannlíf.

Grafalvarleg staða

Inga Dóra lítur málið mjög alvar­legum augum en hún segir að for­seta­son­ur­inn hafi sagt í við­tali á Fox-sjón­varps­stöð­inni að Græn­lend­ingar væru til í að verða Banda­ríkja­menn. „Auðvitað er þetta mjög alvar­legt mál. Auðvitað er hann túristi og gerði mikið af því að segja það en svo sér maður við­tal við hann á Fox News seinna um kvöldið þar sem hann segir að Græn­lend­ingar vilji bara verða Amer­ík­anar. Það er bara alls ekki rétt.“ Bætir hún við: „Þetta fór frá því að vera svo­lítið spenn­andi að sjá flug­vél­ina lenda og Donald Trump Jr. og svona en svo aftur á móti verður þetta grafal­var­legt þegar líður á kvöldið.“

Segir Inga Dóra að málið skapi mikið óör­yggi meðal Græn­lend­inga sem und­an­farin ár hafa verið að fá fréttir af málum eins og Lykkju­mál­inu en árið 2022 kom í ljós að yfir­völd í Danmörku höfðu komið lykkj­unni fyrir í þús­undum græn­lenskra kvenna á sjö­unda ára­tug síð­ustu alda. Thetta mál hefur virki­lega breytt við­horfi margra á Danmörku og dönsk yfir­völd. Segir hún að Græn­lend­ingum hafi mörgum brugðið mjög þegar Donald Trump lýsti yfir áhuga sínum á að taka Grænland með valdi. 

Sjálfstæðisferlið er hafið

Aðspurð hvort áhugi verð­andi Banda­ríkja­for­senda á Græn­landi hafi áhrif á stöðu Græn­lands gagn­vart Danmörku svarar Inga Dóra: „Það eru svo mörg mál sem hafa komið upp á síð­astið úr for­tíð­inni sem útskýrir svo margt um stöð­una á Græn­landi í dag. Efna­hags­lega, félags­lega og and­lega stöðu okkar sem þjóð.“ Segir hún að Múte B. Egede, for­maður land­stjórnar Græn­lands hafi, í nýársávarpi sínu sagt að ferlið að sjálf­stæði Græn­lands væri nú hafið með stofnun nefndar sem á að kíkja á málið. Fólk sem fylgst hefur með stjórn­málum á Græn­landi hafi vitað þetta áður en að umheim­ur­inn hafi nú fyrst áttað sig á að ferlið sé farið af stað. „Óbreytt ástand er ekki val­kostur. Það verður að ger­ast eitt­hvað því við höfum, sem þjóð, þörf á að kom­ast áfram.“ Segir hún stjórn­ar­sam­starf Græn­lands og Dan­merkur hafa veikst og nefnir sem dæmi ósk Græn­lands til ad vera fullir adild­ar­med­limur i Norð­ur­landa­ráð­inu, sem dæmi og höfnun thess, sem eitt mál sem líka sýnir hvernig græn­lensk yfir­völd óska eftir auknum áhrifum. Yfir­lýs­ing Trump um að hann vildi gera Grænland að ríki Banda­ríkj­ana hafi svo komið ofan á allt þetta. „Þetta sýnir bara að Grænland er mið­dep­ill­inn í heim­inum út af okkar auð­lindum, en auð­vitað er þetta líka varn­ar­legs eðlis en varn­ar­staða Græn­lands fyrir Banda­ríkin þýðir líka að við erum skot­mark.“    

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Verslunin í Hafnarfirði hefur verið sjálfstæð um áratuga skeið
Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Innlent

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag