Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Erfingi gríðarlegra auðæfa dæmdur í lífstíðarfangelsi – Stakk besta vin sinn 37 sinnum

Erfingi gríðarlegra auðæfa dæmdur í lífstíðarfangelsi – Stakk besta vin sinn 37 sinnum
Bush, til vinstri, Thomas, til hægri. Mynd: Trausti Hafsteinsson

Erfingi kjöt­böku­veldis sem tal­inn er að muni erfa 230 millj­ónir punda hefur verið dæmdur í lífs­tíð­ar­fang­elsi fyrir að myrða besta vin sinn.

Dylan Thomas stakk besta vin William Bush 37 sinnum í háls og lík­ama en öskrin í Bush heyrð­ust frá heim­ili sem þeir deildu, snemma á aðfanga­dags­kvöld 2023.

Fórn­ar­lambið, til vinstri og morð­ing­inn, til hægri

Erf­ing­inn að 230 millj­óna punda auð­æfum, hefur verið dæmdur í lífs­tíð­ar­fang­elsi eftir að hann drap besta vin sinn á aðfanga­dags­morgun eftir að hann sagði honum að hann vildi flytja út og búa með kær­ustu sinni.

Öskrin heyrðust frá húsinu

Dylan Thomas stakk vin sinn, William Bush til bana en öskur heyrð­ust frá heim­ili þeirra snemma morg­uns 24. des­em­ber 2023. William, 23 ára hæfi­leik­a­ríkur kylfingur fannst lát­inn með 37 stungu­sár,  þar á meðal 16 á háls­inum, á meðan Thomas var með skurð á lófa sem hann sagði lög­reglu að hann hefði fengið þegar hann reyndi að verja sig.

Thomas, sem er 24 ára, fór fyrir rétt í Cardiff Crown Court, eftir að hafa neitað morð­inu, þar sem hann naut stuðn­ings Sir Stanley Thomas, en eign hans var metin á 230 millj­ónir punda árið 2013. Í dag var honum sagt að hann yrði sendur í ævi­langt fang­elsi og verður að sitja að lág­marki 19 ár á bak við lás og slá.

Sak­sókn­ar­inn, Greg Bull sagði: „Hann fór inn í eld­húsið þar sem hann vopn­aði sig stórum eld­hús­hníf og svörtum hníf sem hægt er að opna. Síðan fór hann upp stig­ana tvo og inn í her­bergi William Bush. Ráðist var á Bush aftan frá, lík­lega með hnífnum, þar sem Bush sat eða stóð nálægt bauna­poka. Hann var stung­inn að minnsta kosti einu sinni í hnakk­ann. Árásin varð til þess að herra Bush flúði, skít­hræddur um líf sitt niður á jarð­hæð. Þar  hélt Thomas áfram að stinga Bush ítrekað í hnakk­ann, höf­uðið á honum, framan á hálsi og bringu hans. Enn­fremur er ljóst að Dylan Thomas not­aði eld­hús­hníf­inn til að stinga herra Bush í brjóstið og skar hann á háls og þar með í aðalsla­g­æð­ina í hálsi hans, sem leiddi til þess að Bush blæddi til bana.“

Grunsamleg leit á vefnum

Dóm­stóll­inn sagði að fyrir morðið, um klukkan 12:36, hafi Thomas leitað í tölvu sinni að mynd af líf­færa­fræði háls­ins. Bull bætti við: „Ákæru­valdið heldur því fram að þetta hafi verið þáttur sem bendir til þess að á þessu stigi hafi Dylan Thomas ætlað sér að ráð­ast á og drepa William Bush. Við munum aldrei vita raun­veru­lega ástæð­una fyrir ásetn­ingi hans eða raun­veru­legu ástæð­una fyrir því að hann fram­kvæmdi téða tölvu­leit. Herra Bush var að reyna að flýja frá herra Thomas sem elti hann út úr svefn­her­berg­inu sínu, niður tvo stiga, í gegnum eld­húsið og út á ver­önd­ina þar sem Bush hrundi eftir að hann hafði hlotið ban­vænan skurð á slagæð í hálsi hans.“

Dóm­stólnum var sagt að afstaða Thomasar til Williams hefði breyst vegna ást­ar­sam­bands hans við kær­ustu sína, Ellu. Bull sagði: „Í októ­ber til nóv­em­ber 2023 sagði Bush Ellu að Thomas hefði sagt við sig: „Ég hugs­aði og/eða velti því fyrir mér hvort ég ætti að drepa þig“. Bush tók þessum ummælum alvar­lega en hann sagði Ellu að um nótt­ina hefði hann lokað svefn­her­berg­is­hurð sinni til að koma í veg fyrir að Thomas kæm­ist inn í svefn­her­bergið á meðan hann var sof­andi.“

Vináttan breyttist

Bull sagði að vin­skapur þeirra hafi breyst eftir að William kynnt­ist kærust­unni Ellu Jeffries – og hugð­ist að flytja til hennar í stað­inn. Hann sagði: „Áður en herra Bush hitti Ellu Jeffries eyddu menn­irnir tveir miklum tíma saman. Þeir spil­uðu oft golf saman, þeir fóru út saman á kvöldin og Bush studdi Thomas á allan hátt sem hann gat. Hann keyrði Thomas reglu­leag á hvaða stað sem hann vildi fara þar sem Thomas gat ekki keyrt. Í stuttu máli treysti Thomas mjög á vin­áttu sína og tíma með Bush. Gang­verkið í sam­bandi mann­anna tveggja var að breyt­ast á tíma­bil­inu fram að jólum 2023. Í fyrsta lagi eyddi Bush æ meiri tíma sínum með Ellu, en sam­band þeirra blómstr­aði. Bush og Ella höfðu ákveðið að leita sér að heim­ili saman á nýju ári.“

Þeir félagar kynnt­ust sem skóla­strákar í Christ College, Brecon, þar sem önnin kost­aði 13.000 pund. Þegar William hætti í skól­anum fór hann í háskóla. Tómasi bauðst pláss en þáði það ekki.

Elskaður af öllum

Bull sagði: „Herra Bush var ást­ríkur sonur, bróðir, félagi og vinur. Hann var elsk­aður af öllum sem þekktu hann. Hann var í eðli sínu rólegur og frið­elsk­andi maður sem forð­að­ist árekstra. Hann var vel á sig kom­inn og vöðva­stæltur og þegar hann lést var hann 188 senti­metrar. Hann var íþrótta­maður, mik­ill kylfingur og stund­aði golf fyrir sýsl­una sína.

„Hann starf­aði sem land­mæl­inga­maður hér í borg en hætti störfum vegna streitu og heilsu­brests en hlakk­aði til nýs árs. Hann hafði fundið sér nýja vinnu og var að leita að heim­ili með kær­ustu sinni Ellu Jeffries.“

Bætti hann við: „Amma Thomasar lýsti honum sem rólegri mann­eskju. Eini raun­veru­legi vinur hans var hinn látni. Þeir fóru í frí með fjöl­skyldu Dylans. Dylan og hinn látni deildu ekki aðeins húsi heldur voru þeir góðir vinir. Sak­born­ing­ur­inn treysti mjög á Bush til stuðn­ings. Herra Thomas var sterk­byggður miðað við Bush og mun sterk­ari en hann.“

Thomas sótti mat­ar­boð fjöl­skyldu Bush rétt fyrir morðið.

Dán­ar­or­sökin, sem Dr. Richard Jones fram­kvæmdi við háskóla­sjúkra­húsið í Wales, voru þau að Williams lést af völdum fjölda stungusára á hálsi og lík­ama.

Afinn sleginn til riddara

Fjöl­skylda Williams, ensku­kenn­arafað­ir­inn John, 61 árs, móð­irin Elizabeth, 63 ára, systirin Catrin og bróð­ir­inn Alex­ander, hylltu hinn áhuga­sama ruðn­ings­leik­ara og golfara. Fjöl­skyldan, sem býr í Brecon í Suður-Wales, sagði: „Ástkæri Willi okkar var tek­inn frá okkur á svo grimmi­legan og ólýs­an­legan hátt. Will var svo tryggur, fynd­inn og umhyggju­samur sonur, bróðir og kær­asti.“

Thomas sem er tölvu­for­rit­ari, er barna­barn Sir Stanley Thomas, 82 ára, sem var sleg­inn til ridd­ara árið 2006 fyrir góð­gerð­ar­starf sitt og þjón­ustu við við­skipta­lífið. Faðir hans, einnig kall­aður Stanley Thomas, byrj­aði að selja kjöt­bökur í Merthyr Tydfil í velsku döl­unum. Fyr­ir­tækið, Peter’s Savory Products, var selt fyrir 75 millj­ónir punda árið 1988.

Afinn studdi Thomas við rétt­ar­höldin.

Þegar morð­ingi bróður hennar var dæmdur sagð­ist Catrin Bush vilja gefa bróður sínum rödd í yfir­lýs­ingu um áhrif morðs­ins á aðstand­endur. Hún sagði: „Will var svo trygg, fyndin og umhyggju­söm mann­eskja og hann lýsti upp hvert her­bergi sem hann gekk inn í með ósvífnu brosi sínu og fljót­færum húmor. Þú hefur ekki sýnt neina iðrun eða virð­ingu í öllu þessu ferli. Ég veit ekki hvernig ein­hver gæti verið svona grimmur, stjórn­samur, hjarta­laus og vondur. Þú ollir svo miklum þján­ingum á sak­lausa litla bróður okkar, Will, og þú hefur tekið bjarta fram­tíð Wills frá honum. Ég vona að þér verði aldrei sleppt aftur út í sam­fé­lagið og þú lifir rest­ina af ævi þinni í fang­elsi.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Heimur

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Heimur

Átta ára drengur skot­inn til bana

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi

Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco

Heimur

Dul­ar­fullt ákall á net­inu vekur ótta við óeirðir á Tenerife