Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Logi tók leynilega upp samtal við Arnar Grant: „Þú myndir aldrei fara niður á grátandi stelpu“

Logi tók leynilega upp samtal við Arnar Grant: „Þú myndir aldrei fara niður á grátandi stelpu“

„Þetta meikar bara engan sens, Logi. Þú myndir aldrei fara niður á grát­andi stelpu. Sama þótt ég myndi biðja þig um það. Þú myndir aldrei gera það,“ segir Arnar Grant einka­þjálf­ari á leyni­legri upp­töku sem Logi Bergman, fyrr­ver­andi sjón­varps­maður, gerði af sím­tali á milli þeirra.

Logi missti vinn­una sem þátta­stjórn­andi hjá Árvakri í fram­haldi þess að Vítalía Lazareva sak­aði hann um að hafa brotið gegn sér á Hótel Hamri í Borg­ar­nesi með leyfi frá Arnari Grant sem var her­berg­is­fé­lagi hennar á þeim tíma. Um var að ræða golf­ferð þann 17. júní 2021. Arnar var með Loga og félögum hans í för en Vitalía var leyni­lega með Arnari sem var á þeim tíma kvæntur.

Upp­á­koman á hót­el­her­berg­inu varð þegar Logi fór að athuga með Arnar sem hafði horfið upp á her­bergi undir því yfir­skyni að hann væri slappur. Félag­arnir tóku að ótt­ast um Arnar og Logi fór og bank­aði á dyr her­berg­is­ins en fékk ekk­ert svar. Þá fékk hann lykil að her­berg­inu hjá hót­el­starfs­manni og opn­aði her­bergið og þá komst upp um leynig­est Arnars.

„Ég er búinn að hugsa þetta hund­rað sinnum. Ég hefði átt að láta ein­hvern hót­el­starfs­mann tékka ykkur en ég hafði bara áhyggjur af ykkur, hvort það væri eitt­hvað að,“ segir Logi í upp­tök­unni.

„Ég var búinn að segja við ykkur að ég væri eitt­hvað slappur og ætl­aði upp á her­bergi,“ sam­sinnir Arnar.

„Ég hélt bara að þú hefðir fengið hjarta­á­fall eða eitt­hvað,“ segir Logi og Arnar seg­ist skilja það.

„Þið bönk­uðuð á dyrnar. Svo er rætt um það í öllum fjöl­miðlum að þetta hafi gert í sept­em­ber þegar hið rétta er að þetta gerð­ist 17 júní,“ segir Arnar. Þetta er athygl­is­vert í ljósi þess að Vítalía var aftur í för með Arnari á sömu slóðum þremur mán­uðum seinna, þegar golf­hóp­ur­inn var næst að spila á Ham­ar­svelli.

Við erum þrjú sem vitum þetta alveg

Allt fór á annan end­ann þegar Vítalía sagði frá því í hlað­varpi Eddu Falak, Eigin konur, 4. jan­úar 2022 að Logi hefði brotið gegn sér með leyfi Arnars. Þannig hefði hún grátið þegar henni var gert að hafa munn­mök við Loga eftir að hafa dregið spil þar að lút­andi. Vítalía sagði upp­haf­lega að Arnar hafi viljað tryggja þögn Loga með því að bjóða honum aðgang að sér. Eftir að málið kom upp var Logi rek­inn úr vinnu sinni og far­sæll fer­ill hans í kalda­koli.

Nokkru eftir þátt Eddu hafði Logi sam­band við Arnar sím­leiðis og hljóð­rit­aði sím­talið án vit­undar Arnars. Þar segir Logi að það sé búið að reka hann en hann mun i berj­ast eins og hann geti. Svo fór hann yfir málið.

„Ég geng inn á ykkur, ég tala við ykkur, ég fer. Það er ekk­ert sem ger­ist,“ segir Logi og Arnar sam­þykkir.

„Við erum þrjú sem vitum þetta alveg. Við erum á sömu blað­síð­unni með þetta, alveg,“ segir Arnar og Logi áréttar hvort þetta hafi ekki verið hans upp­lifun.

„Jú, þetta er mín upp­lifun. Þetta var svona,“ svarar hann.

„Mér hefur verið sagt upp fyrir sakir sem eru ekki sannar. Ég hef aldrei snert þessa konu. Ég mun ábyggi­lega ein­hvern tím­ann fara í mál við Moggann, eða eitt­hvað,“ segir Logi og segir það eina sem hann ótt­ist sé að Arnar og Vítalía muni byrja aftur saman og þannig endi málin.

„Nei, ég hef aldrei verið með henni og ég var undir hælnum á henni allan tím­ann,“ segir Arnar og lýsir því yfir að síðan hafi komið í ljós að Vítalía hafi verið með „fjár­kúgun bak­dyra­megin“.

Logi spyr hvað hann eigi við með þeim orðum og fær það svar að hún hafi verið að reyna að kúga fjór­menn­ing­ana í potta­mál­inu.

„Hún  var að reyna að fjár­kúga strák­ana. Þegar hún fer í þetta við­tal er hún búin að vera í miklum samn­inga­við­ræðum við þá með upp­hæð sem ætti að borga henni,“ segir Arnar og segir að ekki hafi gengið saman með þeim og þess vegna hafi hún farið í við­talið til Eddu.

Logi spyr þá hvort Vítalía sé að ljúga upp á sig til þess að hefna sín. Arnar sam­sinnir því.

„Já líka til þess að gera málið stærra. Hún er bara að reyna að skemma sem mest til að gera sjálfa sig trú­verð­ugri.

Logi veltir því upp að Vítalía hafi haft sam­band við sig og náð að veiða sig í gildru.

„Hún hefur allt í einu sam­band við mig. Þá varst þú búinn að segja mér að vera bara auð­mjúkur, eitt­hvað og biðj­ast afsök­unar á að hafa vaðið inn (í her­bergið) og vera dóna­legur við hana í sam­skiptum. Þá veiðir hún mig, þá nappar hún mig. Það sem er svo óþægi­legt er að hún byrjar að setja sam­skipti hérna út í loftið. Hún byrjar að fá játn­ingu hjá mér. Þá er hún ekki að tala um Borg­ar­nes. Þegar hún er komin með játn­ing­una frá mér þar sem ég seg­ist taka ábyrgð, þá byrjar hún að tala um Borg­ar­nes.  Það var planað hjá henni,“ segir Logi á upp­tök­unni.

Arnar Grant og Vítalía Lazareva. Samsett mynd.
„Ég er bara með áfallastreituröskun“

„Hún var með þetta planað allan tím­ann. Hún er búin að gera þetta áður. Ég er með email frá manni sem hefur lent í henni líka með fjár­kúg­anir,“ segir Arnar.

Logi spyr hvort sá hafi borgað og svarið er nei.

Hann segir að öll smá­at­riðin í frá­sögn Vítalíu komi sér á óvart. Fram­burður hennar bendi til per­sónu­leika­rösk­unar. „Rosalegt hatur, rosa­leg heift og ofsa­leg reiði,“ segir Logi.

Logi lýsir því í sím­tal­inu hve dýr­keypt ásök­unin hafi reynst sér. Hann hafi í fyrsta sinn verið rek­inn úr vinnu.

„Ég er bara með áfallastreituröskun. Bara búinn að vera ónýtur frá því þetta byrj­aði og geri ráð fyrir að þú sért eins,“ segir Logi.

Arnar stað­festir það og segir að hann sem starfi við að hjálpa öðrum en þurfi nú að huga að sjálfum sér.

„Ég er að hjálpa sjálfum mér bara núna. Það tók nokkra daga að átta mig á stöð­unni“.

Skömmu eftir að Logi tók upp sam­talið tóku Vítalía og Arnar aftur saman. Vítalía dró til baka ásak­anir um að Logi hefði mis­notað hana og sagði að hann hefði ekki gert neitt sem hún ekki sam­þykkti. En þá var líf Loga þegar komið á annan end­ann og engin leið til baka.

Mannlíf hafði sam­band við Loga sem nú býr í Washington. Hann sagð­ist ekk­ert vilja tjá sig um málin og lagð­ist gegn því að upp­takan yrði birt í heild sinni.

„Ég hef engan áhuga á að blanda mér í mál þessa fólks,“ sagði Logi í skrif­legu svari til Mannlífs. Hann hefur aldrei tjáð sig um málið fyrir utan ein­falda yfir­lýs­ingu á Facebook um að hann væri sak­laus og hefði aldrei beitt konur obeldi.

Upptakan sem um ræðir var lögð fram til í kæru­máli á hendur Vítalíu og Arnari fyrir fjár­kúgun. Rík­is­sak­sókn­ari ákvað að hætta rann­sókn þess máls á þeim grund­velli að ekki væru líkur á sak­fell­ingu fyrir dómi. Kærumáli Vítalíu á hendur fjór­menn­ing­unum sem komu við sögu í potta­mál­inu fékk sömu örlög og rann­són þess er hætt. Í næsta hluta úttektar Mannlífs á þessu máli sem skók íslenskt sam­fé­lag verður fjallað um þann hluta máls­ins. Þar verður upp­lýst hvað Arnar sagði um potta­málið.  

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Vítalíumálið

InnlentVítalíumálið

Sam­fé­lagið á reiði­skjálfi eftir ásak­anir Vítalíu og Arnars – Eitruð ást, upp­spuni og mann­orðs­morð

Sam­fé­lagið lék bók­staf­lega á reiði­skjálfi eftir að Vítalía Lazareva steig fram og bar þungar ásak­anir á ást­mann sinn, Arnar Grant, og fjóra aðra ein­stak­linga. Málið náði langt út fyrir það að vera hefð­bundið áreit­is­mál þar sem per­sónu­legur harm­leikur er að baki. Það teygði sig inn í eitt stærsta fjöl­miðla­fyr­ir­tæki lands­ins og næstærstu smá­sölu­keðj­una. Lang­flestir trúðu fram­burði ungu, sak­leys­is­legu kon­unnar sem...

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi