Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Arnar Grant gerði upp Pottamál Vítalíu í leyniviðtalinu við Loga: „Hún misnotar MeToo-byltinguna“

Arnar Grant gerði upp Pottamál Vítalíu í leyniviðtalinu við Loga: „Hún misnotar MeToo-byltinguna“

„En hún mis­notar MeToobyltinguna, sem er svo mikil aft­ur­för fyrir þetta starf sem MeToo hefur gert. Þegar konur eru svo farnar að mis­nota þetta og ganga svo fram til að hefna sín. Það er svo rosa­lega ljótt að gera þetta. Ef að fólk vissi að á sama tíma og hún er að gera þetta er hún að biðja um pen­inga,“ sagði Arnar Grant í sím­tali sem Logi Bergmann Eiðsson sjón­varps­maður átti við hann og hljóð­rit­aði leyni­lega skömmu eftir að Vítalía Lazareva kom fram í við­tali við Eddu Falak og sagði að Logi hefði áreytt sig kyn­ferð­is­lega sam­kvæmt fyr­ir­mælum Arnars.

Vítalía og Arnar voru sökuð um fjár­kúgun í Potta­mál­inu.

Eins og farið var í gegnum í fyrri grein Mannlífs breytti Vítalía seinna fram­burði sínum og sagði að Logi hefði ekk­ert gert sem hún sam­þykkti ekki. Þá var hann búinn að missa atvinnu sína og mann­orð, eins og hann lýsti því sjálfur. Greinar Mannlífs byggja á sím­tali Loga og Arnars og öðrum heim­ildum, bæði munn­legum og skrif­legum. Þess á meðal er skrif­leg grein­ar­gerð Arnars um máls­at­vik.

Krafan nam 300 milljónum

Logi spurði Arnar út í Potta­málið svo­kall­aða þar sem Vítalía sak­aði þrjá þjóð­þekkta menn, Þórð Má Jóhann­es­son, Hreggvið Jónsson og Ara Edwald um að hafa mis­boðið sér kyn­ferð­is­lega í heitum potti við sum­ar­bú­stað Þórðar í Skorra­dal. Áður en Vítalía steig fram í umræddum þætti hafði hún skýrt frá mál­inu á sam­fé­lags­miðlum með harka­legum hætti. Hún nafn­greindi þre­menn­ing­ana í fyrstu en stók síðan nöfn þeirra út. Til­raunir voru gerðar til að  að semja um fjár­bætur við þre­menn­ing­ana. Arnar seg­ist vera með á hreinu hvað þar var á seyði.

„Það voru búnar að ganga margar tölur á milli. Ég ákvað meira að segja að skrifa niður til Almars lög­fræð­ings sem sá um þessa samn­inga,“ segir Arnar. Fram hefur komið að krafan hafi verið 50 millj­ónir á mann. Heim­ildir Mannlífs herma að menn­irnir hefðu  verið til­búnir til að greiða 3-4 millj­ónir til að kaupa sér frið. Sú upp­hæð er í takti við það sem þekktur knatt­spyrnu­maður greiddi konu sam sak­aði hann um áreiti. Vítalíu og Arnari þótti upp­hæðin vera alltof lág og fram kom krafan upp á allt að 150 millj­ónum króna eftir skatt sam­an­lagt fyrir menn­ina þrjá. Það var mat þre­menn­ing­anna að þetta sam­svar­aði 300 millj­ónum króna þegar allt var reiknað til.

Þrýstingur vegna Báru

Arnar nefnir í sím­tal­inu aðdrag­and­ann að því að Vítalía steig fram í umræddum hlað­varps­þætti. Blaða­maður Kjarnans hafi verið í sam­bandi við Vítalíu.

„Þetta var búið að vera í rann­sókn hjá henni þarna (Báru) Huldu Beck, þarna blaða­manni. Bára tal­aði aldrei við mig til að fá aðra hlið á þessu. Vítalía var í miklum sam­skiptum við hana en vildi ekki fara í fag­legt við­tal út af þessu en ákvað að mis­nota MeToo-bylt­ing­una og fara í við­tal við Eddu, bara til að skemma sem mest,“ segir Arnar. Bára Huld hafði sjálf gengið í gegnum áreyti þar sem hlut­hafi Kjarnans, Ágúst Ólafur Ágústs­son átti í hlut. Það þótti til­valið að láta það ber­ast að Bára væri að rann­saka málið og skapa þannig þrýst­ing.

Arnar nefnir dæmi um mann sem hann segir að Vítalía hafi þvíngað til þess að kaupa þögn sína. Þar var þó ekki um að ræða bein­harða pen­inga.

„Nei, hún var að kúga út úr honum að fá frían sum­ar­bú­stað leigðan og hún hafði tak á honum og ég veit að hún hefur tak á fleiri mönnum,“ svarar hann Loga í sím­tal­inu.

Arnar reifar Potta­málið og segir að þar sé aðeins um að ræða Þórð Má, Dodda, hvað varðar sam­skipti við Vítalíu.

„Ég fór bara út í pott. Þá var hún búin að setja fæt­urnar á sér yfir fæt­urna á Dodda. Gott kem­estrí  þarna á milli. Hann fer nátt­ur­lega með hana inn í her­bergi, að hennar sögn, og er eitt­hvaö að reyna við hana þar. Ég nátt­úr­lega sá það aldrei,“ segir Arnar.

Vítalía hélt því seinna fram að þre­menn­ing­arnir hefðu allir mis­boðið sér með svip­uðum hætti þar sem þau voru nakin í pott­inum.

Mann­orðið mitt er bara ónýtt

Logi seg­ist vera undr­andi á því hve ráða­lausir þre­menn­ing­arnir séu með við­brögð í þessu máli. Arnar á svar við því.

„Já en sko, þeir geta ekk­ert gert á meðan umræðan er í þessum far­veg. Þeir eiga bara ekki mögu­leika þegar umræðan er svona. Svo er eitt líka. Af hverju ættu þeir að vilja tjá sig um málið þegar eru engar kærur eða neitt?“ spyr Arnar.

Logi bendir á þann skaða sem þeir hafi orðið fyrir.

„Það er nátt­úr­lega búið að eyði­leggja mann­orð þeirra. Mann­orðið mitt er bara ónýtt. Ég er rek­inn í fyrsta sinn á ævinni. Ég verð að gera eitt­hvað. Ég verð að koma ein­hverju frá mér. Ég verð að segja eitt­hvað. Ég verð að útskýra hvernig þetta er í raun og veru til að fólkið í kringum mig meiki þetta,“ segir Logi í þessu sam­hengi.

Logi Bergmann Eiðsson

Arnar varar hann við að stíga ein­hver skref í þá átt­ina og ráð­leggur honum að ræða aðeins við sitt fólk.

„Ef þú gerir það opin­ber­lega þá færðu ennþá meiri skít yfir þig. Það er ekki rétta leiðin eins og staðan er í dag.

Logi spyr hvort Vítalía muni ein­hvern tím­ann koma fram og segja sann­leik­ann.

„Nei, hún mun ekki kæra heldur. Hún bara vinnur þetta svona með heift og mis­notar þessa MeToo-bylt­ingu sem er rosa­lega ljótt.

Logi spyr hvort Arnar sé búinn að heyra í Þórði Má, Hregg­viði og Ara?

„Nei, ég er ekki búinn að gera það Ég er að fara að hitta Sigga G. (Lögmann) á mánu­dag­inn. Þeir voru búnir að afla sér upp­lýs­ingar eitt­hvað um hana. Svo er ég nátt­úr­lega með fullt af upp­lýs­ingum um hana. Við ætlum að sjá hvað við erum með í pok­anum. Núna eins og staðan er í dag er ekk­ert hægt að gera opin­ber­lega,“ segir Arnar.

„Ég er alltaf með sím­ann á mér Logi“

Arnar seg­ist hafa fleiri dæmi um að Vítalía hafi neytt menn til að hlýða sér. Hann nefnir nöfn þekkts lög­manns og kaup­sýslu­manns sem hún hafi undir hælnum.

„Hún er grjót­hörð og það gerir eng­inn neitt  við hana sem hún vill ekki,“ segir Arnar.

Þegar þeir kveðj­ast lofar Arnar að vera Loga innan handar.

„Ég er alltaf með sím­ann á mér Logi. Þetta er bara leið­inda­mál sem ég vil að við leysum eins vel og við getum,“ segir hann að sklln­aði og Logi þakkar honum fyrir. Seinna kom á dag­inn að hann og Vítalía stóðu saman í mál­inu og Arnar lék tveimur skjöldum.

Vítalía Lazareva vildi ekki tjá sig um málið eða þær ávirð­ingar sem á hana eru bornar af Arnari. Hún sendi Mannlífi smá­skila­boð og krafð­ist þess að ekki yrðu birtar af henni myndir með umfjöll­un­inni og aðrar myndir af henni yrðu teknar út. Í sím­tali við hana árétt­aði Vítalía að hún hefði engan áhuga á að tjá sig um málin og vís­aði til æsku sinnar á þeim tíma sem atvikin áttu sér stað.

Tímalína Vítalíumála

1.

Sum­ar­bú­stað­ar­ferðin

í Skorra­dal er farin föstu­dag­inn 30 októ­ber 2020.2. ⁠Fyrri ferð Vitalíu Lazareva til Arnars Grant á

Hótel Hamar

er í júní 2021. Hregg­viður Jónsson og Þórður Már Jóhanns­son eru báðir hluti af þeim golf­hópi sem þar spil­aði með Loga og Arnari.3. ⁠Vitalía Lazareva sagði opin­ber­lega að upp­á­koman á

Hótel Hamri

hefði verið í sept­em­ber 2021 – sá mis­skiln­ingur stafar af því að Vítalía mun hafa farið aftur að hitta Arnar í sept­em­ber, þegar golf­hóp­ur­inn spil­aði þar á ný.4. Ári síðar, föstu­dag­inn 29 októ­ber 2021 hóf Vítalía birt­ingu ásak­ana á

Instagram

, á hendur Arnari Grant og félögum hans. Hún setti nöfn þeirra fram í fyrstu en fjar­lægði þau eftir nokkra klukku­tíma.5. Þremur mán­uðum áður hafði Vítalía hótað Arnari Grant  að „jarða hann og vin­ina líka – henda þeim öllum undir strætó­inn” ef hann myndi hætta með henni.6. Arnar Grant tók aftur upp sam­band við Vítalíu í byrjun nóv­em­ber 2021. Fyrrum félagar hans telja að hann sé höf­undur að háum fjár­kröfum á hendur þeim til að fjár­magna nýtt líf með Vítalíu.7. Vítalía kærði ekki í Potta­mál­inu en setti sig í sam­band við félaga Arnars í nóv­em­ber 2021, undir því for­orði að mán­uður sé lið­inn en þeir hafi ekk­ert gert. Það er upp­hafið að meintum fjár­kúg­un­ar­að­gerðum sem stóðu fram að jólum.8. Aftur slitn­aði upp úr hjá Arnari og Vítalíu um jólin 2021. Viktoría taldi að Arnar ætl­aði að svíkja sig og end­ur­nýja sam­bandið við eig­in­kon­una. Á annan í jólum hóf Vítalía miklar árásir á Arnar á instagram.9. Þessi kafli átaka Arnars og Vítalíu náði hámarki með

hlað­varps­þætti Eddu

Falak 4 jan­úar 2022. Þar voru lýs­ingar þó var­færnar og engin nöfn voru nefnd.10. Næstu daga unnu

Rík­is­út­varpið og fleiri fjöl­miðlar

fréttir upp úr óstað­festum ásök­unum Vítalíu. Það byggði þó fremur á ásök­unum hennar á Instagram heldur en hlað­varp­inu. Þar er allt lagt saman þótt sög­urnar hafi verið ósam­rým­an­legar. (Áreiti sem hún lýsti á Instagram að hún hefði orðið fyrir áður en hún stakk upp á að farið væri í pott­inn í sum­ar­bú­staðnum var alveg sleppt).11. Þre­menn­ing­arnir í Potta­mál­inu kærðu Arnar og Vítalíu fyrir fjár­kúgun 24 júní 2022.12. ⁠Vítalía svar­aði með því að kæra menn­ina fyrir 4 júlí 2022 fyrir kyn­ferð­is­brot (í okt 2020)13. ⁠Rannsókn á báðum þessum málum var hætt með ákvörðun rík­is­sak­sókn­ara um sumar og haust 2023.

Þriðji og sein­asti hluti Vítal­íu­máls­ins verður á morgun. Þá verður varpað ljósi á afleið­ingar máls­ins fyrir þá sem komu við sögu. Viðbrögð fólks skoðuð meðan málin voru í hámæli og reynt að nálg­ast sekt eða sak­leysi fólks. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Vítalíumálið

InnlentVítalíumálið

Sam­fé­lagið á reiði­skjálfi eftir ásak­anir Vítalíu og Arnars – Eitruð ást, upp­spuni og mann­orðs­morð

Sam­fé­lagið lék bók­staf­lega á reiði­skjálfi eftir að Vítalía Lazareva steig fram og bar þungar ásak­anir á ást­mann sinn, Arnar Grant, og fjóra aðra ein­stak­linga. Málið náði langt út fyrir það að vera hefð­bundið áreit­is­mál þar sem per­sónu­legur harm­leikur er að baki. Það teygði sig inn í eitt stærsta fjöl­miðla­fyr­ir­tæki lands­ins og næstærstu smá­sölu­keðj­una. Lang­flestir trúðu fram­burði ungu, sak­leys­is­legu kon­unnar sem...
InnlentVítalíumálið

Logi tók leyni­lega upp sam­tal við Arnar Grant: „Þú myndir aldrei fara niður á grát­andi stelpu“

„Þetta meikar bara engan sens, Logi. Þú myndir aldrei fara niður á grát­andi stelpu. Sama þótt ég myndi biðja þig um það. Þú myndir aldrei gera það,“ segir Arnar Grant einka­þjálf­ari á leyni­legri upp­töku sem Logi Bergman, fyrr­ver­andi sjón­varps­maður, gerði af sím­tali á milli þeirra. Logi missti vinn­una sem þátta­stjórn­andi hjá Árvakri í fram­haldi þess að Vítalía Lazareva sak­aði hann...

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

„Þetta er ekki bara eitthvert mál, þetta er grafalvarlegt mál,“ sagði Stefán Vagn
Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ