Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Trump birtir restina af leyniskjölum um morðið á JFK: „Ég tel að það hafi verið tveir skotmenn“

Trump birtir restina af leyniskjölum um morðið á JFK: „Ég tel að það hafi verið tveir skotmenn“
John F. Kennedy Mynd: Trausti Hafsteinsson

FBI ætlar að afhjúpa þús­undir leyni­legra skjala um morðið á John F. Kennedy eftir fyr­ir­skipun Trumps en yfir­maður verk­efna­hóps­ins segir að hún telji að það hafi verið „tveir skot­menn“ að verki í þessu stærsta morði í póli­tískri sögu Banda­ríkj­anna.

Stofn­unin fram­kvæmdi nýja met­leit eftir að Banda­ríkja­for­seti krafð­ist þess að leynd yrði aflétt í öllum skjölum sem tengj­ast skotárásinni 1963, sam­kvæmt Sky News. FBI seg­ist hafa fundið 2.400 týndar skrár sem tengj­ast morð­inu á John F Kennedy for­seta.

Tveir skotmenn

Anna Paulina Luna, þing­maður Flórída-ríkis og yfir­maður nýs starfs­hóps um afnám alrík­is­leynd­ar­mála, sagð­ist á blaða­manna­fundi telja að „tveir skot­menn“ hafi verið viðriðnir morðið. Tók Luna þannig undir sam­sær­is­kenn­ingu sem stang­ast á við opin­bera frá­sögn þess efnis að Lee Harvey Oswald væri einn ábyrgur fyrir morð­inu.

Lee Harvey Oswald

Banda­ríska alrík­is­lög­reglan, FBI, sagði í gær að hund­ruð nýskráðra og staf­rænna gagna sem hafa verið grafin upp hafi áður verið óvið­ur­kennd sem skjöl sem tengd­ust Kennedy morð­mál­inu. Stofn­unin bætti við að skjölin hafi verið flutt til Þjóð­skjala­safns og skjala­stjórnar til að „taka með í yfir­stand­andi afnám leyndar“. FBI sagði ekki í yfir­lýs­ingu sinni hvers konar upp­lýs­ingar þessar nýfundnu skrár inni­halda.

Í síð­ustu viku sendi emb­ætti for­stjóra leyni­þjón­ust­unnar til­lögur til Trump um hvaða leyniskjöl hann ætti að birta almenn­ingi um morðið, sagði tals­maður á þriðju­dag. Embættið gaf ekki út upp­lýs­ingar um áætl­un­ina eða sagði hvenær skjölin yrðu gefin út.

John F Kennedy, almennt nefndur JFK, var skot­inn til bana þegar hann ferð­að­ist um Dallas, Texas, í bíla­lest 22. nóv­em­ber 1963. Oswald, 24 ára fyrr­ver­andi sjó­liðs­maður, var ákærður fyrir morðið sama dag áður en hann var sjálfur skot­inn til bana af næt­ur­klúbbs­eig­and­anum Jack Ruby tveimur dögum síðar.

Árið 1964 komst nefnd sem ann­að­ist rann­sókn á morð­inu á JFK að þeirri nið­ur­stöðu að Oswald hafi erið einn að verki og að engar vís­bend­ingar væru um sam­særi.

Samsæriskenningar

Sagn­fræð­ingar benda á að nið­ur­stöður Warren-nefnd­ar­innar hafi verið almennt við­ur­kenndar af almenn­ingi  en efa­semdir frá sam­sær­is­kenn­inga­smiðum árin á eftir urðu til þess að margir fóru að efast um opin­beru sög­una. Sam­sær­is­kenn­ing­arnar fela meðal ann­ars í sér að það hafi verið fleiri en einn skot­maður, CIA hafi staðið á bak við það og að ítalsk-amer­íska maf­ían beri ábyrgð.

Með vísan til Warren-nefnd­ar­innar á blaða­manna­fundi á Capitol Hill í gær, sagði Luna: „Ég get sagt ykkur, miðað við það sem ég hef séð hingað til, þá var upp­haf­lega dóms­málið, sem var haldið hér á þing­inu, í raun gallað því hún aðhyllt­ist kenn­ing­una um eitt skot. „Ég tel að það hafi verið tveir skot­menn.“

Hún vís­aði einnig til kenn­inga um að CIA gæti hafa verið með­vit­aðri um Oswald en hún hefur áður gefið upp. Luna hélt áfram: „Við viljum bara sann­leik­ann, hversu mikið vissi CIA fyr­ir­fram? En munið líka, þegar þú hefur aðeins ákveðnar upp­lýs­ingar sem er deilt með banda­rísku þjóð­inni, þá verða sam­sær­is­kenn­ing­arnar til. Og mitt mat er að sam­sær­is­kenn­ingar geta verið skað­legar.“

Kosningaloforð efnd

Þó að yfir­gnæf­andi meiri­hluti af JFK morð­skránum, meira en fimm millj­ónir skráa, hafi nú þegar verið gerðar opin­berar, áætl­uðu rann­sak­endur að 3.000 skrár hefðu ekki verið birtar enn, hvorki í heild eða að hluta.

Trump, sem sneri aftur til Hvíta húss­ins í jan­úar, hafði lofað í kosn­inga­bar­átt­unni að birta skjöl um skotárás­ina. Sem hluti af sömu fram­kvæmd­ar­skipun lof­aði Trump einnig að birta skjöl um morðið á mann­rétt­inda­leið­tog­anum Martin Luther King yngri og öld­unga­deild­ar­þing­mann­inum Robert Kennedy, sem báðir voru skotnir til bana árið 1968. Þá á einnig að birta öll skjöl tengd barn­a­níð­ings­máli Jeffrey Epstein.

Trump hefur gefið meiri tíma til að koma með áætlun um þær aflétt­ingar.

Robert F. Kennedy Jr, heil­brigð­is­ráð­herra Trump og sonur Roberts Kennedy og frændi JFK, er einn þeirra sem telja að CIA hafi átt þátt í dauða frænda hans. Stofn­unin hefur sagt ásök­un­ina til­hæfu­lausa.

Efast um sekt CIA

Skjöl gætu leitt í ljós smá­at­riði um eitt mik­il­væg­asta augna­blikið í sögu Banda­ríkj­anna, en sagn­fræð­ingar segja að ólík­legt sé að þær styrki ein­hverjar sam­sær­is­kenn­ingar um dauða JFK. „Mig grunar að við munum ekki fá neitt of dramat­ískt út úr þessu, eða neitt sem hnekkir í grund­vall­ar­at­riðum skiln­ingi okkar á því sem gerð­ist í Dallas,“ sagði Fredrik Logevall, sagn­fræði­pró­fessor við Harvard.

Skrár sem leiða í ljós að CIA mistókst að deila upp­lýs­ingum um Oswald með FBI yrðu „stór­frétt,“ sagði Gerald Posner, höf­undur Case Closed: Lee Harvey Oswald and the Assassination of JFK, sem kemst að þeirri nið­ur­stöðu að Oswald hafi staðið einn að morð­inu.

„Fyrir mér er spurn­ingin ekki hvort CIA hafi verið með­sek, heldur hvort CIA hafi gerst sekt um gáleysi,“ sagði Posner.

Sky News fjall­aði um málið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Heimur

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Heimur

Átta ára drengur skot­inn til bana

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi

Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco

Heimur

Dul­ar­fullt ákall á net­inu vekur ótta við óeirðir á Tenerife