Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Héðinn vinnur að bætingu geðheilbrigðismála: „Hversu illa þarf þér að líða til að þú sért veikur?“

Héðinn vinnur að bætingu geðheilbrigðismála: „Hversu illa þarf þér að líða til að þú sért veikur?“

Nýjasti gestur bræðr­anna Gunnars og Davíðs Wiium í Þvotta­hús­inu er for­maður Geð­hjálpar og stefnu­mót­un­ar­fræð­ingur for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins, Héðinn Unn­steins­son en hann er einmitt fyr­ir­mynd Björn Thors í verð­launa­sýn­ingu Þjóð­leik­húss­ins, Vertu úlfur.

„Ég fer inn í kerfið árið 1992 af því að í mennta­skóla 1989 upp­lifi ég þung­lyndi, sem sagt dett niður, kvíð­inn og ómögu­legur, hvað ber fram­tíðin í skauti sér og allt þetta og 1992 fer ég svo í fyrstu upp­heima­ferð­ina og ég fer strax að skipta mér af kerf­inu,“ segir Héðinn fljót­legar í við­tal­inu og á þá við um geð­heil­brigð­is­kerfið.

Héðinn og Snorri Ingi­mars­son heit­inn, læknir og mann­vinur skrif­uðu saman bæk­ling árið 1994. Það var svo árið eftir að þáver­andi fram­kvæmda­stjóri Geð­hjálpar bað Héðinn um að halda fyr­ir­lestur um sína reynslu fyrir nem­endur í ónefndum fram­halds­skóla. En þegar fram­kvæmda­stjór­inn hafði lokið máli sínu segir hann, „Jæja krakkar, þá er komið að brjál­æð­ingnum, gjörið svo vel,“ segir Héðinn og brosir yfir því hvernig hann var kynntur til leiks á sínum fyrsta fyr­ir­lestri.

Héðinn Unn­steins­son

„Mér fannst skyn­sam­legra að reyna að hafa áhrif á kerfið innan frá í stað þess að standa fyrir utan það.”

„Pabbi kvaddi mig en faðmaði hann”

Héðinn hefur verið mikið í sviðs­ljós­inu síð­ustu 20 ár í tengslum við geð­heil­brigð­is­mál og þó einkum síð­ustu tvö fyrir til­stilli bók­ar­innar Vertu úlfur sem hann skrif­aði um ævi sína. Sam­nefndur ein­leikur Björns Thors hefur verið sýndur á Stóra sviði Þjóð­leik­hússin í leik­stjórn Unnar Aspar Stef­áns­dóttur en leik­ritið sló ræki­lega í gegn. Ein­leik­ur­inn hlaut hvorki meira né minna en sjö Grímu­verð­laun.

„Hann er það góður að á frum­sýn­ingu fyrir um ári síðan þá kvaddi pabbi mig og faðm­aði hann,” segir Héðinn í lýs­ingum sínum á leik­hæfi­leikum Björn Thors sem gerði það að verkum að pabbi Héðins þekkti þá ekki í sundur.

Héðinn starfar á sviði stjórn­sýslu við stefnu­mótun innan for­sæt­is­mála­ráðu­neyt­is­ins og tók góðar tíu mínutur í byrjun við­tals til að fara yfir hlut­verk hans innan stjórn­sýsl­unnar sem og hug­myndir hans að skil­virk­ari sam­fé­lagsstrúktúr.

„Þarna kemur aftur að þessu við-i, hvernig skil­greinum við, við getum byrjað vítt og sagt, ég er heims­borg­ari, ég er Evr­opu­búi, ég er norð­ur­landa­búi, ég er Íslend­ingur og ég bý á Eyra­bakka,” segir Héðinn er talið berst að því marrg­flókna skrifræði sem hann vinnur í sem stefnu­mót­un­ar­fræð­ingur hjá for­sæt­is­ráðu­neyt­inu.

„Þá er spurn­ingin, getum við sagt við erum höf­uð­borg­ar­búar, getum við sam­einað þessi sveit­ar­fé­lög?”

Hugafarsvíkkandi efni framtíðin í geðheilbrigðismálum

Í við­tal­inu fóru þeir yfir hvernig hið hefð­bundna geð­heil­brigð­is­kerfi virð­ist vera að fær­ast úr stað og að taka miklum breyt­ingum. Með­ferðir og með­höndlun á geð­sjúkum hefur að miklu leyti ein­kennst af lyfja­gjöfum með mis­góðum árangri. Héðinn sér fyrir sér miklar breyt­ingar á kerf­inu með til­komu nýrra aðferða geð­heil­unar í formi hug­ar­fars­víkk­andi efna. Efnin sem hann nefnir í því sam­hengi er fyrst og fremst Psilosobin sem er virka efnið í um 250 teg­undum af sveppum en einnig talar hann um MDMA, DMT, Mescalin, LSD og Ketamin. Allt eru þetta efni sem hafa í gegnum tíð­ina verið flokkuð og litið á sem fíkni­efni og fyrir vikið for­dæmd og litið horn­auga. Nú virð­ist öldin önnur og spáir Héðinn því að aðeins sé um nokkur ár að ræða þar til við erum farin á sjá þessar með­ferðir í raun innan íslensks geð­heil­brigð­is­kerfis. Hann vill einnig meina að ekki veiti af sökum brýnnar nauð­synjar vegna síhækk­andi grein­ing­ar­hlut­falls sem og mik­illi aukn­ingu á grein­inga­teg­undum. Nú virð­ist sem allt geti flokk­ast sem geð­ræn áskorun, meira að segja sorg og reiði hefur fengið sína eigin grein­ingu og fyrir vikið litið á sem frá­vik. 

„Og nú er svo komið að ekki bara út frá Psilosobini sem er virka efnið í 250 -260 sveppa­teg­undum heldur líka MDMA, DMT, LSD eru komnir sirka 10 millj­arðar dala sem eru sirka 1.400 millj­arðar króna víðs­vegar um heim­inn.” 

„Þetta eru fyr­ir­tæki, lyfja­þró­un­ar­fyr­ir­tæki, rann­sókn­ar­fyr­ir­tæki sem eru að gera rann­sóknir á þessum efnum. Þetta er fyr­ir­tæki með 600 millj­ónir doll­ara í hlutafé, þetta er ekk­ert lítið fyr­ir­tæki, um 70 millj­arðar og í gegnum þau höfum við verið að reyna að koma því í gegn að Ísland yrði 11 landið í þriðja fasa klín­in­skra rann­sókna, nú er svo komið að þeir vilja koma hingað og það eina sem vantar upp á er reglu­gerð­ar­breyt­ing sem þarf að ganga í gegn,” segir Héðinn um sam­vinnu hans við lyfja­rann­sókn­ar­fyr­ir­tækið Compass Pathways.

„Það er fullt af fólki að prófa sig áfram með þessi efni og það væri gæfa fólgin í því að svona fyr­ir­tæki kæmi og myndi hefja sína klínisku rann­sókn með 30-40 manns sem myndu taka þátt og það myndi bæta svo mik­illi þekk­ingu inn í sam­fé­lagið, ef það ger­ist ekki munum við halda áfam að prófa okkur áfram ein­hvers­staðar og það er hætta á bakslagi svo það yrði bara jákvætt ef það færi svona.”

Gríðarleg aukning á greiningum geðsjúkdóma

Héðinn talar um að í sögu meintra frá­vika, geð­rask­ana, hefur í orð­ræð­unni farið frá tungl­sýki, að geð­veiki, geð­sjúk­dómi, geð­röskun og nú það nýjasta geð­ræn áskorun eða and­legri van­líðan.  Fjöldi grein­inga hefur stór­auk­ist á síð­ustu 150 árum eða frá 6 frá­vilkum árið 1883 í tæp­lega 600 í dag sam­kvæmt svoköll­uðu DSM5- grein­ing­ar­kerf­inu.

Gunnar spyr hann hvað valdi þess­ari gríð­ar­legu aukn­ingu á grein­ingum alls­konar innan geð­heil­brigðis. „Það er margt í gangi, í fyrsta lagi erum 7,9 millj­arðar manna á þess­ari jörðu og við erum nátt­úru­lega samála um það að það sé ein­hver hlut­lægur veru­leiki en samt getum við sagt að hlut­lægur veru­leiki sé bara 7,9 millj­arðar hlut­lægra upp­lif­ana.”

Héðinn tekur einnig dæmi frá árinu 1950 þar sem bresk stjórn­völd mat sem svo að sirka 1% Lund­un­ar­búa byggju við eins­konar geð­ræn frá­vik. Í dag reikn­ast þeim til að um hlut­fallið sé nálægt 20%. Hlutfall við erum einnig að sjá sam­bæri­elgt hér á landi.

Þessu tengt má geta þess að hags­munum til að mynda geð­lyfja­iðn­að­ar­ins, sem er um 110.000 millj­arðar íslenskra króna á ári á heims­vísu.

„Það kann vel að vera því velta geð­lyfja árið 2020, var 850 millj­arðar dala í heim­inum, það eru 110.000 millj­arða íslenskra króna, 110 föld fjár­lög,“ segir Héðinn er Gunnar spyr hann hvort hækk­andi grein­ing­ar­hlut­fall geti ekki stafað að ein­hverjum hluta af sívax­andi geð­lyfja­fram­leiðslu.

„Þung­lyndi er ekki borð, stóll eða bíll, þetta er ekki hlut­lægt fyr­ir­brigði. Sjúk­dóm­arnir sjálfir eru ein­kennaknippi,“ segir Héðinn og heldur áfram.

„Við menn­irnir sækj­umst eftir einu í líf­inu og það er vellíðan og við forð­umst sárs­auka, þetta er bara inn­ritað í okkur, þannig að vanga­veltan er þessi, Hvenær verður van­líðan að frá­viki, hversu illa þarf þér að líða til að þú sért veikur?“

„Manía fyrir mér upp­lifði ég aldrei sem neitt annað en stjórn­lausa tengsla hugsun“

Andleg reynsla getur verið lausn

Í tengslum við geð­rænar áskor­anir af ýmsum toga virð­ist lausnin oft vera sú sama, að mað­ur­inn kom­ist úr þessum efn­is­viðjum og yfir í and­ann. Þessi hug­mynd um and­lega vakn­ingu er alls ekki ný af nál­inni vill Héðinn meina. Hvað varðar and­lega reynslu sem lausn við geð­rænum kvillum tók Gunnar fyrir tvær sögur úr raun­heimum. 

Fyrri sagan var saga sem hann heyrði af vini sínum sem lengi vel hefur glímt við and­leg þyngsli, kvíða og ráða­leysi sam­hliða alka­hól­isma. Hann hafi því tekið ákvörðun um að fara tvisvar í svo­kallað guided full­dose trip á sveppum. Þetta ferða­lag hans gerði það að verkum að hann sá ýmis­legt í dýpi eig­ins hug­ar­fars sem hann ekki hafði séð áður, lýgi egós­ins kall­aði hann það. Samt sem áður fannst honum að hann hefði ekki náð þess­ari teng­ingu að fullu sem inn­sæi hans sagði honum að stæði til boða. Því tók hann ákvörðun um að fara enn lengra og end­aði í sham­anskri Ayahuasca athöfn. Þar gerð­ust hlutir sem hann lýsir sem svo að spreng­ing hafi orðið í vit­und­inni og tauga­kerfi hans ein­fald­lega verið end­ur­ræst. Hann seg­ist hafa í vissum skiln­ing upp­lifað dauð­ann, dauða hins þjak­aða egós.  

Gunnar lýsir því hvernig það hefði verið sem hann væri að tala við annan mann, breyt­ingin á honum var því­lík og í raun með ólík­indum. Þung­lynd­is­lyf sem þessi vinur hans hafði tekið sam­felld í tutt­ugu ár voru strax orðin óþörf og hætti hann neyslu þeirra sam­stundis, mat­ar­ræði og hreyf­ing fóru allt í einu að skipta hann máli ásamt dag­legri hug­leiðslu og úti­veru. 

Héðinn jánk­aði þessu og sagð­ist oft hafa heyrt þessar sögur en samt sem áður sé mik­il­vægt að hafa varan á í þessum efnum ef við­fangs­efnin eru til dæmis í geð­rofi eða þvíum­líkt geta slík til­felli verið stór­hættu­leg og því mik­il­vægt að ramma ferlið inn á fag­mann­legan hátt.

Seinni sagan sem Gunnar sagði honum var hans eigin reynsla. Hann sagði Héðni frá því þegar hann sjálfur var greindur með þung­lyndi árið 2000 og í kjöl­farið settur á SSRI lyf. Nokkrum árum seinna segir Gunnar að hann hafði leyst þau lyf af hólmi með kanna­bis og kóka­íni. Við tók margra ára brölt sem svo end­aði sum­arið 2016 þar sem Gunnar var rif­inn inn í and­lega reynslu. Andlega reynslu sem tók alla hans skynjun úr efn­is­heim­inum og yfir í algjört afstöðu­leysi. Þessi gagn­gerða and­lega reynsla Gunnars skil­aði honum gjör­breyttum með full­vissu í hjarta um bjarta fram­tíð. Síðan hann varð þess­ari reynslu aðnjót­andi hefur líf hans verið í stöðugri bata­þróun frá því ástandi sem ein­kennd­ist af neyslu, þung­lyndi, sveiflum, hvat­vísi, athygl­is­bresti og oflæti. 

Héðinn tók vel í þessa frá­sögn og ítrek­aði það að við vitum í raun svo lítið um hvernig vit­undin virkar. Hann und­ir­strik­aði mik­il­vægi auð­mýktar sem við verðum að bera í hjarta okkar í vís­indum í dag. Lokað huga­far gagn­vart nýjum og óþekktum aðferðum fram­kalli  stöðnun og það sé ein­fald­lega ekki í boði þegar öllu er á botn­inn hvolft. Héðinn tal­aði einnig um að í þessu sam­hengi værum við menn­irnir að missa þessa við-teng­ingu, vit­undin er að verða meira og meira einka­vædd og að mann­inum finn­ist hann vera rétt­hafi stöðugrar gleði og ham­ingju. 

Hann minnt­ist á tengsla­rof manns­ins við nátt­úr­una og nefndi í þvi sam­hengi dæmi þar sem almanna­varnir gáfu út til­kynn­ingu þess efnis að hraun­rennsl­inu á Reykja­nesskaga yrði gefið leyfi til að flæða yfir Suð­ur­stranda­veg ef svo bæri við, eins og hraunið hefði eitt­hvað spurt um leyfi. En hann vildi meina að þetta væri svo skýrt dæmi um hvernig mað­ur­inn reynir alltaf að öðl­ast stjórn á öllum sköp­uðum hlutum.

Héðinn ræðir við Wiium bræður

„Á þessum for­sendum skaðalög­máls John Stewards Mill sem er þetta að hvert siðað sam­fé­lag má svipta ein­stak­ling frelsi sé hann hættu­legur sjálfum sér eða öðrum og það er grund­völlur allra vest­rænnar lög­gjafar í svipt­ing­ar­málum og núna eins og í Covid mál­unum erum við líka búin að nota þetta lög­mál til þess að tak­marka frelsi ein­stak­linga í tvö ár af því að þeir eru mögu­lega hætt­ur­legir,“ segir Héðinn og hlær.

Sviptingar í sviptingamálum

Í lokin spyr Gunnar Héðinn hvort við getum byggt nýtt og betrumbætt geð­heil­brigð­is­kerfi á grunni hins gamla. Héðinn vildi meina að það væri hægt en margt þurfi að breyt­ast í grunn­inn. Í tengslum við það nefnir hann grund­vall­ar­lög­málið sem felst í að þjón­usta skjól­stæð­ing­inn í stað að það þurfi alltaf að mæta í sífellu kröfum heil­brigð­is­kerf­is­ins sem og lyfja­iðn­að­ar­ins.

„Dóm­stóll­inn er far­inn að taka miklu meiri til­lit til mann­rétt­inda ein­stak­linga,“ segir Héðinn og bætir svo við. 

„Svo hefur vit­und­ar­vakn­ing Geð­hjálpar og fleiri orðið til þess að lög­manna­fé­lagið og lög­fræð­ingar eru farnir að sýna þessu miklu meiri áhuga, þessum svipt­ing­ar­málum. Hérna áður fyrr var það bara þannig að nauð­ung­ar­vistun og svipt­ingar bara gengu í gegn ein­hver­veg­inn, dóms­valdið og lög­fræð­ingar bara stimpl­uðu ákvörðun lækn­anna.“

Héðinn nefnir dæmi um það hvernig nauð­unga­vistun getur haft mikil áhrif á fjöl­skyldur.

„Það eru dæmi um það að bræður töl­uðu ekki saman í 30 ár því annar hafði kvittað upp á nauð­ung­ar­vistun hins og á þeim for­sendum var fjöld­skyldan tekin út til að bæta lífs­gæði til lengri tíma,“ segir Héðinn og bendir á breyt­ingu á svipt­ing­ar­lögum sem gerðar voru árið 2015 þar sem fjöl­skyldur voru teknar út úr þess­ari ákvörð­un­ar­töku og sveit­ar­fé­lagið sett inn í stað­inn.“

„Við þurfum að skoða for­tíð­ina með gler­augum nútím­ans.“ Héðinn segir að það sé tl dæmis mik­il­vægt þegar mál eins og með Arn­ar­holt séu skoðuð. „Ég er viss um að börnin ykkar eiga eftir að hrista höf­uðið yfir því sem við erum að gera í dag.“

Hægt er að horfa á allt við­talið hér fyrir neðan:

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Menning

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Hrósar lýsingum Laxness á íslenskri náttúru og árstíðunum
Myndband
Menning

Luthers­son frum­sýnir blóð­uga ást­ar­sögu í eyði­mörk Kali­forníu

Menning

Sendu sím­ann í svefn­poka og fáðu smá frið

Menning

Ást, missir og barn­þrá í upp­seldri skáld­sögu Mar­grétar

Menning

Frá Rocky og Springsteen til aftöku í Sádi-Arabíu