Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Ragnheiður Inga rektor er gestur Guðna: „Skordýraræktun sem getur verið til fóðurs eða manneldis“.

Ragnheiður Inga rektor er gestur Guðna: „Skordýraræktun sem getur verið til fóðurs eða manneldis“.

Ragn­heiður Inga Þórarisndóttir, rektor Land­bún­að­ar­há­skóla Íslands, ræddi við Guðna Ágústs­son. Hún fædd­ist í Reykja­vík og var þriggja ára þegar fjöl­skyldan flutti til Dan­merkur þar sem faðir hennar fór í nám og þar bjuggu þau í sex ár. Hún gekk í Hvassa­leit­is­skóla og fór síðar í Mennta­skól­ann við Hamra­hlíð og útskrif­að­ist þaðan árið 1987. Hún fór síðan í nám við Danska tækni­há­skól­ann; fór í efna­verk­færði og sér­hæfði sig í líf­efna­fræði og nær­ing­ar­fræði. Í kóng­skins Köben kynnt­ist hún ást­inni í lífi sínu; bónda­syni úr Húna­vatns­sýslu, Ólafi Pétri Pálssyni, sem er pró­fessor í iðn­aðar- og véla­verk­færði við Háskóla Íslands.

„Ég segi alltaf að lamba­kjöt eigi að vera miklu dýr­ara. Við getum gert miklu meira með það heldur en við erum að gera í dag í vöru­þróun og bara hækka verð á þessu dýr­indis kjöti,“ segir dr. Ragn­heiður

Við ættum að vera að flytja út miklu meira af græn­meti heldur en við erum að flytja inn.

Stjórn­mála­menn, vís­inda­menn og fleiri hafa sagt að ein stærstu tæki­færi land­bún­að­ar­ins liggi í garð­yrkju. „Við ættum að vera að flytja út miklu meira af græn­meti heldur en við erum að flytja inn. Við erum að fram­leiða allar gúrk­urnar okkar og við erum aðeins farin að flytja út gúrkur til Græn­lands og Dan­merkur og það er mjög erfitt að flytja út gúrkur segja menn mér. Erfitt í flutn­ingi. Hvað varðar tómata þá er kannski verið að fram­leiða helm­ing­inn sem við erum að neyta sjálf og kannski innan við 10% af paprik­unum,“ segir Ragn­heiður og talar meðal ann­ars um að hér á landi sé verið að fram­leiða á 20 hekt­urum en í Hollandi á um 10.000 hekt­urum. „Stærstu fyr­ir­tækin hér á landi eru um einn hekt­ari og þau eru nokkur. Með­al­stærðin í Hollandi er um fimm hekt­arar þannig að stærstu fyr­ir­tækin okkar eru að ná um 20% af með­al­stærð fyr­ir­tækja í Hollandi. Og 10 stærstu fyr­ir­tækin í Hollandi eru um 500 hekt­arar. Þetta er sam­keppnin sem við búum við.“

Tæki­færin hér á landi eru mörg og seg­ist Ragn­heiður halda að það verði miklar breyt­ingar á næst­unni og bendir meðal ann­ars á að stöðv­unum sé að fækka og þær stóru eru að stækka og fram­leiðslan að aukast.

Er Ísland korn­rækt­ar­land?

Þannig að það séu þá ein­hvers konar korn­sam­lög sem geti tekið við.

„Ég held við getum ræktað miklu meira af korni. Auðvitað erum við háð veðrum og það koma brestir í það en eitt af þeim mál­efnum sem við höfum verið að leggja áherslu á er að nýta jarð­var­mann aftur til þess að þurrka, koma upp þurrk­stöðvum og geymslum þannig að það séu þá ein­hvers konar korn­sam­lög sem geti tekið við þannig að bændur þori að fram­leiða meira af því að þeir vita þá að það er ein­hver sem tekur við og það sé utan­um­hald utan um það til þess að styrkja mark­að­inn til þess að við getum aukið fram­leiðsl­una.“

Skyrið flýgur víða og íslenski hest­ur­inn þannig að tæki­færin eru víða.

„Við höfum ekki nefnt önnur nýsköp­un­ar­tæki­færi eins og skor­dýra­ræktun sem getur verið til fóð­urs eða mann­eldis. Eða þör­unga. Skordýr eru fæða fyrir um tvo millj­arða manna í dag og það er hægt að setja þetta í sam­hengi við rækju og humar.“ Ragn­heiður segir að í þessu sam­bandi séu þau aðal­lega búin að vera að skoða mjölorma og svörtu her­manna­flug­una. „Þær eru mjög vin­sælar í ræktun í Evrópu og eru nokkur fyr­ir­tæki að koma upp fram­leiðslu. Svo eru þör­unga­fyr­ir­tæki að spretta upp hér; ætlu þau séu ekki orðin sjö. Þá er hampur kom­inn í prufu­fram­leiðslu á nokkrum bæjum.

Við eigum gríð­ar­leg tæki­færi en við erum kannski ekki að nýta þau nógu vel af því að við erum auð­linda­þjóð og höfum það gott.“

Tilraun á rottum

Ragn­heiður fædd­ist í Reykja­vík og var þriggja ára þegar fjöl­skyldan flutti til Dan­merkur þar sem faðir hennar fór í nám og þar bjuggu þau í sex ár. Hún gekk í Hvassa­leit­is­skóla og fór síðar í Mennta­skól­ann við Hamra­hlíð og útskrif­að­ist þaðan árið 1987. Hún fór síðan í nám við Danska tækni­há­skól­ann; fór í efna­verk­færði og sér­hæfði sig í líf­efna­fræði og nær­ing­ar­fræði. Í kóng­skins Köben kynnt­ist hún ást­inni í lífi sínu; bónda­syni úr Húna­vatns­sýslu, Ólafi Pétri Pálssyni, sem er pró­fessor í iðn­aðar- og véla­verk­færði við Háskóla Íslands. „Ég fann hann á Hviids Vinstue,“ segir Ragn­heiður. Börnin eru fjögur og barna­börnin nokkur.

„Ég gerði í loka­verk­efn­inu til­raun á rottum og fóðr­aði þær með mis­mun­andi fiski­ol­íum og fékk meðal ann­ars sendar fiski­ol­íur frá Lýsi.“

Við notum um 10% af jarð­hit­anum í fram­leiðslu.

Síðan var flutt heim. Ragn­heiði bauðst starf hjá Iðn­tækni­stofnun og vann í sam­bandi við plast­efni. Hún skráði sig svo í dokt­ors­nám í efn­is­fræði; tær­ingu málma. „Þannig að ég tók dokt­ors­gráðuna mína frá Danska tækni­há­skól­anum starf­andi hjá Iðn­tækni­stofnun og síðar hjá lagna­deild Rann­sókn­ar­stofn­unar bygg­inga­iðn­að­ar­ins og kláraði síðan dokt­ors­gráðu frá Danska tækni­há­skól­anum í tær­ingu málma. Það varð síðar teng­ing í næsta starf af því að ég var sér­stak­lega að stúd­era tær­ingu málma í hita­veitu­kerfum og næsta starf var hjá Orku­stofnun. Þá var ég búin að setja mig inn í orku­málin svo­lítið og hafði sér­stakan áhuga á jarð­hita­kerfum og hvernig við erum að nýta heita vatnið. Ég fór síðan að vinna svo­lítið sjálfsætt í verk­efni í nýsköpun; hringrás­ar­verk­efni – hvernig við gætum búið til mat og nýtt heita vatnið okkar í meira mæli. Við notum um 10% af jarð­hit­anum í fram­leiðslu og manni finnst að sá geiri ætti að stækka. Þetta fer meðal ann­ars í í ylrækt og fisk­eldi og manni hefur þótt þarna vera mikil tæki­færi fyrir okkur.“

Gengur vel að fá styrki

Ragn­heiður varð rektor Land­bún­að­ar­há­skóla Íslands árið 2019.

„Ég myndi hik­laust segja að þetta sé mest spenn­andi háskól­inn á Íslandi og hér séu stærstu tæki­færin. Og það var það sem kall­aði til manns þegar ég sótti um starfið að þarna væru mál mál­anna – það er mat­væla­fram­leiðsla, umhverfið og lofts­lags­málin og skipu­lags­málin.“

Ragn­heiður segir að lengi vel hafi um 300 nem­endur stundað grunn­nám við skól­ann hverju sinni en í dag eru þeir um 600 fyrir utan þá sem eru í end­ur­menntun.

„Við skiptum þessu upp í þrjár fag­deildir og það var nýtt skipu­rit sett upp 1. jan­úar 2020. Það hafði áður verið ein háskóla­deild og ein starfs- og end­ur­mennt­un­ar­deild þannig að við skiptum þessu upp til þess að gera námið sýni­legra og það var líka hugsað til þess að ná meiri sam­legð á milli brauta.“ Þessar þrjár fag­deildir kall­ast ræktun og fæða, skipu­lag og hönnun og svo loks nátt­úra og skógur. „Síðan röð­uðum við braut­unum þarna inn; fjórar brautir í hverri deild og allar deildir bjóða þá upp á starfs­mennta­nám á fram­halds­skóla­stigi, grunn­nám, BS-námið, og síðan fram­haldss­nám; meist­ara- og dokt­ors­nám.“

Eftir þessa aukn­ingu hefur verið biðlisti á nem­enda­garða.

Um 120 nem­endur búa á nem­enda­görðum og eftir þessa aukn­ingu hefur verið biðlisti á nem­enda­garða. Þá hefur verið biðlisti á meðal skiptinema.

Ragn­heiði gengur vel að fá styrki. „Já, ég hef verið svo­lítið góð í því. Við höfum á þessum árum núna verið frá því að fá styrki úr sam­keppn­is­sjóðum um 120 millj­ónir á ári á tíma­bilniu 2012-2018 og núna 2019, 2020 og 2021 erum við komin í 330 millj­ónir. Þannig að við erum komin langt í það að þre­falda þá upp­hæð sem við fáum úr sam­keppn­is­sjóðum sem þýðir það að við getum ráðið til okkar sér­stak­lega dokt­or­snem­endur þannig að þeir eru núna um 20 tals­ins. Það er vegna þess­ara fjár­muna sem við getum ráðið þá í vinnu. Þeir eru nátt­úr­lega flestir á launum og síðan erum við með postdoc og fleiri sér­fræð­inga þannig að ef þú ert með 200 millj­ónir til við­bótar þá getur þú ráðið í fleiri störf.“

Landbúnaðurinn er „in“

Búfræðin blómstrar í háskólaum­hverf­inu.

„Búfræðin hefur verið sú braut sem hefur verið vin­sælust og við höfum þurft að vísa fólki frá. Það hefur stundum verið þannig að fólk hefur verið með stúd­ents­próf og viljað koma inn í búfræð­ina og hefur þá farið í búvís­indi á háskóla­stigi og bætt síðan við sig búfræð­inni til að fá praktíska hlut­ann. Þannig að ég myndi segja að búfræðin sé kannski vin­sælasta námið í gegnum tíð­ina.“ Í fyrra var bætt við fjar­náms­bekk og segir Ragn­heiður að áhugi sé fyrir því að bæta líka við stað­námið. „Við gerum þá kröfu í búfræð­inni að nem­endur sem vilja koma í fjar­námið séu starf­andi í grein­inni.“

Það er mikil tækni­væð­ing og nýjar til­lögur og hug­myndir að koma fram.

Það segir manni að land­bún­að­ur­inn sé „in“ hjá ungu fólki.

„Ég held það. Ég held að við munum líka sjá breyt­ingar til fram­tíðar. Það er mikil tækni­væð­ing og nýjar til­lögur og hug­myndir að koma fram.“

Skólinn er í sam­starfi við land­bún­að­ar­há­skóla á öllum hinum Norð­ur­lönd­unum sem og balt­nesku lönd­unum og geta nem­endur farið út til að taka kúrsa. „Við höldum sam­eig­in­lega kúrsa og svo er líka mikið sam­eig­in­legt rann­sókn­ar­starf. Við erum til dæmis með meist­ara­nám, lofts­lags­breyt­ingar á norð­ur­slóðum, í sam­starfi við háskóla í Helsinki og Svíþjóð; sænska land­bún­að­ar­há­skól­ann. Síðan erum við með ansi spenn­andi verk­efni núna sem við vorum að senda í Evr­ópu­sam­bandið sem er sam­starf átta evr­ópskra háskóla. Ég held að þetta sé grund­völl­ur­inn að vexti til fram­tíðar að við séum í góðu sam­starfi við erlenda háskóla sem eru stærri og geta verið með miklu betri inn­viði á þeim sviðum sem borgar sig kannski ekki fyrir okkur að byggja upp. Þannig að við getum þá sent nem­endur út og fengið kenn­ara að utan hingað heim. Þá geta bæði nem­endur og starfs­menn farið á milli á auð­veldan máta.“ Hún nefnir líka fjar­kennslu. „Það skiptir kannski ekki alltaf máli hvar þú situr ef þetta er bók­legt.“

Þá er skól­inn í sam­starfi við aðra íslenska háskóla.

Ný tæki

Ragn­heiður segir að það sé gott sam­starf við Svandísi Svav­ars­dóttur mat­væla­ráð­herra sem og fyrr­ver­andi land­bún­að­ar­ráð­herra sem hún segir að hafi stutt vel við bakið á skól­anum. „Hluti af fjár­veit­ingu skól­ans er ennþá í land­bún­að­ar­ráðu­neyt­inu eða núna mat­væla­ráðu­neyt­inu sem snýr að rann­sóknum. Og 2020 gerðum við nýjan samn­ing til þriggja ára þar sem var sú breyt­ing að það var eig­in­lega tíundað aðeins hvaða verk­efni við myndum setja í for­gang í sam­starfi við ráðu­neytið. Þannig að ráðu­neytið bað okkur sér­stak­lega um að gera skýrslu um fæðu­ör­yggi og eins um stöðu sauð­fjár­bænda og svo stendur til að fara í garð­yrkju­málin líka. Þetta er þriggja ára samn­ingur og byggður á því að við myndum hafa reglu­legri fundi en hafði verið.“

En ég myndi segja að í dag séu rann­sókn­irnar að efl­ast.

Ragn­heiður er spurð hvernig hin gamla rann­sókn­ar­stofnun land­bún­að­ar­ins standi inni í land­bún­að­ar­há­skól­anum sem var hér sterk lengi vel.

„Þegar þetta var lagt saman þá held ég að það hafi verið um 160 starfs­menn. Í dag erum við 100 og höfum verið að byggja okkur upp. Ég held það hafi verið komið niður í 80. Sam­ein­ing var í byrjun árs 2005 og menn fóru bjart­sýnir af satð. Svo svo kom hrun og alls konar í kjöl­farið þannig að það var svo­lítið erfitt fyrir skól­ann á margan hátt fyrstu árin. En ég myndi segja að í dag séu rann­sókn­irnar að efl­ast.“

Ragn­heiður segir að lögð hafi verið mikil áhersla á að bæta inn­við­ina. Kaupa tækja­búnað. „Við höfum sótt fram eins og ég sagði í sam­keppn­is­sjóð­ina; nátt­úr­lega líka í tækja­kaupa­sjóði eins og jarð­rækt­ar­mið­stöðin okkar er mjög sterk. Við höfum verið að kaupa ný tæki fyrir hátt á annað hund­rað millj­ónir meðal ann­ars með styrk frá tækja­kaupa­sjóði.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Menning

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Hrósar lýsingum Laxness á íslenskri náttúru og árstíðunum
Myndband
Menning

Luthers­son frum­sýnir blóð­uga ást­ar­sögu í eyði­mörk Kali­forníu

Menning

Sendu sím­ann í svefn­poka og fáðu smá frið

Menning

Ást, missir og barn­þrá í upp­seldri skáld­sögu Mar­grétar

Menning

Frá Rocky og Springsteen til aftöku í Sádi-Arabíu