Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Egill Sæbjörnsson: „Tími er bara hugmynd og það eina sem gerist er að hlutir hreyfast um“

Egill Sæbjörnsson: „Tími er bara hugmynd og það eina sem gerist er að hlutir hreyfast um“

Eftir fjög­urra mán­aða þung­lyndi, kulnum, covid, þrá­hyggju og myrkur er hlað­varps­þátt­ur­inn Þvotta­húsið snú­inn aftur. Það má með sönnu segja að bræð­urnir Gunnar og Davíð Wiium hafi lagst undir feld af gefnum for­sendum og snúið tví­efldir til baka en með nýjar stefnur og áherslur sem verða stöðugt kynntar aftur og aftur eftir því sem þær breyt­ast.

Nýjasti gestur bræðr­anna er eng­inn annar en vís­inda­mað­ur­inn Egill Sæbjörns­son sem hefur verið búsettur í Berlín í ein tutt­ugu ár þar sem hann hefur starfað við sín vís­inda­störf sem tvinnuð er í opnu flæði list­sköp­unar. Egill hefur komið til þeirra bræðra áður í Þvotta­húsið en hann kom í þátt númer 34 sem tón­listar og lista­mað­ur­inn Egill S. og svo í þátt númer 95 sem Egill S. hinn óáræð­an­legi.

Egill með Wiium bræðrum

Nú er hins vegar allt annað upp á ten­ingnum. Egill er svo langt frá því að vera óáræð­an­legur í þetta skiptið, enda eru engum vett­ling­ar­tökum beitt í þætt­inum þar sem þeir kryfja mál sem snýr að grund­vall­ar­hug­myndum manns­ins um sjálfan sig, til­gang sinn og örlög. Hver erum við og hvert erum við að fara, hvaðan erum við að koma og átti það sér stað ein­hverjum byrjun og er það ein­hver endir?Gunnar byrj­aði þátt­inn með vanga­veltum sínum tengdum ára­langri þrá­hyggju hans fyrir svart­holum og minnt­ist á kenn­ing­una „the big crunch the­ory“ sem Gunnar skilur þannig að sjálfur mikli hvellur hafi í raun ekki verið neitt annað en afsprengi svart­hols og því gefnar for­sendur fyrir því að heim­ur­inn sem við þekkjum sé aðeins lít­ill angi í mögu­lega óend­an­legri jöfnu sem einmitt á sér engan enda né upp­haf. Kenningu þessa segir Gunnar að sé lík­lega búið að afsanna því þennsla alheims virð­ist vera að aukast en ekki hægja á sér sem ann­ars myndi ein­kenna heim sem drægist saman í ein­ing­ar­punkt alls efnis í alheim­inum. Sökum þess­arar hraðaukn­ingar þennslu alheims segir Gunnar þá að sumir vís­inda­menn séu nú farnir að hall­ast að annarri kenn­ingu sem hefur verið kölluð „The big freeze“ en þar þennst alheim­ur­inn svo hrika­lega að bil milli efn­is­einda ein­fald­lega verður það mikið að tengsl rofna og allt stirðnar í lokin í eins­konar uber-alkul að eilífu sem einnig felur í sér mögu­leikan á upp­hafs og enda­loks­leysis. Egill tekur undir þetta og seg­ist einmitt hafa kom­ist að þess­ari nið­ur­stöðu í sínum rann­sóknum.

Egill skrif­aði og leik­stýrði heim­ild­ar­mynd­inni From Magma to Mankind fyrir tveimur árum þar sem hann útskýrir kenn­ingu sína að mað­ur­inn komi frá hrauni úr iðrum jarðar. Þar vill hann meina að upp­runi manns­ins liggi og að við þurfum ein­fald­lega að horfast í augu við að for­feður okkar hafi verið fljót­andi hraun-drullu­pollar. Hann vill meina að við þurfum að fara að hætta að hugsa um líf sem eitt­hvað sem eigi sér and­stöðu í dauðu efni eins og grjóti eða hrauni. Hann segir spurn­ing­una hvort að þá sé líf á Mars eins og David Bowie söng um í marg­frægu popp­lagi, vera fár­an­lega því auð­vitað er líf á Mars, í hverju ein­asta sand­korni á Mars og alls staðar ann­ars staðar sé heilt líf­kerfi sem á sér ekk­ert upp­haf og engan endi.

Egill með jónu

Í þætt­inum ræddu þeir einnig um sorg­ina og sekt­ar­kennd­ina sem fylgir þegar við missum frá okkur gælu­dýr og spurn­ingin um hvort sálin sé á stöð­ugu flakki og taki sér ból­festu í nýju formi eða hvort sálin verði bara að mold og trjám og ána­möðkum eins og kisan sem Gunnar þátt­ar­stjórn­andi þurfti að grafa í garð­inum hjá sér fyrir tveim vikum. Kisan var með brjóstakrabba­mein og það greind­ist ekki fyrr en það var of seint, sem Gunnar vildi meina að fram­kalli mikla sekt­ar­kennd ofan í sorg­ina sem fylgir því að missa gælu­dýr. Spurn­ingin um hvort hann hefði getað gert eitt­hvað til að koma í veg fyrir að kisan dó er spurn­ing sem hann hefur spurt sig að dag­lega síðan að hún lést skyndi­lega kaldan laug­ar­dags­eft­ir­mið­dag.Egill fór í lokin yfir efni sem hann er búinn að vera að vinna að síð­ustu ár sem myndi kannski flokk­ast sem mögu­leg útgáfa af fram­tíð­inni. Heimur, vídd eða ástand þar sem mikið af breytum, sem við förum eftir í dag, hafa horfið, bráðnað eða umbreyst veru­lega. Heim­ur­inn ber heitið ZIM og bað Gunnar Egill um að fara yfir ein­kenni þessa heims og Egill varð að ósk hans. Egill vill meina að í ZIM séu engir þrí­víddar ásar. Hann vill meina að í ZIM sé tím­inn lið­inn og því tíma­leysi, tungu­mál eru kyn­laus og hug­mynda­fræði um lif­andi og dautt hefur liðið undir lok, hún er ein­fald­lega ekki lengur til staðar. „Þetta er basically þannig að tími er bara hug­mynd og það eina sem ger­ist í raun er það að dót hreyf­ist um,“ sagði Egill spek­ings­legur á svip. Lýsingin á ZIM er ekki bara áhuga­verð heldur ber hún einnig í sér von inn í heim sem virð­ist oft á tíðum vera á barmi glöt­unar.Það er alveg klárt að Egill er frum­kvöðla­maður og braut­ryðj­andi á sviðum lista og vís­inda. Hugur hans er opinn og eins og hann sjálfur tók skýrt fram í lok þátt­ar­ins, þá eru allar hans kenn­ingar settar fram með algjörum fyr­ir­vara sem gerir hann að vís­ind­ar­manni fram­tíð­ar­innar, auð­mjúkum vís­inda­manni.Þennan upp­lífg­andi og nær­gætna þátt má sjá í heild sinni á spil­ar­anum hér fyrir neðan ásamt að hlað­varp Þvotta­húsið má finna á öllum helstu streym­isveitum á jörð­inni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Menning

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Hrósar lýsingum Laxness á íslenskri náttúru og árstíðunum
Myndband
Menning

Luthers­son frum­sýnir blóð­uga ást­ar­sögu í eyði­mörk Kali­forníu

Menning

Sendu sím­ann í svefn­poka og fáðu smá frið

Menning

Ást, missir og barn­þrá í upp­seldri skáld­sögu Mar­grétar

Menning

Frá Rocky og Springsteen til aftöku í Sádi-Arabíu