Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Anna segir allt stefna í almenna herkvaðningu á Íslandi

„Við hverja á að berj­ast? Færeyjar? Kala­allit Nunaat? Vest­manna­eyjar?“

Anna segir allt stefna í almenna herkvaðningu á Íslandi
Anna Krist­jáns­dóttir Óttast hvorki Rússland né Kína. Mynd: Trausti Hafsteinsson

Anna Krist­jáns­dóttir seg­ist ekki hafa miklar áhyggjur af Rússum og Kín­verjum en telur Banda­ríkin mögu­lega ógn við Ísland.

Í dag­bók­ar­færslu sinni, sem vél­stjór­inn og húmorist­inn Anna Krist­jáns­dóttir skrif­aði á Facebook í gær talar hún um ástandið í heim­inum og mögu­lega ógn sem gæti steðjað að Íslandi.

„Dagur 2054 – Ó, þetta er indælt stríð.

Fyrir nærri sex ára­tugum síðan var söng­leik­ur­inn „Ó, þetta er indælt stríð“ sýnt á fjölum Þjóð­leik­húss­ins. Ekki man ég út á hvað söng­leik­ur­inn gekk, enda sá ég hann aldrei, en miðað við fréttir gær­dags­ins stefnir allt í almenna herkvaðn­ingu á Íslandi, en nú er bara spurn­ingin, við hverja á að berj­ast? Færeyjar? Kala­allit Nunaat? Vest­manna­eyjar?

Ég hefi litlar áhyggjur af Rússum né Kín­verjum. Við vitum ósköp vel að bæði Banda­ríkin og Sov­ét­ríkin stund­uðu njósnir á Íslandi meðan á kalda stríð­inu stóð og nú eru þau bæði á fullu á nýjan leik, reyndar núna undir stjórn Trumps og Pútins. Ef ég ætti að giska á hvort stór­veldið væri Íslend­ingum hættu­legra miðað við stöð­una í dag, myndi ég ekki hika við að nefna Trump­istan.“

Anna rifjar því næst upp að liðin séu 216 ár síðan Ísland stát­aði síð­ast af land­her en að Jörundur hunda­daga­kon­ungur hafi klúðrað sínum málum ræki­lega.

„En það er ekki mitt að reyna að greina stöðu mála norður í Dumbs­hafi, en ef mig mis­minnir ekki, eru liðin 216 ár frá því Ísland var síð­ast með land­her undir vopnum, en það mun hafa verið sum­arið 1809, en góðu heilli tókst Jörundi hunda­daga­kon­ungi að klúðra sínum málum svo ræki­lega að hann var sendur úr landi í böndum. Að sjálf­sögðu tel ég ekki með þessa drengi sem áttu að gæta flug­vall­ar­ins í Kabúl fyrir kannski tveimur ára­tugum síðan.“

Að lokum seg­ist Anna ekki ótt­ast herkvaðn­ingu, og það af fleiri en einni ástæðu:

„Sem betur fer er ég víðs­fjarri og þarf ekki að ótt­ast herkvaðn­ingu, ekki bara vegna ald­urs, heldur svo slæmrar sjónar að ég myndi ekki hitta and­stæð­ing þótt hann stæði fyrir framan mig í tveggja metra fjar­lægð og ég sem mont­aði mig af góðri sjón fyrir örskömmu síðan. Að auki kann ég ekk­ert með vopn að fara og langar ekk­ert til að læra á þau. Ég er frið­ar­sinni.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Fólk

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Fólk

Keath Ósk slær í gegn á heims­vísu og segir Ísland hafa mótað sköp­un­ina

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Myndir
Fólk

Sögu­frægt sýslu­manns­setur við sjó­inn komið á sölu