Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Lögreglan gagnrýnd fyrir að lóga þessum snákum

„Blíðustu og for­vitn­ustu dýr sem ég hef átt,“ segir eðlu- og slöngu­eig­andi.

Lögreglan gagnrýnd fyrir að lóga þessum snákum
Snákar sem fund­ust Gagnrýnt er að Ísland sé eftir á þegar kemur að snákum. Mynd: Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu

Lög­reglan á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hefur orðið fyrir harðri gagn­rýni eftir að hún greindi frá því á Facebook að tveir snákar hefðu fund­ist í heima­húsi, þeir verið hald­lagðir og þeim verið lógað sam­kvæmt gild­andi lögum um inn­flutn­ing dýra.

„Að eiga við snáka er ekki dag­legur við­burður, en ger­ist endrum og eins. Þessir tveir fund­ust í heima­húsi á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og voru hald­lagðir, en hér er um að ræða brot á lögum um inn­flutn­ing dýra. Í fram­hald­inu voru gerðar við­eig­andi ráð­staf­anir, en í því felst að lóga og farga dýrum sem þessum,“ sagði í færsl­unni.

Færsla lög­regl­unnar, sem birt­ist ásamt mynd af snák­unum, vakti miklar umræður þar sem fjöl­margir gagn­rýndu lög­regl­una og lögin sjálf. „Óþolandi hvað Ísland er eftir á í hlutum. Snákar eru lög­leg gælu­dýr alls­staðar í kringum okkur, af hverju ekki hér? Þessi dýr myndu alls ekki lifa af í íslenskri nátt­úru,“ sagði ein við færslu lög­regl­unnar.

Önnur spurði hvers vegna ekki væri hægt að vista snák­ana í Hús­dýra­garð­inum í Reykja­vík: „Af hverju ekki að setja þau í hús­dýra­garð­inn??“

Þá tók sá þriðji undir með henni og bætti við að þar væru þegar búr fyrir snáka, skjald­bökur og eðlur til staðar.

Á móti voru aðrir sem studdu ákvörðun lög­regl­unnar. „Vel gert. Mér sýn­ist á kommenta­kerf­inu að það geri sér ekki allir grein fyrir því hvers vegna þessi dýr eru ekki leyfð,“ skrif­aði ein þeirra sem studdu lög­reglu­að­gerð­ina. Til stuðn­ings bendir önnur kona á mik­il­vægi þess að fara eftir lögum: „Enda er ólög­legt að hafa þessi gælu­dýr á Íslandi, fólk á bara að fara að lögum því það veit þetta verður gert ef kemst upp um það.“

Ein konan í ummælum undir færslu lög­reglu játar að eiga „slöngur, eðlur og meira“. „Þetta snýst ekki um annað en fáfræðslu. Snákar og slöngur eru ein blíð­ustu og for­vitn­ustu dýr sem ég hef átt og eru bara mis­skilin. Mér finnst meira athuga­vert að hugsað hefur verið vit­laust um alla­veg­ana annan snak­inn þar sem hann er allt og stór/breiður og það styttir lífið þeirra.“ Hún getur þó strokið áfram um frjálst höfuð, þar sem hún býr í Danmörku en ekki á Íslandi.

Umræðan leiddi af sér víð­ari gagn­rýni á íslensk lög um gælu­dýr. Einn sem tók til máls kall­aði lögin „úrelt“ og sagði rök um hættu á salmon­ellu ekki halda vatni, meðan annar sagði: „Ég vona að Ísland geti nú skriðið útúr þessum höftum ein­hvern­tím­ann.“

Færsla lög­reglu, sem átti að vekja athygli á fjöl­breyttum störfum hennar, hefur því vakið athygli á því hvort tíma­bært sé að end­ur­skoða lög og reglu­gerðir um inn­flutn­ing og hald gælu­dýra á Íslandi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Geðlæknirinn Haraldur lætur allt flakka
Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag