Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Mikill seiðadauði setti mark sitt á afkomu Kaldvíkur

Geng­is­á­hætta sögð meðal helstu áskor­ana í rekstr­inum.

Mikill seiðadauði setti mark sitt á afkomu Kaldvíkur
Fiskeldi í sjó. Árskýrsla Kald­víkur er komin út. Mynd: iStock/MariusLtu

Veru­legur afföll urðu á seiðum sem sett voru í eld­iskvíar Kald­víkur í Fáskrúðs­firði síð­asta haust og hefur það haft veru­leg áhrif á rekstur fyr­ir­tæk­is­ins. Þrátt fyrir marg­földun rekstr­ar­tekna skil­aði fyr­ir­tækið nei­kvæðri afkomu eftir afskriftir á síð­asta ári. Sagt er frá mál­inu á Aust­ur­frétt.

Í árs­skýrslu Kald­víkur, sem sam­þykkt var á aðal­fundi í gær, kemur fram að tekjur hafi hækkað úr 5,8 millj­örðum króna árið 2022 í 15,7 millj­arða í fyrra, einkum vegna auk­innar fram­leiðslu. Slátrað var tæpum 15.000 tonnum af laxi, sem er um 4.400 tonnum meira en árið á undan. Árið 2022 glímdi fyr­ir­tækið við ISA-veiru, sem krafð­ist snemmslátr­unar, en árið 2023 hafði bólu­setn­ing gegn veirunni verið tekin upp að fullu.

Afkoman fyrir skatta og afskriftir var jákvæð um þrjá millj­arða króna, en hagn­aður eftir skatta og afskriftir námu 1,3 millj­örðum, sam­an­borið við 408 millj­ónir árið áður.

Hins vegar breyt­ist myndin þegar tekið er til­lit til líf­fræði­legra eigna, ein­skiptis­kostn­aðar og fisk­eld­is­gjalda. Þá nemur tap félags­ins 1,3 millj­örðum fyrir skatta og afskriftir, og 2,9 millj­örðum eftir þær. Árið áður var hagn­aður 2,5 millj­arðar á sama grunni. Veltufé frá rekstri var nei­kvætt um 2,2 millj­arða, sem þó er betri staða en árið áður þegar það var nei­kvætt um rúm­lega sex millj­arða.

Afskrifuðu 3,5 milljarða vegna seiðadauða

Mesta áhrifin virð­ast koma frá dauða seiða í nóv­em­ber síð­ast­liðnum. Samkvæmt skýrsl­unni tafð­ist útsetn­ing þeirra vegna ofmett­unar, og versnuðu veð­ur­fars­að­stæður að auki. Nið­ur­staðan var að 1,2 millj­ónum færri seiða var komið í sjó en áætlað hafði verið, sem leiddi til 3,5 millj­arða afskrifta.

Vegna þessa er ávinn­ingur af bólu­setn­ing­unni gegn ISA-veirunni ekki far­inn að skila sér að fullu. Fram kemur að fram til þessa seiða­dauða hafi afföll verið undir með­al­tali í grein­inni í Noregi. Seiða­dauð­inn hefur einnig áhrif á fram­leiðslu­spá, reiknað er með að 3.500 tonnum minna verði slátrað á þessu ári, en sam­tals er gert ráð fyrir að fram­leiðsla verði 21.000 tonn.

Mat­væla­stofnun hefur kært málið til lög­regl­unnar á Aust­ur­landi þar sem grunur leikur á að útsetn­ing seið­anna hafi brotið gegn dýra­vernd­ar­lögum. Málið er til rann­sóknar.

Nýtt nafn, nýtt skipulag

Árið 2023 var einnig ár breyt­inga hjá Kaldvík. Fyr­ir­tækið fékk nýtt nafn í stað Fisk­eldis Aust­fjarða og Laxa fisk­eldis, og var skráð í íslensku Kaup­höll­ina. Nýr fram­kvæmda­stjóri, Roy-Tore Rik­ard­sen, tók við af Guðmundi Gísla­syni sem nú stýrir sölu­sviði.

Kaldvík eign­að­ist slát­ur­hús og kassa­verk­smiðju á Djúpa­vogi, sem styrkir stöðu fyr­ir­tæk­is­ins í virð­is­keðj­unni. Þar var tekin í notkun ný slæg­ing­ar­vél.

Fyr­ir­tækið stundar eldi í Berufirði, Fáskrúðs­firði og Reyð­ar­firði, auk þess sem það á leyfi á Stöðv­ar­firði sem ekki hefur verið virkjað. Einnig hefur það sótt um leyfi á Seyð­is­firði og segir í skýrsl­unni að und­ir­bún­ingur og fjár­fest­ingar séu þegar hafnar, þrátt fyrir að leyfið hafi ekki enn feng­ist.

Gengi krónunnar veldur áhættu

Í skýrsl­unni er geng­is­á­hætta sögð meðal helstu áskor­ana í rekstr­inum. Tekjur eru að mestu í evrum og doll­urum en kostn­aður í íslenskum krónum. Félagið gerir upp í evrum.

Í lok árs störf­uðu 207 hjá Kaldvík, þar af voru um 25% konur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Landið

Landið

Límdu yfir hraða­mynda­vél lög­reglu

„Það er svo sannarlega þörf á hraðamælingum“
Landið

Forbes vekur athygli á nýju ferða­manna­gjaldi á Íslandi

Landið

Breskur stór­mið­ill velur fimm stór­kost­leg­ustu fossa Íslands

Landið

Vilja vernda nátt­úruperlu í Skriðdal

Landið

Skortur á leik­skóla­plássum tefur end­ur­komu starfs­fólks HSA

Landið

Björg­un­ar­bún­aður og bætt öryggi til skoð­unar við Stuðla­gil