Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Samtök evrópskra sjónvarpsstöðva hóta refsingu fyrir að minnast á Gaza

Spænska rík­is­sjón­varpið hefur fengið sent hót­un­ar­bréf frá stjórn­endum Eurovision eftir að lýsendur sögðu frá mann­fall­inu á Gaza-svæð­inu.

Samtök evrópskra sjónvarpsstöðva hóta refsingu fyrir að minnast á Gaza
Keppandi Ísraels Yuval Raphael hefur gjarnan verið kynnt sem fórn­ar­lamb árásar Hamas, en lýsendum Eurovision er ekki heim­ilt að nefna þjóð­ar­morðið á Gaza, að mati stjórn­enda Eurovision. Mynd: Corinne Cumming / EBU

Spænska rík­is­sjón­varp­inu verður refsað af Samtökum evr­ópskra sjón­varps­stöðva, ef kynn­endur Eurovision minn­ast aftur á ástandið á Gazasvæðinu í lýs­ingu á keppn­inni í kvöld.

Samtök evr­ópskra sjón­varps­stöðva hafa stað­fest þetta í sam­tali við spænska blaðið El País.

Umdeilt er að Ísrael keppir í Eurovision-keppn­inni í ár þrátt fyrir yfir­stand­andi þjóð­ar­morð af hálfu ísra­el­skra yfir­valda og hers á Gazasvæðinu, sam­kvæmt skil­grein­ingu Sam­ein­uðu þjóð­anna og feiri óháðra aðila. Fjöl­margir hafa hvatt til snið­göngu keppn­innar vegna þess og hefur Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir utan­rík­is­ráð­herra sagt „skrítið og óeðli­legt“ að Ísraelar taki þátt í þessum aðstæðum. Bæði spænska rík­is­sjón­varpið og það íslenska hafa farið fram á umræðu á vett­vangi Samtaka evr­ópskra sjón­varps­stöðva um þátt­töku Ísraels. Nið­ur­staða sam­tak­anna er önnur.

Í annarri umferð und­an­úr­slita Eurovision á fimmtu­dags­kvöld­inu nýttu lýsendur spænska rík­is­sjón­varps­ins, RTVE, Tony Aguilar og Julia Varela, tæki­færið þegar Yuval Raphael, full­trúi Ísraels, steig á svið til að minna á beiðni sem RTVE sendi til Samtaka evr­ópskra sjón­varps­stöðva fyrir mán­uði síðan um að ræða þátt­töku Ísraels í keppn­inni. Báðir lýsendur minnt­ust einnig á að fleiri en 50.000 óbreyttir borg­arar hefðu fallið í árásum í Gasa, þar af meira en 15.000 börn, sam­kvæmt upp­lýs­ingum frá Sam­ein­uðu þjóð­unum.

Samkvæmt El País verður vitnað til sam­skipt­anna við Samtök evr­ópskra sjón­varps­stöðva í útsend­ingu keppn­innar á Spáni í kvöld.

Ísraelar völdu til keppn­innar flytj­anda sem hafði lifað af árás Hamas-liða 7. októ­ber 2023, sem hratt af stað ákvörðun ísra­el­skra yfir­valda um að hefja eyði­leggj­andi sprengju­árásir á ger­vallt Gazasvæðið. Ísraelar hafa vísað til reynslu Yuval Raphael í kynn­ingu á henni sem kepp­anda. El País hefur eftir heim­ild­ar­mönnum innan spænska rík­is­sjón­varps­ins að þar ríki undrun yfir því að Samtök evr­ópskra sjón­varps­stöðva skuli „biðja um virð­ingu fyrir mann­rétt­indum og fyrir friði og rétt­læti“ á sama tíma og Eurovision-stofn­unin „lítur ekki á það sem póli­tíska yfir­lýs­ingu þegar ísra­elska sendi­nefndin und­ir­strikar að fram­bjóð­andi þeirra sé fórn­ar­lamb árásanna frá Hamas þann 7. októ­ber 2023“.

Í texta bréfs­ins minnir sam­bandið spænska rík­is­sjón­varpið á að „allir lýsendur þurfa að fylgja reglum hátíð­ar­innar og leið­bein­ingum lýsenda“.

„Þessar leið­bein­ingar,“ segir í bréf­inu á ensku, „banna póli­tískar yfir­lýs­ingar sem gætu ógnað hlut­leysi keppn­innar. Tölfræði um fórn­ar­lömb á ekki heima í póli­tískt hlut­lausri skemmti­dag­skrá sem hefur yfir­skrift­ina Sameinuð í gegnum tón­list – sem stendur fyrir ein­ingu.“ Þá segir: „Það er nauð­syn­legt að lýsendur fylgi þessum reglum án und­an­tekn­inga [...] til að varð­veita hlut­laust eðli Eurovision og fylgja siða­reglum og stöðlum sem settir hafa verið. Við væntum fullrar sam­vinnu frá RTVE til að forð­ast end­ur­tekn­ingu. Öll brot í fram­tíð­inni gætu haft í för með sér sektir í sam­ræmi við regl­urnar,“ hefur El País eftir bréf­inu.

Í umfjöll­un­inni kemur einnig fram að yfir­menn ísra­elska rík­is­sjón­varps­ins KAN hafi sent form­lega kvörtun til UER um hádegi á föstu­dag vegna ummæla lýsenda spænska rík­is­sjón­varp­ins. Nokkrum klukku­stundum síðar höfðu voru fyrr­greindar kröfur lagðar fram án svig­rúms til sam­tals.

Í laga­texta fram­lags Ísraels, sem heitir Nýr dagur mun rísa, er fjallað um að yfir­stíga erf­ið­leika og að þeir sem kveðji dvelji áfram. „Nýr dagur mun rísa. Lífið heldur áfram. Allir gráta. Grátið ekki ein. Myrkrinu léttir. Sárs­auk­inn mun líða hjá. En við verðum kyrr. Jafnvel þótt þú segir bless.“

Ísraelsk yfir­völd hafa meðal ann­ars haft til umræðu að fjar­lægja alla íbúa Gaza og að her­nema svæðið var­an­lega.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Menning

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Hrósar lýsingum Laxness á íslenskri náttúru og árstíðunum
Myndband
Menning

Luthers­son frum­sýnir blóð­uga ást­ar­sögu í eyði­mörk Kali­forníu

Menning

Sendu sím­ann í svefn­poka og fáðu smá frið

Menning

Ást, missir og barn­þrá í upp­seldri skáld­sögu Mar­grétar

Menning

Frá Rocky og Springsteen til aftöku í Sádi-Arabíu