Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Elsku bróðir minn

Elsku bróðir minn
Lárus Björn Svav­ars­son

Elsku bróðir minn. Í gær var svip­ur­inn á and­liti þínu annar en hann hafði verið und­an­farna mán­uði. Hann mark­að­ist ekki lengur af hryggð og sárs­auka. Þér leið greini­lega betur. En þú varst far­inn og ég stóð eftir og tóm­leiki fyllti mig. Þegar mað­ur­inn minn spurði hvernig mér liði fannst mér ég þurfa að segja eitt­hvað og fann fyrir ótta við að þögn mín væri of hávær.

Minn­ingar leita á hug­ann. Ég hef verið að reyna að raða þeim í tíma­röð, eins og til að fá skikk á hugs­an­irnar. Mamma var and­vaka árin sem þú varst vistaður á Breiða­vík. Hún gekk um gólf strauk sér um bakið og tjáði ang­ist sína vegna veru þinnar þar. Ég sat og hlust­aði og ang­ist hennar sett­ist að í mér.

Í hvert sinn sem við hitt­umst eða heyrð­umst eða skrif­uð­umst á ávarp­aðir þú mig eins: „Elsku systir.“ Þegar ég var fjórtán fór ég í fyrsta sinn með rettur til þín á Níuna. Skömmin yfir að eiga bróður í fang­elsi skaut rótum innra með mér það ár enda meng­aði andi for­dómanna íslenskt sam­fé­lag árið 1969. Fjöl­skyldu­leynd­ar­málin voru vand­lega grafin í skjóli frið­helgi einka­lífs­ins. Hvernig vog­aði ég mér að labba eins ekk­ert væri sjálf­sagð­ara að dyrum Hegn­ing­ar­húss­ins að Skóla­vörðu­stíg 9 og hringja á dyra­bjöll­una? Þvílík fram­hleypni.

Þegar ég kvaddi þig í gær tók ég Princepakkan og leð­ur­hatt­inn með mér. Ég sett­ist út við vegg í sól­skin­inu dró sígar­ettu upp úr pakk­anum og kveikti í. Mér fannst eitt and­ar­tak þú sitja við hlið­ina á mér. Það urðu þátta­skil í lífi þínu þegar umræðan um vist­heim­ilin varð opin­ber og þú „þessi ófor­betr­an­legi síafbrota­maður“ grést í beinni þegar þú ját­aðir að hafa verið vistaður á Breiða­vík í fimm ár. Í mínum huga varstu aldrei „ófor­betr­an­legur.“ Þú varst umfram allt hlýr og elsku­legur bróðir minn. En þegar barið var á dyr félags­mála­yf­ir­valda og rétt­ar­kerf­is­ins reynd­ust sumir full­trúar þeirra vera fullir mann­fyr­ir­litn­ingar og dóm­hörku. Að þeirra áliti varstu von­laus van­vita smæ­lingi varla læs né skrif­andi. Þó lágu fyrir skýrslur sem inni­héldu grein­ingar geð­læknis þess efnis að þú værir bæði les­blindur og ofvirkur. Ég velti stundum fyrir mér hve margir Lallar þurfa að feta í fót­spor þín þar til mann­skiln­ingur kær­leik­ans fær að skína yfir líf þeirra.

Ég ætla ekki að kveðja þig í bit­urð vegna þeirra illu örlaga sem líf þitt ein­kennd­ist svo oft af. Stundum vegna þinna eigin ákvarð­ana og stundum vegna skiln­ings- og skeyt­ing­ar­leysis manna. Ég kveð þig sem bróðir sem vissu­lega til­heyrði á stundum und­ir­heimum Reykja­vík­ur­borgar. Þar varstu með bræðrum og systrum sem mörg bera, eins og þú gerðir, skarðan hlut frá borði lífs­ins. En þó hef ég marg­sinnis hitt konur sem voru þér sam­tíma í þessum heimi. Konur sem ruku upp um háls­inn á þér í þakk­læti fyrir vernd sem þú veittir þeim á ögur­stundum ofbeldis sem ógn­aði þeim. Þú varst alltaf trú­aður. Einn laug­ar­dag þegar ég heim­sótti þig á Hraunið lá Biblían þín á borð­inu. Þegar ég fletti í gegnum hana sá ég að víða hafði verið krotað stórum stöfum á blað­síð­urnar: „Jesú er her­for­ing­inn. Jesú er stríðs­hetjan.“ Auk þess að nýt­ast sem síma­skrá félaga þinna á Keis­ar­anum.

Þú fórst síð­ustu árin oft á sam­komur hjá United í Kópa­vog­inum. Hann Siggi Skipper sótti þig gjarnan á mánu­dags­kvöldum. Þú fékkst þér sæti frekar fram­ar­lega, kross­lagðir hendur á brjóst og hall­aðir þér upp að veggnum. Þú lést ekki á þér bera á meðan á stund­inni stóð en faðm­aðir inni­lega gamla og nýja félaga að henni lok­inni.

Hjartans þakkir færi ég Óla og Elínu rekstr­ar­að­ilum Drauma­set­urs­ins og öllum þeim sem bjuggu með Lalla á þessu áfanga­heim­ili. Þar bjóstu í tæp 20 ár og eign­að­ist í fyrsta sinn þitt eigið her­bergi.

Ég vil einnig færa starfs­fólki Vita­torgs á Hrafn­istu Laug­ar­ási þakkir fyrir hlý­hug og vel­vild í garð Lalla.

Elsku Lalli minn ég veit að þú ert kom­inn heim til Guðs. Þar nýt­urðu þeirra gæða sem ekki voru þín í þessum heimi. Þú munt lifa í minn­ingu minni.

Þín elsk­andi systir Rósa.

Rósa Ólöf Ólaf­íu­dóttir
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

„Á ég að koma og taka í þig og ríða þér í rassgatið litla tussan þín“
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Minning

Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Minning

Áslaug Arna kveður ömmu sína

Minning

Guðrún Birna Gísla­dóttir er látin

Minning

Björgvin Birg­is­son er fall­inn frá

Minning

Stein­grímur Ingi Björns­son fyrr­ver­andi lands­liðs­maður í knatt­spyrnu lát­inn

Minning

Sig­ur­laug Guð­munds­dóttir Rósinkranz er fallin frá