Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Biggi ekki lengur lögga

Hefur horfið til nýrra starfa eftir 20 ár á sama stað

Biggi ekki lengur lögga
Birgir Örn er hættur í lög­regl­unni Starfaði þar í 20 ár og var mjög áber­andi á sam­fé­lags­miðlum Mynd: Facebook

Birgir Örn Guð­jóns­son, oft­ast þekktur sem Biggi lögga, hefur til­kynnt á sam­fé­lags­miðl­inum Facebook að hann sé hættur í lög­regl­unni en hann hefur verið reglu­lega í fjöl­miðlum und­an­farin ár starfs­ins vegna.

Í færsl­unni segir Birgir að ákvörðun að fara í lög­reglu­skól­ann hafi verið skyndi­á­kvörðun. Það hafi ekki verið hans draumur og í raun úr hans „karakter“ að vinna slíka vinnu.

„Ég heill­að­ist engu að síður fljótt af starf­inu og þá sér­stak­lega þeirri hlið að fá tæki­færi að hjálpa og hafa áhrif á líf fólks, oft á þeirra erf­ið­ustu tímum í líf­inu. Ég hef alltaf verið mjög for­varn­ar­mið­aður í hugsun og starfið mitt í lögg­unni hefur lit­að­ist mjög af því. Ég hef meðal ann­ars tekið þátt í alls­konar for­varn­ar­verk­efnum, bæði hér­lendis og erlendis og meðal ann­ars komið að því að gera verk­lag og þjálfa lög­reglu­menn víðs­vegar um Evrópu. Upp á síðkastið hef ég svo verið rann­sókn­ar­lög­reglu­maður í mið­lægri kyn­ferð­is­brota­deild. Ástæðan fyrir því að ég valdi þá deild var einnig for­varn­ar­legs eðlis vegna þess hversu gíf­ur­leg áhrif kyn­ferð­is­brot hafa oft á líf fólks og fram­tíð.“

Hann hafi starfað sem lög­reglu­maður í 20 ára og nú sé komið gott og hann hafi fengið vinnu utan lög­regl­unnar.

„Þetta er spenn­andi starf þar sem ég er sann­færður um að reynsla mín komi að gagni auk þess sem það fellur algjör­lega að minni hug­sjón. Ég hef verið ráð­inn sem deild­ar­stjóri hjá Barna og fjöl­skyldu­stofu á nýju stuðn­ings­heim­ili sem við munum opna á næstu mán­uðum. Þetta er ótrú­lega spenn­andi starf í gíf­ur­lega mik­il­vægum mála­flokki sem hjarta mitt hefur alla tíð slegið fyrir. Sem betur fer er margt í gangi í mála­flokknum, enda þörfin mikil, og spenn­andi tímar framundan. Það eru því bæði for­rétt­indi og áskorun að fá að taka þátt í þeirri upp­bygg­ingu.“

Hann við­ur­kennir í færsl­unni að það sé skrýtið að skipta um starf eftir allan þann tíma sem hann hefur lagt í lög­regl­una og þá sér­stak­lega í ljósi þess að við­ur­nefni hans sé svo tengt starf­inu. Hann seg­ist þó virki­lega spenntur fyrir nýja vinnu­staðnum án þess þó að segja í hverju það felst.

„Ég er enda­laust þakk­látur fyrir allt það frá­bæra fólk sem ég hef unnið með í lög­regl­unni og ég hlakka til áfram­hald­andi sam­starfs. Það er nefni­lega engin stofnun eyland í þessum mála­flokki. Farsælt sam­starf er lyk­ill.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Fólk

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Fólk

Keath Ósk slær í gegn á heims­vísu og segir Ísland hafa mótað sköp­un­ina

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Myndir
Fólk

Sögu­frægt sýslu­manns­setur við sjó­inn komið á sölu